Fréttablaðið - 28.02.2019, Síða 2

Fréttablaðið - 28.02.2019, Síða 2
Veður Suðaustan 8-15 sunnan og vestan til en mun hægari vindur norðan og austan til. Víða rigning um landið sunnan- og suðaustanvert, en ann- ars skýjað með köflum. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst og næturfrost í öllum landshlutum. SJÁ SÍÐU 38 Ég mun beita mér fyrir því á næstu vikum og mánuðum að það verði gert og að við leitum leiða til að koma betur til móts við þau börn sem þarna um ræðir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamála- ráðherra 100 þúsund krónur kosta gler- augu sem Úlfur gengur með. 19 klukkustunda umræðum lauk í gærkvöldi Þreytu var farið að gæta meðal þingmanna eftir maraþonumræðu í þinginu um frumvarp um af landskrónulosun. Umræður hófust í fyrradag og tóku yfir 19 klukkustundir. Mið f lokks menn segja að eftir gjöf með sam þykkt frum varpsins gæti hlaupið á tugum milljarða. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ALVÖRU MATUR Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM EFTIRLIT Vinnueftirlitið stöðvaði framkvæmdir í Urriðaholti eftir að í ljós kom að starfsmaður á krana var ekki með réttindi, þar að auki var aðbúnaður og öryggi starfs- manna ekki í samræmi við lög og reglur. Um er að ræða þriggja hæða raðhús á Hraungötu sem er á vegum U2-bygg ehf. Fram kemur í skoðunarskýrslu Vinnueftirlitsins frá því í síðustu viku að fallvörnum á verkpöllum sé ábótavant og óvarin bendiljárn fyrir neðan. Byggingarframkvæmdin var ekki tilkynnt og starfsmenn ekki með fullnægjandi salernisaðstöðu. Öll vinna er bönnuð á verkstað þangað til búið er að bæta úr. – ab Stöðvuðu framkvæmdir í Urriðaholti SKIPULAGSMÁL Íslandshótel hafa fengið heimild borgaryfirvalda til að auglýsa deiliskipulagsbreytingu um hækkun á Vonarstræti 4 og sex nýja kvisti á þakhæðinni. Vonarstræti 4, sem byggt var á 1925 og 1926 eftir teikningu Guð- jóns Samúelssonar á að tengjast nýrri byggingu Íslandshótela  í Lækjargötu 12. Í umsögn Minja- stofnunar segir að vel komi til greina að hækka mænishæðina enda sé húsið lágreist í samanburði við önnur verk Guðjóns. „Stærð og útfærsla kvistanna virðist sannfærandi á teikningu. Þeir draga úr sýnileika þakhækk- unar án þess þó að bera húsið ofurliði,“ segir Minjastofnun. Með breytingunni bætast við fjögur hótelherbergi. Frestur til að gera athugasemdir er til 9. apríl. – gar Hækka hús á Vonarstræti SAMFÉLAG Foreldrar barna sem þurfa sterk gleraugu til að lifa eðli- legu lífi þurfa oft á tíðum að greiða hátt verð fyrir hjálpartæki fyrir börn sín og fá afar litla aðstoð frá hinu opinbera. Lára Kristín Jónsdóttir, móðir Úlfars Hólmgeirssonar, segir það skjóta skökku við að greiða háar upphæðir fyrir gleraugu á meðan til dæmis heyrnartæki fyrir börn eru greidd að fullu úr ríkissjóði. Hún segir málið snúast um mann- réttindi. „Úlfar þarf á gleraugum að halda til þess að geta tekið þátt í daglegu lífi. Það eru mannréttindi að börn geti fengið að lifa eðlilegu lífi og fjárhagsleg staða foreldra á ekki að skipta máli þegar kemur að því,“ segir Lára Kristín og heldur áfram. „Sonur minn er með það slæma sjón að hann getur lítið sem ekkert gert án gleraugna.“ Úlfar stundar sund og eftir að hafa fengið sundgleraugu við hæfi getur hann stundað íþrótt sína af kappi. „En það þýðir líka að við erum að eyða rúmlega eitt hundrað þúsund krónum í gleraugu. Heim- ilisbókhaldið okkar ræður við þetta,“ segir Lára Kristín, „en efna- minni foreldrar gætu átt í miklum erfiðleikum með að greiða þetta.“ Samkvæmt reglugerð frá árinu 2005 eiga öll börn rétt á gleraugna- endurgreiðslum að átján ára aldri. Í reglugerðinni voru upphæðir ákveðnar og hafa þær ekki tekið breytingum síðan. Á tæpum 15 árum hefur mikið vatn runnið til sjávar og gleraugu hækkað í verði líkt og allt annað hér á landi. Til stendur innan félagsmála- ráðuney tisins að laga þett a. Ekki sé komið til móts við þarfir allra barna Endurgreiðslur vegna gleraugna barna hafa ekki breyst í hálfan annan áratug. Á sama tíma hefur kostnaður við gleraugnakaup hækkað gríðarlega. Félags- málaráðherra vinnur að breytingum í málefninu og endurskoðun upphæðar. Lára Kristín Jónsdóttir og sonur hennar Úlfar Hólmgeirsson sem þarf á sterkum gleraugum að halda til að lifa eðlilegu lífi. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, segir vinnu í gangi í ráðuneytinu. „Ég held að ástæða sé til að að flýta þeirri vinnu eins og kostur er. Ég mun beita mér fyrir því á næstu vikum og mán- uðum að það verði gert og að við leitum leiða til að koma betur til móts við þau börn sem þarna um ræðir,“ segir ráðherrann. sveinn@frettabladid.is Vonarstræti 4 stendur gegnt Iðnó. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 2 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 8 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 3 -9 4 9 8 2 2 7 3 -9 3 5 C 2 2 7 3 -9 2 2 0 2 2 7 3 -9 0 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 2 7 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.