Mosfellingur - 12.01.2012, Page 8
Hanna Símonardóttir hefur verið valin Mos-
fellingur ársins. Hanna Sím eins og hún er
alltaf kölluð hefur um árabil verið ein aðal
driffjöðurin í starfi knattspyrnudeildar Aft-
ureldingar og gengt þar ýmsum hlutverk-
um. Hanna býr ásamt manni sínum Einari
Magnússyni og börnum þeirra Magnúsi Má,
Agnesi Eir, Antoni Ari, Patrik Elí og fóstu-
syni þeirra Ásgeiri Árna í Liverpool-húsinu
í Bugðutanga. Hanna starfar sem nuddari í
hlutastarfi, en um árabil hefur hún einnig
starfað fyrir barnavernd og hefur fjölskyld-
an tekið börn í fóstur og stuðning, eftir þörf-
um. Hanna hefur ekki lengur tölu á þeim
fjölda barna sem dvalið hafa á heimilinu í
lengri eða skemmri tíma. „Hér er alltaf líf
og fjör, margir í heimili, mikill gestagangur
og svo erum við með kött, skjaldbökur og
gullfiska,“ segir Hanna og hlær.
Sjálfboðaliði Aftureldingar í 14 ár
Hanna hefur setið í fjölmörgum nefndum
og ráðum, verið fararstjóri í keppnisferðum
flestra flokka bæði innanlands og utan,
tekið þátt í mörgum fjáröflunarverkefnum,
haldið dansleiki, rekið pylsuvagn, haldið
úti getraunastarfi og svo mætti lengi telja.
En hvað ætli standi upp úr öllu þessum
fjölmörgum handtökum í sjálfboðaliða-
starfinu? „Ætli það sé ekki gleðin yfir því
að vera búin að taka þátt í því á þessum 14
árum að byggja upp starfið í knattspyrnu-
deild og það sé að skila sér í því að geta
státað af meistaraflokksliði karla sem er
að komst á siglingu og er nánast eingöngu
skipað uppöldum Aftureldingadrengjum.“
Risa Þorrablót og Liverpoolskóli
„Svo er það heiðurinn af því að hafa verið
einn af hvatamönnum af því að koma aftur
á fót risa þorrablóti Aftureldingar í þeirri
glæsilegu mynd sem það er í dag og vona
ég að Mosfellingar fjölmenni á blótið þann
21. janúar. Já, svo er það Liverpool ævintýr-
ið, en Afturelding og Liverpool starfræktu í
fyrrasumar fjölmennt knattspyrnunámskeið
á Tungubökkunum. Þá komu 10 þjálfarar
frá Liverpool sem starfrækir knattspyrnu-
skóla um allan heim. Þeir bjuggu allir hér
hjá okkur og við fjölskyldan fluttum bara
úti í bílskúr á meðan. En þessir þjálfarar eru
vanir 4-5 stjörnu hótelum. Það var hópur
af frábærum foreldrum sem tóku þátt í því
með okkur að sjá um heimilishald á meðan
og skipuleggja frábæra dagskrá á meðan á
dvöl þeirra stóð. En knattspyrnustjórinn
hjá Alþjóðaknattspyrnuskóla Liverpool
sagði mér þegar ég fór á fund með honum
í haust að umsagnirnar sem hann fékk frá
þjálfurunum eftir Íslandsförina eru þau
bestu sem hann hefur fengið.
Nú í sumar verðum við með tvö námskeið
og hlökkum mikið til,“ segir Mosfellingur
ársins. Auk þess að reka stórt heimili, nudda
og starfa sem sjálfboðaliði fyrir Aftureldingu
fer Hanna ásamt Önnu vinkonu sinni sem
fararstjóri í Knattspyrnuskóla Bobby Chalt-
on í Englandi á vegum IT ferða á hverju
sumri með 60-100 íslenska krakka.
Tileinkar Aftureldingu viðurkenninguna
„Mitt hjartans mál er að beita mér fyrir
því að byggt verði yfir gervigrasvöllinn, svo
Afturelding og Mosfellsbær standi undir
merkjum og bjóði iðkendum sínum upp
á aðstöðu sem er sambærileg við aðstöðu
sem íþróttafélög og bæjarfélög af sömu
stærðargráðu bjóða upp á,“ segir Hanna.
„VÁ ég tileinka Aftureldingu þennan
heiður“ segir Hanna ánægð með nafnbót-
ina. „Nú er bara að bretta upp ermar og
landa fleiri titlum,“ heldur Hanna áfram
og lofar okkur frábæru knattspyrnuári í
Mosfellsbæ. „Við setjum stefnuna hátt
með meistaraflokkinn enda eigum við
ekkert sameiginlegt knattspyrnulega séð
með þessum neðrideildarliðum sem við
höfum verið að keppa við. Við þurfum
bara að standa saman og setja markið
hátt, eins og góðvinur minn Pétur Magg
sagði svo réttilega þegar hann tók við tók
við formennsku í meistarflokksráði karla
um áramótin. Ég er full af bjartsýni, þessi
nafnbót er viðurkennig á mínum störfum
og mér mikil hvatnig að gera enn betur, ég
fer inn í nýtt ár af fullum krafti og hlakka til
að takast á við þau fjölmörgu verkefni sem
þarf að sinna til að knattspyrnudeildin vaxi
og dafni áfram,“ segir Hanna að lokum.
annaolof@mosfellingur.is
Kennir töfrabrögð í
Tómstundaskólanum
Töframaðurinn Einar Mikael og
Tómstundaskóli Mosfellsbæjar
standa fyrir töfranámskeiði
fyrir krakka. Töfranámskeið Einars
Mikaels er líklega eitt vinsælasta
töfranámskeið sem sett hefur verið
upp fyrir börn á Íslandi. Einar hefur
kennt rúmlega 2500 börnum um allt
land. Á námskeiðinu fá nemendur
innsýn inn í hinn dularfulla heim
töframanna. Kennd eru undirstöðu-
atriði í töfrabrögðum og nemendur
læra skemmtileg og praktísk
töfrabrögð með spilum, teygjum og
hugsanalestri. Námskeiðið eykur
sjálfstraust, æfir framkomu og allir
fá tækifæri til að sýna töfrabrögðin
á stórkostlegri töfrabragðasýningu
sem haldin er fyrir foreldra, vini og
vandamenn í lok námskeiðs.
Einar er útskrifaður úr Hogwarts
School of Witchcraft and Wizardy.
Fjöldi námskeiða er í boði hjá
Tómstundaskólanum á næstunni og
er hægt að finna allar upplýsingar á
www.tomstundaskolinn.is
Bjóða upp á fría fyrir-
lesara á heilsuári
Árið 2012 verður Heilsuár í
Mosfellsbæ. Heilsu- og lífsstíls-
klúbburinn, sem hélt uppá eins
árs afmæli sitt fyrr í mánuðinum,
mun ekki láta sitt eftir liggja heldur
standa fyrir fríum fyrirlestrum í
hverjum mánuði allt þetta ár fyrir
Mosfellinga og nærsveitarmenn.
Yfirskrift fyrirlestraraðarinnar er
Heilbrigðar fjölskyldur í Mosfellsbæ
2012. Bakgrunnur fyrirlesara er
ólíkur, allt frá hárgreiðslu og förðun,
tónlist, einkaþjálfurum, lögreglu-
mönnum og hjúkrunarfræðingum,
yfir í ráðgjafa og bílstjóra ofl. og
þar af leiðandi verður fræðslan
einnig fjölbreytt. Meðal þess sem
boðið verður upp á, er að upplýsa
fólk um skynsemi þess að næra sig
vel og velja skynsamlega, af hverju
hreyfing?, jákvætt hugarfar, næring
barna, næring unglinga, að nesta
sig út í daginn, heilbrigð melting,
kynheilsa unglinga og fullorðinna,
forvarnir vegna fíkniefna, heimilis-
bókhald og fjármál, sjálfstraust og
framkoma og fjölmargt fleira. Fyrsti
opni fyrirlesturinn verður haldinn
mánudagskvöldið 30. janúar kl. 20-
21.30 í Heilsu- og lífsstílsklúbbnum
í Mosfellsbæ, Háholti 14, 2.hæð.
Umfjöllunarefni þess kvölds er:
Næring barna á leik- og grunn-
skólaaldri. Allir velkomnir á meðan
húsrúm leyfir. Hægt er að fylgjast
með viðburðum í H&L með því að
gerast vinur á Facebook.
- Hvað er að frétta?8
Louisa Sigurðardóttir hefur opnað
fyrstu einkasýningu sína í anddyri
Lágafellslaugar. Á sýningunni getur
að líta 15 valin olíumálverk frá ár-
inu 2009 til loka ársins 2011. Áður
hefur hún tekið þátt í nokkrum
samsýningum en hún býr og starfar
í Mosfellsbæ.
Louisa hefur
sótt ýmis námskeið í
myndlist í um áratug. Á
árunum 2002 – 2003 nam
hún við listabraut Fjöl-
brautaskóla Breiðholts
og hefur þar að auki sótt
námskeið í Myndlista-
skóla Kópavogs og lengst
af við Myndlistaskóla
Mosfellsbæjar þar sem
hún hefur notið leiðsagnar m.a.
Ásdísar Sigurþórsdóttur, Soffíu
Sæmundsdóttur, Önnu Gunn-
laugsdóttur og Þuríðar Sigurðar-
dóttur.
Segir sögur af fólki og dýrum
Louisa leitar gjarnan í sitt nán-
ansta umhverfi bæði fyrr og nú
þegar kemur að myndefni; hún segir sögur
af fólki og dýrum sem eiga sess í huga henn-
ar og leitast við að greina birtingarmyndir
náttúrunnar bæði í nánd og fjarlægð. Lou-
isa notar mismunandi aðferðir til að túlka
á persónulegan hátt hugmyndir sínar, fer
eigin leiðir í að koma þeim á léreftið og
notar jöfnum höndum spaða og pensla.
Sýningin er opin alla virka daga frá 6.30
til 21.30 og frá 8 til kl. 19 um helgar.
LISTRÆN FAGMENNSKA
ARTPRO
www.artpro.is
STAFRÆN PRENTUN
STAFRÆN HÖNNUN
LISTRÆN FAGMENNSKA
ARTPRO
www.artpro.is
LISTRÆN FAGMENNSKAARTPROwww.artpro.is
STAFRÆN PRENTUN
STAFRÆN HÖNNUN
LISTRÆN FAGMENNSKAARTPROwww.artpro.is
LISTRÆN FAGMENNSKAARTPROwww.artpro.is
STAFRÆN PRENTUN
STAFRÆN HÖNNUN
LISTRÆN FAGMENNSKAARTPROwww.artpro.is
Fótboltamamman og athafnakonan Hanna Símonardóttir er Mosfellingur ársins 2011
Alltaf fjör í boltanum
Bæjarblaðið Mosfellingur hefur
staðið fyrir vali á Mosfellingi ársins
síðastliðin ár. Áður hafa hlotið nafnbótina:
2005 Sigsteinn Pálsson
2006 Hjalti Úrsus Árnason
2007 Jóhann Ingi Guðbergsson
2008 Albert Rútsson
2009 Embla Ágústsdóttir
2010 Steinþór Hróar Steinþórsson
2011 Hanna Símonardóttir
moSfEllInGuR ÁRSInS
Hanna Símonardóttir tekur
við viðurkenningunni úr
höndum Hilmars Gunnars-
sonar ritstjóra Mosfellings.
Louisa Sigurðardóttir opnar fyrstu einkasýningu sína
Sýnir 15 olíumálverk
í Lágafellslaug
M
yn
d/
Ra
gg
iÓ
la
málverk eftir
lúllu á ökrum
ViðurkenninginfráMosfellingierglæsilegt
listaverkeftirÞóruSigurþórsdótturlistakonuá
Hvirfli.BlómvöndurinnerfráGallerýNýblóm.