Mosfellingur - 12.01.2012, Blaðsíða 24
Kúskús kjúklingasalat
Í eldhúsinu
„Þessi uppskrift kemur frá
Lúllu á Ökrum og er alveg ein-
staklega góð, eins og allt sem
hún gerir. Mig langar því að
skora á hana í næsta blað.“
Kúskús kjúklingasalat
3-4 kjúklingabringur
1 dós sataysósa
Spínat
8 sólþurrkaðir tómatar í olíu
saxaðir
1 rauðlaukur saxaður
1 krukka fetaostur
2 bollar hreint kúskús
1 grænmetisteningur
500 ml. soðið vatn
Salthnetur
Rúsínur
Dressing:
1 dl. olía
1 dl. balsamikedik
1/2 dl. maplesýróp
smá sætt sinnep
3-4 hvítlaukrif (pressuð).
Skerið kjúklinga-
bringur í teninga og
setjið útí sataysós-
una. Gott að láta
liggja í sósunni í 3-4
klst. Steikið bitana
á pönnu með allri
sósunni. Grænmetis-
teningur leystur upp
í sjóðandi vatninu
og kúskús sett út
í það og lok sett á.
Eftir c.a. 3 mín er
kúskúsið tilbúið,
hræra það með gaffli
til að losa það í sund-
ur. Helmingnum af
dressingunni er hellt
yfir annars verður kúskúsið svolítið þurrt.
Setjið mikið spínat í stóra skál/bakka. Rauð-
laukur, sólþurrkaðir tómatar og fetaostur
sett ofaná. Kjúklingnum ásamt sósunni af
pönnunni bætt í. Þvínæst kúskús og restin af
dressingunni hellt yfir. Skreytið með salthnet-
um og rúsínum.
hjá EygErði
þorra
blót
Nú er sull í bæjum bruggað
bráðum finn ég fyrirheit.
Best mér þykir í þá blöndu
þrátt vatn úr Mosfellssveit.
Slefdreggjar og gambra í safa
sjálfur ekkert betra veit.
Meðlæti með þessum veigum
maðkalausan fisk ég kýs.
Enginn kvartar nokkuð undan
ef súrri hrefnu fær af flís.
Drykkjusvol og svínaríi
siðprýðin sjálf úti frýs.
Ekki er nokkur veisla boðleg
ef finnist ekki af konu þef,
kjaftshögg karlmenn, fái á trýnið,
kinnhest eða bólgin nef.
Kylfa fær að ráða kasti
hvenær, hvar og hvort ég sef.
siggi gúst
Eygerður skorar á Lúllu á Ökrum að deila með okkur uppskrift í næsta Mosfellingi
Elín og Kristín Hafsteinsdætur, Emelía
Sól Arnardóttir og Björk Ragnarsdóttir
gengu með tombóludót í hús og söfn-
uðu 2.562 krónum fyrir Rauða krossinn.
Þessar duglegu vinkonur eru allar í 4.
bekk Varmárskóla.
hLutavELta
Ingólfur Árnason rafverktaki í Mosraf,
varð sjötugur síðastliðinn laugardag.
Byrjaði dagurinn á óvissuferð þar sem
galvaskir sveinar fóru með hann á fjöll.
Um kvöldið var veisla honum til heið-
urs, mætti þar fjölskylda hans og vinir.
Boðið var í mat og drykk og voru ýmsar
uppákomur.
MOSFELLINGUR
kemur næst 2. febrúar
- Heyrst hefur...24
Ingólfur Árnason rafverktaki fagnaði tímamótum á dögunum
Ingólfur sjötugur
ingólfur
og kristjana
kaffisopi
á fjöllum
sungið til
afmælis-
barnsins
Heyrst Hefur...
...að Hárgreiðslustofan texture hafi
óvænt blandað sér í baráttuna á
flugeldamarkaðnum í Mosó.
...að búið sé að bjóða Óla og Dorrit
á þorrablót Aftureldingar.
...að Pétur Magg sé orðinn formaður
meistaraflokks karla í fótboltanum
eftir þriggja ára hlé.
...að sigga Dögg sé hætt hjá Pennan-
um, þar sem hún hefur starfað frá
því að hún hætti sem kynningarfull-
trúi Mosfellsbæjar.
...að Greta salóme eigi lag í forkeppni
eurovision á laugardaginn og sé búin
að fá Jónsa úr Í svörtum fötum með
sér til að syngja.
...að elvar og Alex séu fifa-meistarar
ársins 2011.
...að þorrablót Harðar fari fram um
helgina og þorrablót Dalbúa verði
haldið 28. janúar.
...að Íris Hólm syngi lag sem heitir
Leyndarmál í forkeppni eurovision.
Hún verður fyrst á sviðið á
laugardaginn.
...að Garðar bílasali hafi verið valinn
toppman á lokahófi uMfus.
...að bæjarstjórinn hafi eytt síðasta
vinnudegi ársins með áhaldahúsinu
þar sem þónokkrum bílum var ýtt úr
sköflum.
...að stefanía svavars muni syngja
í hópi söngvara með Herberti
Guðmunds í forkeppninni.
...að fjölmennt hafi verið á jólapóker-
móti riddarans. sigurvegararnir voru
þrír, þeir Kristján golfari, Ófeigur og
Óli á Ökrum.
...að Andrés hafi keypt sig oftast inn
í jólapókerinn.
...að Ásgeir og yrja hafi trúlofað sig
um jólin.
...að borðapantanir á risa-þorrablót
Aftureldingar fari fram á Olís 15. jan.
...að kveikt hafi verið á brennunni á
áramótunum vel á undan áætlun en
þrettándabrennan hafi hins vegar
ekki viljað brenna sem skyldi.
...að forsetinn hafi talað um nýja húsið
sitt í Mosfellsbæ í nýársávarpinu.
...að mjög skiptar skoðanir hafi verið
um tímasetninguna á þrettánda-
brennunni í ár sem var kl. 18.
...að Kári sighvats sé orðinn pabbi.
...að Ljóshraðinn sé kominn aftur á
stjá með vangaveltur í blaðinu.
...að Getraunaleikur Aftureldingar
hefjist með pompi og prakt á
laugardaginn.
...að Kærleiksvika Mosfellsbæjar sé nú
undirbúin að krafti en hún fer fram
vikuna 12.-19. febrúar.
...að Geiri slæææ hafi tekið aðal
vinninginn í Bombubingóinu á Hvíta
riddaranum.
...að fiskbúðin fagni þriggja ára
afmæli sínu um þessar mundir.
...að Kjósarhreppur hafi boðið
sveitungum í skötuveislu á Þorlák.
...að íþróttamenn Aftureldingar verði
kjörnir fimmtudaginn 19. janúar.
mosfellingur@mosfellingur.is