Mosfellingur - 16.05.2012, Blaðsíða 19

Mosfellingur - 16.05.2012, Blaðsíða 19
heilsu hornið Varmá Fréttarit SjálFStæðiSmanna í moSFellSbæ 1. tbl. 34. árg. maí 2012 Kosið var til sveitarstjórna í landinu í maí 2010 og er því kjörtímabilið hálfnað nú í vor. Á þeim tímamótum er ekki úr vegi að líta yfir farinn veg og meta hvernig til hefur tekist á þessum tveimur árum. Við sjálfstæðismenn lögðum fram metnaðarfulla stefnu- skrá fyrir síðustu kosningar og höf- um í góðu samstarfi við vinstri græn hér í Mosfellsbæ unnið að framgangi þeirra stefnumála á kjörtímabilinu. Hér að neðan eru meginatriði þess- arar stefnuskrár okkar sjálfstæðis- manna og mat á því hvernig til hefur tekist. Ábyrg fjármálastjórn»Staða Mosfellsbæjar er traust, skuldahlutfall komið niður fyrir 150% af tekjum sem eru skil- yrði nýrra sveitarstjórnalaga. Sú þriggja ára áætlun sem lagt var af stað með til að aðlaga rekstur og fjármál sveitarfélagsins að breyttum aðstæðum eftir fjármálahrunið hefur gengið eftir. Bygging hjúkrunarheimilis og aðstöðu fyrir félagsstarf aldraðra»Bygging hjúkrunarheimilis er komin vel á veg, rekstur hefst í byrjun næsta árs. Samningur Mosfellsbæjar og Eirar, hjúkrunarheimilis um end- urinnréttingu á rými fyrir félagsstarf eldri borgara og starfsemi þjónustumiðstöðvar að Hlaðhömrum, hefur verið undirritaður og munu framkvæmdir hefjast fljótlega. Aukin löggæsla og nágrannavarsla»Mikil vinna og áhersla hefur verið lögð í að fá lögreglu höfuðborgarsvæðisins og ríkisvaldið til að efna loforð um byggingu nýrrar lögreglustöðv- ar í Mosfellsbæ í samvinnu við slökkviliðið. Við það hefur ríkisvaldið ekki staðið enn, áfram verður hald- ið í þessari baráttu. Áfram hefur verið haldið með nágrannavörslu verkefnið. Framúrskarandi skólastarf»Fullyrða má að skólastarf í Mosfellsbæ sé með því besta sem þekkist og er ekki síst að þakka því frábæra starfsfólki sem vinnur í skólastofnunum okkar. Þetta sýnir m.a. sú ásókn fjölskyldufólks í að búa í Mosfellsbæ. Áfram verður haldið að byggja upp og hlúa að skólastarfi okkar. Nýr leiksskóli hefur verið tekinn í notkun í Leirvogstungu. Öflug stoðþjónusta í skólum»Stoðþjónusta í skólunum okkar er allt-af í sífelldri skoðun enda er hún afar mikilvæg. Á vegum fræðslunefndar starfar vinnuhópur sem vinnur að endurskoðun á stefnu Mosfellsbæjar um sérkennslu og sérfræðiþjónustu. Gert er ráð fyrir skýrslu og tillögum frá hópnum nú í vor. Lýðræðisstefna og reglur um íbúakosningar»Lýðræðisstefna Mosfellsbæjar hefur verið unnin í samvinnu allra framboða í bæj- arstjórn og með aðkomu íbúa sveitarfélagsins. Bæjarstjórn samþykkti þessa nýju stefnu í okt- óber á sl. ári og varð Mosfellsbær því með fyrstu sveitarfélögum til að samþykkja sérstaka stefnu um lýðræðismál. Mosfellsbær sem miðstöð heilsueflingar og heilsu og menningartengdrar ferðaþjónustu»Mosfellsbær hefur sett sér metnaðarfulla stefnu sem leiðandi heilsubær. Jafnframt hefur bær- inn stuðlað að og tekið þátt í stofnun heilsuklasans Heilsuvinjar, sem er klasi aðila í heilsutengdri þjón- ustu í Mosfellsbæ, sem hefur það að markmiði að efla atvinnuuppbyggingu í hvers kyns heilsutengdri þjónustu. 1000 ný störf í bæinn»Fjöldi starfa í opinbera geiranum verður til með byggingu nýs framhaldsskóla, hjúkrunar- heimilis og slökkvistöðvar í Mosfellsbæ. Jafnframt hefur verið ákveðið að ráðast í sérstakt og nýstár- legt átak í sölu atvinnulóða í bænum. Auk þessa er í undirbúningi tvö risavaxin verkefni sem eru bygging liðskiptasjúkrahúss fyrir ofan Akra og gagnavers í Sólheimakotslandi, hvorutveggja verkefni sem vonir eru bundnar við að verði að veruleika þó ekkert sé öruggt í þeim efnum. Eitt stærsta byggingarfyrirtæki landsins, Ístak, hefur flutt höfuðstöðvar sínar í bæ- inn. Endurbætur í eldri hverfum»Unnin hefur verið viðamikil úttekt á ástandi eldri hverfa og kostnaðaráætlun gerð fyrir úrbætur þar sem þeirra er þörf. Næst á dagskrá er að forgangsraða þessum framkvæmdum og kynna áætlunina fyrir íbúum og fá fram viðhorf og skoð- anir þeirra. Íþrótta- og tómstundaþing með félögum bæjarins»Íþrótta- og tómstundaþing var haldið 17. mars sl. um íþróttir og tómstundir í bænum. Á síð- ustu árum hefur verið unnið að stefnumótun á sviði íþrótta- og tómstundamála. Til að ljúka því verki voru boðaðir saman fulltrúar félaga í Mosfellsbæ, foreldrar, forráðamenn og aðrir íbúar, sem áhuga hafa á íþrótta- og tómstundamálum að koma saman og ræða þessi mál. Áframhaldandi uppbygging Íþrótta- miðstöðvarinnar að Varmá og m.a. að tryggja með því viðunandi félagsaðstöðu.»Ákveðið hefur verið bygging nýs 1.200 fm íþróttasalar að Varmá með möguleika á 300 fm félagsaðstöðu. Þessi salur verður fyrst og fremst ætl- aður fyrir fimleika og bardagaíþróttir en mun í raun nýtast miklu fleiri íþróttagreinum því með tilkomu hans losnar um tíma í eldri sölum á Varmá. Viðhald á eldri byggingum bæjarins og umhverfi þeirra»Endurbótum á Brúarlandshúsinu er nú lokið og útlit hússins fært í upprunalegt horf ásamt því að húsið hýsir nú framhaldsskólann þar til nýtt húsnæði verður tekið í notkun. Endurbætur standa yfir á húsnæði Varmárskóla, í sumar verður eldri deildin klædd að utan og nýverið var tekin í notkun nýr sparkvöllur. Gerð hefur verið áætlun um endur- bætur á Hlégarði sem svo sannarlega þarfnast við- halds. Lóð Lágafellsskóla hefur verið endurgerð. Af ofansögðu má ljóst vera að heilmikið hefur áunn- ist á þeim tveimur árum sem liðin eru af kjörtíma- bilinu. Við frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins, í því góða samstarfi sem er við VG, munum halda ótrauð áfram við að gera góðan bæ betri. Það gengur vel í Mosfellsbæ Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mynd/RaggiÓla Fréttarit sjálfstæðismanna í mosfellsbæ Varmá

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.