Mosfellingur - 16.05.2012, Blaðsíða 32
- Aðsendar greinar28
Þjónusta við mosfellinga
hundaeftirlitið í mosfellsbæ
í mosfellsbæ búa nokkur hundruð
hundar af öllum stærðum og
gerðum. Þegar snjóa leysir,
kemur ýmislegt í ljós.
- eigendum hunda er skylt að þrífa
upp saur eftir þá, samkvæmt sam-
þykkt um hundahald í mosfellsbæ.
hundaeftirlitið í mosfellsbæ
hundaeftirlit@mos.is
Þjónustustöð s. 566 8450
WWW.ALAFOSS.IS
Á L A F O S S
Verslun, Álafossvegi 23
Tímapantanir í síma 517 6677
Alexía
Snyrtistofan
Í nógu verður að snúast í Bæjarleikhúsinu í sumar
eins og undanfarin sumur. Leikfélag Mosfellssveit-
ar býður upp á Leikgleði, fjölbreytt námskeið fyrir
börn á aldrinum 6-16 ára.
Námskeiðin hafa notið mikilla vinsælda og er nú
þegar að verða uppbókað á nokkur. Á námskeiðun-
um vinna nemendur með sjálfstraust, framkomu
og framsögn, sigrast á feimni og kynnast hinum
ýmsu þáttum sem snúa að leikhússtarfi.
Í lok hvers námskeiðs er sett upp sýning sem
hentar hverjum aldurshópi. Elsti hópurinn (13-16
ára) hefur undanfarin ár sett upp metnaðarfullan
söngleik. Í fyrra var söngleikurinn Hársprey settur á
svið og voru sýndar átta sýningar fyrir fullu húsi.
Færð þú hlutverk í stórmynd?
Laugardaginn 23. júní opnar leikhúsið dyrnar og
býður gestum að koma og skoða aðstöðuna, spjalla
við kennara og eldri nemendur, prófa leiklistarleiki
á sviðinu og grilla pylsur. Auk þess geta allir sem
hafa einhvern tímann sótt námskeið hjá Leikgleði,
eða eru að koma í fyrsta skipti í sumar, komið í
myndatöku og skráð sig hjá Leikgleði. Mörg fyrir-
tæki hafa haft samband við leikfélagið þegar þeim
vantar unga leikara í verkefni og því er kominn tími
til að safna öllum saman á skrá. Hver veit nema
einhver fái hlutverk í stórmynd í kjölfarið.
Allar nánari upplýsingar og skráning á nám-
skeiðin er á www.leikgledi.tk.
Getur þú, lesandi góður, gert þér í hugar-
lund tilfinninguna í fótunum ef þú setur
poppmaís í skóna þína og gengur svo um?
Þú upplifir örugglega sársauka frá popp-
maísnum sem ertir iljar og gerir þér erfitt
um gang.
Þessi samlíking er sett fram til að lýsa því
hvernig verkir í iljum/fótum geta verið, en
verkir eru eitt af fjölmörgum einkenn-
um MS-sjúkdómsins. Margir lýsa einnig
verkjum í fótum/iljum eins og að gengið
sé á oddhvössu grjóti eða glerbrotum. Mjög
einstaklingsbundið er hvernig sjúklingar
upplifa verkina. Það er erfitt að meðhöndla
taugaverki, verkjalyf duga skammt.
MS er sjúkdómur í miðtaugakerfi (heila
og mænu). Sjúkdómurinn einkennist af
köstum með bata á milli. Kast er oftast tímabund-
in versnun á einkennum eða ný einkenni láta á sér
kræla. Þreyta er það einkenni sem flestir finna allt-
af fyrir. Einkenni þeirra sem eru með MS (MULTI-
PLE SCLEROSIS) fara eftir því hvaða taugar verða
fyrir skaða, hvaða hluta heilans eða mænunnar
sjúkdómurinn ræðast á hverju sinni. MS-sjúkdóm-
urinn er oft kallaður sjúkdómurinn með 1000 and-
litin vegna þess að einkennin eru svo mismunandi
eftir því hvað taugar verða fyrir skaða. Dofi er ann-
að algengt einkenni sem og sjóntruflanir, kraftleysi,
jafnvægistruflanir og verkir.
Enn hefur ekki fundist lækning við MS og orsök
sjúkdómsins er ekki þekkt þó nokkrar kenningar
séu á lofti. MS er ekki arfgengur sjúkdóm-
ur og er ekki banvænn. Engin lyf lækna
MS, en á undanförnum 25-30 árum hafa
komið fram svo kölluð bremsulyf sem
hægja á framgangi sjúkdómsins með því
að stöðva köst.
Á Íslandi eru um 430 einstaklingar með
MS og flestir greinast fyrir 35 ára aldur.
MS-félag Íslands er hagsmunafélag MS-
sjúklinga og aðstandenda þeirra. Félag-
ið stendur fyrir öflugu kynningarstarfi,
heldur námskeið fyrir félagsmenn og
aðstandendur, stendur fyrir fræðslufyr-
irlestrum og útgáfu blaða og bæklinga.
MS-félagið reiðir sig á stuðning almenn-
ings, fyrirtækja og líknarfélaga til að geta
haldið úti starfsemi sinni.
Alþjóðlegur MS-dagur verður haldinn í fjórða
sinn miðvikudaginn 23. maí og er yfirskrift dagsins
1000 andlit MS, en megintilgangur alþjóðadagsins
er að fræða og upplýsa um sjúkdóminn.
Nú leitum við eftir stuðningi þínum við okkar
góða og þarfa starf. Með því að hringja í eitt af eft-
irtöldum númerum styrkir þú félagið um ákveðna
fjárhæð:
901 5010 – 1000 kr. styrkur
901 5030 – 3000 kr. styrkur
901 5050 – 5000 kr. styrkur
Stuðningur ykkar eflir okkar starf!
Berglind Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri MS félagsins
Lárus H. Jónsson (Lalli Ljóshraði)
1000 andlit MS
- með poppmaís í skónum!
Fimmtudaginn 31. maí mun dagþjónusta Skála-
túns vera með opið hús frá kl. 12 – 17.30. Þá
verður formlega tekin í notkun tvö skynörvun-
arherbergi í Skjólinu sem byggja á hugmynda-
fræði Snoezelen. Skynörvun gengur út á veru í
öruggu og rólegu umhverfi sem er sérhannað og
margbreytilegt. Markmið þess er að einstakling-
urinn njóti sín á sínum forsendum og fái notið
örvunar á skilningarvitum. Takmarkið er að örva
frumskynjunina þ.e.a.s. sjón, heyrn, snertingu og
lyktarskyn.
Starfsfólk Vinnustofunnar munu vera með
opna vinnustofu og kynna verkefni sín. Hand-
verksfólkið mun m.a. sýna vefnað og eins og áður
mun handverkið verða til sýnis og sölu.
opið hús í Dagþjónustu í skálatúni
leikgleði og opnar dyr í Bæjarleikhúsinu