Mosfellingur - 12.01.2012, Síða 20
- Vetur í Mosfellsbæ20
VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja
Almennar
og sérstakar
húsaleigubætur
Athygli er vakin á að samkvæmt lögum um húsaleigubætur
nr. 138/1997 skal endurnýja umsókn um húsaleigubætur
árlega í upphafi árs og gildir umsóknin til ársloka,
eða jafnlengi og gildistími húsaleigusamnings.
Samkvæmt reglum Mosfellsbæjar um sérstakar
húsaleigubætur skal endurnýja umsóknir um sérstakar
húsaleigubætur samhliða almennum húsaleigubótum,
gildir umsókn aldrei lengur en sex mánuði og/eða
jafnlengi og gildistími húsaleigusamnings.
Reglur vegna sérstakra húsaleigubóta er hægt að nálgast á
mos.is/samþykktir og reglur/húsaleigubætur sérstakar.
Umsækjendur um almennar og sérstakar húsaleigubætur í
Mosfellsbæ eru minntir á að skila umsókn og fylgiskjölum fyrir
árið 2012 á www.mos.is/íbúagátt eða í þjónustuver Mosfells
bæjar, Þverholti 2 í síðasta lagi 15. janúar 2012.
Húsnæðisfulltrúi Mosfellsbæjar
Sendið okkur myndir af nýjum
Mosfellingum ásamt helstu
upplýsingum á netfangið
mosfellingur@mosfellingur.is
Flugumýri 16d
s. 577-1377 / 896-9497
www.retthjajoa.is
rauði krossinn
Rauðakrosshúsið er opið þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 10-15 og miðvikudaga kl. 12-16.
Húsið er opið öllum, en atvinnuleitendur
eru sérstaklega hvattir til að koma.
Dagskrána má finna á www.raudikrossinn.is/kjos
Nánari upplýsingar í síma 564 6035 og kjos@redcross.is
„Hér hefur allt verið á fullu síðustu vikurn-
ar,” segir Þorsteinn Sigvaldason forstöðu-
maður Þjónustumiðstöð Mosfellsbæjar.
Eins og bæjarbúar vita hefur mikil ófærð
sett svip sinn á götur bæjarins. „Menn eru
mættir til vinnu kl. 5 á morgnanna og vinna
fram eftir öllu. Við erum bæði með okkar
tæki og mannskap auk verktaka sem vinna
með okkur þegar mest reynir á. Götur og
stígar eru flokkaðir eftir umferð og mikil-
vægi. Aðaltengigötur og leiðir strætisvagna
eru í fyrsta forgangi. Reynt er að tryggja að
leiðir strætisvagna og aðrar götur í fyrsta
forgangi séu ávallt færar.“
Bæjarbúar skilningsríkir á ástandinu
„Baugshlíðin og Reykjavegur voru hvað
erfiðastar í vikunni. Bílar festu sig trekk í
trekk og þurfti að loka götunum í nokkur
skipti,“ segir Þorsteinn. Hér leggjast bara
allir á eitt enda ekkert annað hægt að gera
í stöðunni. Til að mynda hefur Haraldur
bæjarstjóri komið með okkur í ferðir og
hjálpað mönnum að losna úr sköflum.
Auðvitað er mikið hringt í Áhaldahúsið á
tímum sem þessum en flestir eru þó kurt-
eisir og þolinmóðir og hafa góðan skilning
á ástandinu. Fólk er frekar að spyrjast út í
mokstur og færð heldur en að bölsóttast“.
Að lokum bendir Þorsteinn fólki á að vera
vel búið þegar það leggur af stað í færð sem
þessa.
Mikil ófærð hefur verið í Mosfellsbæ eins og víðast hvar á landinu • Þorsteinn Sigvaldason man síðast eftir álíka vetri árið 2000.
Veturkonungur gerir vart við sig
umferðarteppa
við teigana
Baugshlíðin er erfið
í vestanáttinni
leifur guðjóns
að störfum