Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.02.2019, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 28.02.2019, Qupperneq 19
Þorvaldur Gylfason Í DAG Reykjavík – Kosningar eru ær og kýr lýðræðisins ásamt frjálsum fjölmiðlum og óháðum dómstólum. Tökum Bandaríkin, elzta lýðræðis- ríki heims. Þar er fulltrúadeild þingsins í Washington kosin öll eins og hún leggur sig annað hvert ár. Fjöldi kjörinna fulltrúa hvers ríkis fer eftir íbúafjölda. Forseti landsins er kjörinn á fjögurra ára fresti og fær ekki að sitja lengur en tvö kjörtímabil. Öldungadeildar- þingmenn eru kjörnir til sex ára í senn, tveir frá hverju ríki óháð íbúafjölda, og er þriðjungur þeirra kjörinn annað hvert ár. Að rétta hlut sinn Þeir sem telja sig bera skarðan hlut frá borði geta reynt að rétta hlut sinn í kjörklefanum og gera það iðulega. Kosningar eru eina færa leiðin sem fólkið hefur til að breyta stefnu stjórnvalda, til að rétta kúrsinn. Reynslan sýnir þó að leiðin er torfær vestra enda er kosningaþátttaka almennings eftir því lítil þar borið saman við Evrópu. Bandarískir stjórnmála- fræðingar og sagnfræðingar hafa að undanförnu birt bók eftir bók til að afhjúpa brestina í lýðræðis- skipan landsins sem höfundar stjórnarskrárinnar reyndu að gera sem bezt úr garði 1787 með góðum árangri þar til nýlega að fölva hefur slegið á stjórnarskipunina. Það sést m.a. á því að tveir af síð- ustu þrem forsetum landsins náðu kjöri þótt höfuðandstæðingar þeirra fengju mun fleiri atkvæði á landsvísu. Kjörnir fulltrúar hafa vanrækt hagsmunamál almennings. Kaup- máttur venjulegra launa hefur staðið í stað áratug fram af áratug, kostnaður heilbrigðisþjónustu og háskólamenntunar hefur rokið upp úr öllu valdi, skólum hrakar og aðrir innviðir grotna niður. Fólkið vill þetta auðvitað ekki, en samt gerist það. Fórnarlömb ófarnaðarins fá ekki rönd við reist. Þessi lýsing á við um Bandaríkin og sumpart einnig um Bretland en ekki um Evrópu yfirleitt nema að litlu leyti. Bandaríkin og einnig Bretland að minna leyti hafa leyft misskiptingu auðs og tekna að ágerast umfram Evrópulöndin á meginlandinu þar sem reynt hefur verið að sporna gegn misskiptingu þótt hún hafi einnig ágerzt þar. Misskipting ógnar lýðræði Vanda Bandaríkjanna má að nokkru leyti rekja til þess að auð- menn hafa hert undirtökin í efna- hagslífi landsins og einnig á vett- vangi stjórnmálanna. Steininn tók úr 2010 þegar Hæstiréttur felldi úr gildi með eins atkvæðis mun – fimm atkvæðum gegn fjórum! – allar hömlur á fjárframlög til stjórnmálastarfsemi með þeim rökum að það heyri til mann- réttinda að fá að kaupa sér atfylgi stjórnmálamanna. Peningar tóku völdin í boði Hæstaréttar. Síðan hefur lýðræði í Bandaríkjunum hnignað smám saman skv. við- teknum mælikvörðum. Öll Vestur- Evrópulönd og m.a.s. nokkur fv. kommúnistaríki, þ. á m. Eistland, Lettland og Litháen, státa nú af stöndugra lýðræði en Bandaríkin. Bandaríski hæstaréttardómar- inn Louis Brandeis (1856-1941) greindi vandann. Hann sagði: „Við getum haft lýðræði í þessu landi eða við getum haft mikinn auð á Völd hinna valdalausu fárra höndum en við getum ekki haft hvort tveggja.“ Sagan gæti endurtekið sig Hér heima virðist nú stefna í löngu fyrirsjáanleg verkföll. Átökin á vinnumarkaði nú eru sprottin úr jarðvegi misskiptingar og hnignandi lýðræðis. Að þessu leyti svipar Íslandi frekar til Banda- ríkjanna og Bretlands en t.d. til annarra Norðurlanda þar sem allt er með kyrrum kjörum. Á Íslandi býr margt fólk sem telur sig bera skarðan hlut frá borði. Þessu fólki hefur ekki tekizt að rétta hlut sinn við kjörborðið. Því býst það nú til að reyna að rétta hlut sinn í kjarasamningum svo sem óbreytt vinnumarkaðslöggjöf frá 1938 veitir færi á. Það býst til að beita samtakamætti sínum til að knýja fram leiðréttingu sinna mála. Þessi kostur er ekki í boði í Bandaríkj- unum þar sem miðstýringu kjara- samninga hefur aldrei verið til að dreifa og ekki heldur í Bretlandi þar sem horfið var frá miðstýringu eftir 1980. Leiði vinnudeilurnar nú til ríkisstjórnarslita og nýrra alþingiskosninga, þá mun margt af þessu fólki væntanlega skoða það sem velkominn kaupauka úr því að ríkisstjórnin og Alþingi hafa vanrækt hagsmuni láglaunafólks og gefið lýðræðinu langt nef. Sagan geymir hliðstæð dæmi um stjórnarslit vegna ágreinings um kaup og kjör. Hermann Jónas- son forsætisráðherra fór á fund Alþýðusambandsins 1958 til að biðja menn þar að fresta umsam- inni kauphækkun. Beiðninni var hafnað með yfirgnæfandi meiri hluta. Ríkisstjórn Hermanns fór frá. Svipað gerðist 1974 þegar Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra rauf þing og boðaði til þingkosninga eftir að Björn Jónsson ráðherra, í leyfi frá starfi sínu sem forseti ASÍ, sagði sig úr stjórninni og felldi hana vegna ágreinings um kjaramál. Dansleikur! Í tilefni af 30 ára afmæli okkar og bjórsins á Íslandi gerum við okkur glaðan dag. Kringlukráin hefur selt Egils Gull frá upphafi. 1. mars bjóðum við því Gull á krana á 30 ára gömlu verði, aðeins 350 kr. Afmælistilboð á mat um helgina. fagna afmælinu með okkur um helgina, bæði föstudags og laugardagskvöld. Dansleikur kl.23:00 til 02:00 1989 2019 Léttöl Geirmundur Valtýsson og hljómsveit á Kringlukránni 1. til 3. mars Afmælishelgi FRÍTT INNFÖSTUDAGSKVÖLD stór Gull 350 kr.allan daginn til kl. 23:0030 ára gamallt verð! Kringlan 4-12 Reykjavík www.kringlukrain.is 30 ár ÞÖKKUM VIÐSKIPT IN Í 30 ÁRA AFMÆLI S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F I M M T U D A G U R 2 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 2 8 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 7 3 -A D 4 8 2 2 7 3 -A C 0 C 2 2 7 3 -A A D 0 2 2 7 3 -A 9 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 2 7 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.