Fréttablaðið - 28.02.2019, Blaðsíða 19
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG
Reykjavík – Kosningar eru ær og kýr lýðræðisins ásamt frjálsum fjölmiðlum og
óháðum dómstólum. Tökum
Bandaríkin, elzta lýðræðis-
ríki heims. Þar er fulltrúadeild
þingsins í Washington kosin öll
eins og hún leggur sig annað hvert
ár. Fjöldi kjörinna fulltrúa hvers
ríkis fer eftir íbúafjölda. Forseti
landsins er kjörinn á fjögurra ára
fresti og fær ekki að sitja lengur en
tvö kjörtímabil. Öldungadeildar-
þingmenn eru kjörnir til sex ára
í senn, tveir frá hverju ríki óháð
íbúafjölda, og er þriðjungur þeirra
kjörinn annað hvert ár.
Að rétta hlut sinn
Þeir sem telja sig bera skarðan hlut
frá borði geta reynt að rétta hlut
sinn í kjörklefanum og gera það
iðulega.
Kosningar eru eina færa leiðin
sem fólkið hefur til að breyta
stefnu stjórnvalda, til að rétta
kúrsinn. Reynslan sýnir þó að
leiðin er torfær vestra enda er
kosningaþátttaka almennings
eftir því lítil þar borið saman við
Evrópu. Bandarískir stjórnmála-
fræðingar og sagnfræðingar hafa
að undanförnu birt bók eftir bók
til að afhjúpa brestina í lýðræðis-
skipan landsins sem höfundar
stjórnarskrárinnar reyndu að gera
sem bezt úr garði 1787 með góðum
árangri þar til nýlega að fölva
hefur slegið á stjórnarskipunina.
Það sést m.a. á því að tveir af síð-
ustu þrem forsetum landsins náðu
kjöri þótt höfuðandstæðingar
þeirra fengju mun fleiri atkvæði á
landsvísu.
Kjörnir fulltrúar hafa vanrækt
hagsmunamál almennings. Kaup-
máttur venjulegra launa hefur
staðið í stað áratug fram af áratug,
kostnaður heilbrigðisþjónustu og
háskólamenntunar hefur rokið
upp úr öllu valdi, skólum hrakar
og aðrir innviðir grotna niður.
Fólkið vill þetta auðvitað ekki,
en samt gerist það. Fórnarlömb
ófarnaðarins fá ekki rönd við reist.
Þessi lýsing á við um Bandaríkin
og sumpart einnig um Bretland en
ekki um Evrópu yfirleitt nema að
litlu leyti. Bandaríkin og einnig
Bretland að minna leyti hafa leyft
misskiptingu auðs og tekna að
ágerast umfram Evrópulöndin á
meginlandinu þar sem reynt hefur
verið að sporna gegn misskiptingu
þótt hún hafi einnig ágerzt þar.
Misskipting ógnar lýðræði
Vanda Bandaríkjanna má að
nokkru leyti rekja til þess að auð-
menn hafa hert undirtökin í efna-
hagslífi landsins og einnig á vett-
vangi stjórnmálanna. Steininn tók
úr 2010 þegar Hæstiréttur felldi
úr gildi með eins atkvæðis mun
– fimm atkvæðum gegn fjórum!
– allar hömlur á fjárframlög til
stjórnmálastarfsemi með þeim
rökum að það heyri til mann-
réttinda að fá að kaupa sér atfylgi
stjórnmálamanna. Peningar tóku
völdin í boði Hæstaréttar. Síðan
hefur lýðræði í Bandaríkjunum
hnignað smám saman skv. við-
teknum mælikvörðum. Öll Vestur-
Evrópulönd og m.a.s. nokkur fv.
kommúnistaríki, þ. á m. Eistland,
Lettland og Litháen, státa nú af
stöndugra lýðræði en Bandaríkin.
Bandaríski hæstaréttardómar-
inn Louis Brandeis (1856-1941)
greindi vandann. Hann sagði: „Við
getum haft lýðræði í þessu landi
eða við getum haft mikinn auð á
Völd hinna valdalausu
fárra höndum en við getum ekki
haft hvort tveggja.“
Sagan gæti endurtekið sig
Hér heima virðist nú stefna í löngu
fyrirsjáanleg verkföll. Átökin á
vinnumarkaði nú eru sprottin
úr jarðvegi misskiptingar og
hnignandi lýðræðis. Að þessu leyti
svipar Íslandi frekar til Banda-
ríkjanna og Bretlands en t.d. til
annarra Norðurlanda þar sem allt
er með kyrrum kjörum. Á Íslandi
býr margt fólk sem telur sig bera
skarðan hlut frá borði. Þessu fólki
hefur ekki tekizt að rétta hlut
sinn við kjörborðið. Því býst það
nú til að reyna að rétta hlut sinn í
kjarasamningum svo sem óbreytt
vinnumarkaðslöggjöf frá 1938
veitir færi á. Það býst til að beita
samtakamætti sínum til að knýja
fram leiðréttingu sinna mála. Þessi
kostur er ekki í boði í Bandaríkj-
unum þar sem miðstýringu kjara-
samninga hefur aldrei verið til að
dreifa og ekki heldur í Bretlandi
þar sem horfið var frá miðstýringu
eftir 1980. Leiði vinnudeilurnar
nú til ríkisstjórnarslita og nýrra
alþingiskosninga, þá mun margt
af þessu fólki væntanlega skoða
það sem velkominn kaupauka úr
því að ríkisstjórnin og Alþingi hafa
vanrækt hagsmuni láglaunafólks
og gefið lýðræðinu langt nef.
Sagan geymir hliðstæð dæmi um
stjórnarslit vegna ágreinings um
kaup og kjör. Hermann Jónas-
son forsætisráðherra fór á fund
Alþýðusambandsins 1958 til að
biðja menn þar að fresta umsam-
inni kauphækkun. Beiðninni var
hafnað með yfirgnæfandi meiri
hluta. Ríkisstjórn Hermanns fór frá.
Svipað gerðist 1974 þegar Ólafur
Jóhannesson forsætisráðherra rauf
þing og boðaði til þingkosninga
eftir að Björn Jónsson ráðherra, í
leyfi frá starfi sínu sem forseti ASÍ,
sagði sig úr stjórninni og felldi hana
vegna ágreinings um kjaramál.
Dansleikur!
Í tilefni af 30 ára afmæli okkar og bjórsins á Íslandi gerum
við okkur glaðan dag. Kringlukráin hefur selt Egils Gull frá
upphafi. 1. mars bjóðum við því Gull á krana á 30 ára gömlu
verði, aðeins 350 kr.
Afmælistilboð á mat um helgina.
fagna afmælinu með okkur um helgina,
bæði föstudags og laugardagskvöld.
Dansleikur kl.23:00 til 02:00
1989 2019
Léttöl
Geirmundur Valtýsson
og hljómsveit
á Kringlukránni
1. til 3. mars
Afmælishelgi
FRÍTT INNFÖSTUDAGSKVÖLD
stór Gull
350 kr.allan daginn til kl. 23:0030 ára gamallt verð!
Kringlan 4-12 Reykjavík www.kringlukrain.is
30
ár
ÞÖKKUM
VIÐSKIPT
IN Í
30 ÁRA AFMÆLI
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F I M M T U D A G U R 2 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9
2
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
7
3
-A
D
4
8
2
2
7
3
-A
C
0
C
2
2
7
3
-A
A
D
0
2
2
7
3
-A
9
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K