Fréttablaðið - 28.02.2019, Qupperneq 12
Ef sveitarfélögin
taka ekki þátt í
þessari vinnu er auðséð að
Barnasáttmálinn verður
aldrei innleidd-
ur hér á landi.
Hjördís Eva
ÞórðardóttirSú skylda hvílir á öllum aðildar r ík ju m Bar na-sáttmálans að innleiða hann og er sú krafa meðal annars lögð á aðildar-ríkin í Barnasáttmálan-
um sjálfum. Ríki sem hafa fullgilt
sáttmálann eiga að gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að gera for-
sendur sáttmálans að veruleika.
Til að fylgja þessu eftir ber öllum
aðildarríkjum sáttmálans skylda
til að senda Barnaréttarnefnd Sam-
einuðu þjóðanna skýrslu um stöðu
innleiðingar sáttmálans á fimm ára
fresti. Í kjölfarið fara stjórnvöld við-
komandi ríkja í úttekt hjá nefndinni
sem gefur í framhaldinu út skýrslu
um stöðu innleiðingar Barnasátt-
málans.
„Íslensk stjórnvöld sendu skýrslu
til nefndarinnar bara í þarsíðustu
viku,“ segir Hjördís Eva Þórðar-
dóttir, teymisstjóri innanlands-
verkefna UNICEF á Íslandi. „Íslensk
stjórnvöld standa vissulega framar-
lega þegar kemur að velferð barna,
þrátt fyrir það hefur nefndin gert
athugasemdir við innleiðingu
Barnasáttmálans hér á landi. Ein sú
alvarlegasta er án alls vafa að hér á
landi er ekki til staðar nein heild-
stæð stefnumótun um hvernig eigi
að innleiða sáttmálann og ríkið
hefur ekki átt í neinu samtali við
sveitarfélögin um það hvernig þau
geti tekið þátt í innleiðingarvinn-
unni. Ef sveitarfélögin taka ekki
þátt í þessari vinnu er auðséð að
Barnasáttmálinn verður aldrei
innleiddur hér á landi, þar sem þau
stýra stærstum hluta af öllu starfi
sem hefur áhrif á daglegt líf barna.“
Til að hægt sé að innleiða Barna-
sáttmálann þarf að fylgja þeim
viðmiðum sem Barnaréttarnefnd
Sameinuðu þjóðanna hefur sett
fyrir innleiðingu hans. Þau viðmið
eru skýr og kalla meðal annars á
heildstæða stefnumótun um mál-
efni barna þar sem sérstaklega er
horft til viðkvæmustu hópa barna.
Hjördís Eva segir að íslensk stjórn-
völd þurfi að setja sér skilvirkari
markmið um innleiðingu Barna-
sáttmálans og sú stefna þurfi að
innihalda áætlun um það hvernig
sveitarfélögin koma inn í þá vinnu.
„Við hjá UNICEF höfum hannað
innleiðingarlíkan fyrir sveitar-
félög sem heitir Barnvæn sveitar-
félög, barnvaensveitarfelog.is, sem
aðstoðar sveitarfélög við að inn-
leiða Barnasáttmálann. Þar er búið
að skipta innleiðingarferlinu upp
í skref sem sveitarfélög geta stigið
Stjórnvöld þurfi
heildstæðari stefnu
í málefnum barna
Sex ár eru liðin síðan Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var lögfestur
hér á landi en enn hefur sáttmálinn ekki verið innleiddur. Ísland hefur
fengið athugasemd frá Sameinuðu þjóðunum um að hafa enga heild-
stæða stefnumótun. Þörf er á samtali milli ríkis og sveitarfélaga til að
framkvæma innleiðingu ella verði samningurinn aldrei innleiddur.
markvisst til að innleiða Barna-
sáttmálann með mark vissum
hætti. Við hófum vinnu við þetta
líkan með Akureyrarbæ sem hefur
nú samþykkt aðgerðaáætlun fyrir
innleiðingu Barnasáttmálans. Sú
áætlun er mjög metnaðarfull og
umfangsmikil og mun ná til næstu
tveggja ára,“ segir Hjördís Eva.
„Þegar Akureyri hefur uppfyllt
þessa aðgerðaáætlun munu þau
fara í úttektarferli hjá UNICEF
sem mun leiða til þess að þau geti
öðlast viðurkenningu frá UNICEF
á Íslandi sem Barnvænt sveitar-
félag, ef þau uppfylla forsendur
úttektarinnar. Við erum einnig í
samstarfi við Kópavog sem vinnur
hörðum höndum að þessu verk-
efni, en þau eru núna í þeim fasa að
kortleggja Barnasáttmálann í Kópa-
vogi og munu í kjölfarið búa til sína
aðgerðaáætlun fyrir innleiðingu
Barnasáttmálans. Það er mikil
ánægja sem fylgir því að vinna með
þessum tveimur sveitarfélögum
sem hafa svo mikinn eldmóð fyrir
því að innleiða Barnasáttmálann
í allt stjórnkerfi sitt. Vinna þeirra
er að ryðja brautina fyrir f leiri
sveitarfélög en við hjá UNICEF
erum komin með langan biðlista af
sveitarfélögum sem vilja vinna að
innleiðingu Barnasáttmálans með
okkur. Markmiðið er að í gegnum
þetta verkefni verði öll sveitarfélög
á Íslandi barnvæn sveitarfélög.“
Félags- og barnamálaráðherra,
Ásmundur Einar Daðason, vinnur
nú að því að endurskoða þjónustu
fyrir börn á Íslandi í samstarfi við
fleiri ráðuneyti. Ráðherrann hefur
lýst yfir miklum vilja til að vinna
samhliða þeirri vinnu að innleið-
ingu Barnasáttmálans. „Við höfum
mikla trú á að sú vinna muni stuðla
að markvissari vinnu við að inn-
leiða sáttmálann og að félags- og
barnamálaráðherra muni skipta
sköpum fyrir innleiðingu Barna-
sáttmálans,“ segir Hjördís Eva.
Hvaða þýðingu hefur það fyrir
börn á Íslandi að sáttmálinn
verði innleiddur?
„Það hefur gríðarlega mikla
þýðingu fyrir öll börn á Íslandi að
unnið sé með markvissum hætti
að innleiðingu Barnasáttmálans.
Það er aldrei hægt að segja að
mannréttindasáttmáli hafi verið
að fullu innleiddur, samfélagið
okkar er alltaf að breytast og
nýjar áskoranir að koma upp.
Hins vegar á Barnasáttmálinn
að vera eins og vitinn sem við
stefnum að, þangað eigum við
að vera markvisst að vinna að
því að komast. Markviss inn
leiðing Barnasáttmálans tryggir
að viðkvæmustu hópar barna í
samfélaginu okkar séu sýnilegir,
að stefnumótun stjórnvalda
byggi á því að bæta aðstæður
þeirra með markvissum hætti,
tryggir að Barnasáttmálinn sé
nýttur sem gæðastjórnunartæki
við allar ákvarðanir og stefnu
mótun sem stjórnvöld fara í, að
börn fái tækifæri til að vera virkir
þátttakendur í samfélaginu sem
við búum í og að við séum mark
visst að rýna í samfélagið okkar
út frá grundvallarforsendum
barnasáttmálans, jafnræðisfor
sendunni, hvað barninu sé fyrir
bestu, rétti barnsins til lífs og
þroska og rétti barnsins til að
taka þátt í samfélaginu og hafa
áhrif.“
Hvers vegna hefur Barnasátt-
málinn ekki verið innleiddur
enn?
„Það er mjög góð spurning,
sem ég vildi að ég vissi svarið
við. Kannski erum við værukær
vegna þess að í alþjóðlegum
samanburði komum við á Íslandi
mjög vel út. Flest börn hér á
landi hafa það gott, það þýðir
hins vegar ekki að við megum
sofa á verðinum. Hér á landi er
fjöldi barna sem eru í viðkvæmri
stöðu, til dæmis verða þúsundir
barna á Íslandi fyrir kynferðis
legu eða líkamlegu ofbeldi, það
mætti gera margt til að bæta
stöðu barna sem sækja um
alþjóðlega vernd hér á landi og
geðheilbrigði og líðan ungl
inganna okkar fer versnandi. Það
er því virkilega þörf fyrir að við
horfum okkur nær.
Aðstæður barna á Íslandi
eru að flestu leyti mjög góðar,
Barnaréttarnefnd Sameinuðu
þjóðanna hefur því gefið íslensk
um stjórnvöldum nokkuð góða
einkunn í fyrirtökum sínum hjá
nefndinni. En við síðustu fyrir
tökur benti nefndin íslenskum
stjórnvöldum á að það væri mikil
þörf fyrir að þau færu að sinna
vinnunni við innleiðingu Barna
sáttmálans með markvissari
hætti. Aðrar þjóðir líta til landa
eins og Íslands þegar kemur að
innleiðingu Barnasáttmálans og
við þurfum því að taka það hlut
verk mjög alvarlega. Við erum
eitt af þeim löndum sem eiga
að draga lestina þegar kemur að
mannréttindum barna. Til þess
þurfum við að nálgast þá vinnu
með mun markvissari hætti
en við höfum gert og standa
okkur mun betur við að lyfta
stöðu viðkvæmustu barnanna
í íslensku samfélagi fram og
nýta tölfræðigögn og upplifun
og reynslu barnanna til þess að
vinna með markvissum hætti
að því að bæta stöðu þessara
barna.“
Gunnþórunn
Jónsdóttir
gunnthorunn@frettabladid.is
Lítur mjög til sáttmálans í sínum störfum
Barnasáttmálinn er lifandi skjal
og því verður aldrei hægt að
segja að innleiðingu hans sé
lokið að fullu. Barnaverndar
stofa lítur mjög til sáttmálans
í sínum störfum, bæði þegar
teknar eru ákvarðanir í ein
staka málum og eins við þróun
þjónustu og mótun stefnu í
málefnum barna.
Barnasáttmálinn er gríðar
lega mikilvægur í öllum
störfum sem varða börn, ekki
síst í viðkvæmum málaflokki
eins og barnavernd. Mikilvægt
er að það sem barni er fyrir
bestu sé ávallt í forgrunni alls
barnaverndarstarfs, bæði í
málum tiltekinna barna og þeg
ar teknar eru stefnumótandi
ákvarðanir. Sama gildir um að
fá fram sjónarmið barns og að
börn fái að taka þátt í málum
sem þau varða og við að móta
þjónustu og taka stefnumót
andi ákvarðanir í málaflokkum
sem varða þau.
Heiða Björg Pálmadóttir
forstjóri Barnaverndarstofu
TILVERAN
2 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
3
-B
7
2
8
2
2
7
3
-B
5
E
C
2
2
7
3
-B
4
B
0
2
2
7
3
-B
3
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K