Fréttablaðið - 28.02.2019, Qupperneq 28
Sköpunar-
kraftinum
halda engin
bönd þegar
kemur að
heillandi lita-
dýrð.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Það er ágætt að koma sér upp skemmtilegri dekurrútínu til að gera tásurnar ómótstæði-
legar. Leyfa uppáhaldstónlistinni
að líða um hlustirnar og skapa
aðstæður sem valda vellíðan og
gleði.
Til að halda tánöglunum fal-
legum og heilbrigðum er gott að
bera á þær vaselín, möndluolíu
eða shea butter. Það mýkir þær og
heldur naglaböndunum fínum.
Til að fjarlægja gamalt naglalakk
er ráðlegt að nota naglalakkseyði
án asetons þar sem aseton þurrkar
neglurnar og getur gert þær
hrjúfari. Þá er bíótín gott B-víta-
mín fyrir neglur og táneglur.
Gott er að klippa táneglurnar
vikulega. Langar táneglur eru
óþægilegar í skóm og auka líkur á
að neglurnar klofni, og of stuttar
neglur auka hættu á inngrónum
tánöglum. Klipptu þær líka beint í
stað þess að hafa þær bogadregnar
til að varna inngróningi. Þegar
notuð er naglaþjöl á táneglurnar
skal ávallt strjúka í eina átt til að
varna sprungum og því að þær
verði skörðóttar. Aldrei skal klippa
naglaböndin því hlutverk þeirra
er að varna húðsýkingum. Þá er
sniðugt að nota tannbursta til að
hreinsa undir tánöglum. Setja
svolitla sápu í tannburstann í
sturtunni og skrúbba neglurnar
varlega. Til að lýsa þær aðeins er
ráð að nota á þær tannkrem.
Lakkað af list
Þegar kemur að því að naglalakka
tásurnar er fyrsta vers að ýta
naglaböndunum varlega niður og
bera svo grunnlakk á táneglurnar.
Það skapar sterkara undirlag á
milli naglar og naglalakks og eykur
endingu verksins. Grunnlakk ver
neglurnar líka fyrir blettum þegar
naglalakkið er fjarlægt.
Berið á naglalakk að eigin vali
Töfrandi og
sætar tásur
Vel naglalakkaðar tásur eru skvísuleg-
ar og kvenlegt að sjá glitrandi neglur
gægjast fram á fallegum fæti. í þremur strokum og byrjið í miðjunni en síðan út til hliðanna.
Setjið vel í pensilinn og dreifið
naglalakkinu yfir neglurnar af
natni. Að síðustu er borið á yfir-
lakk til að auka gljáa og endingu.
Fjarlægið mistök með bréf-
þurrku eða litlum bursta og notið
naglalakkseyði til að hreinsa burt
naglalakk sem smitaðist út fyrir.
Varist að fara með tærnar í heitt
vatn eftir að hafa lakkað tánegl-
urnar. Það getur valdið því að
neglurnar þenjist út og sprungur
komi í lakkið.
Það er gaman að geta valið úr
litadýrð naglalakka og lakka
tærnar í stíl við fatnað eða tilefni
hverju sinni. Mundu að glitrandi
naglalakk endist lengur á tánögl-
unum en annað.
Notið naglalakk sem er „three-
free“. Það þýðir að naglalakkið
inniheldur ekki formaldehýð,
tólúen eða þalöt, sem allt eru
skaðleg efni.
Málið táneglurnar í stíl við
persónuleikann. Ef feimin, er
kannski ekki málið að vera
með neon appelsínugult nagla-
lakk, en allir geta fundið sinn stíl
fyrir töfrandi táneglur.
Það er gaman að vera skapandi
og hanna eigin munstur á tánegl-
urnar. Límmiðar og límbönd eru
tilvalin til þess. Setjið þá grunn-
lakk á neglurnar og látið þorna
vel. Notið límmiða eða límband
til skapa munstur í öðrum lit, til
dæmis línur, stjörnur eða
að skipta nöglinni
með sitt hvorum
litnum frá
miðju.
For Porter, body advocate,
makes confidence possible.
#MAKEITPOSSIBLE
Tommy Hilfiger úrin fást
hjá eftirtöldum verslunum:
GÞ. skartgripir & úr, Bankastræti 12, Michelsen úrsmiðir, Kringlunni 8-12,
Jón & Óskar, Laugavegi 61, Jón&Óskar Kringlunni 8-12, Jón&Óskar Smáralind.
Meba Kringlunni 8-12 og Meba Smáralind. Klukkan Hamraborg.
Halldór Ólafsson Glerártorgi Akureyri. Klassík Egilstöðum.
Guðmundur B. Hannah Akranesi. Karl R. Guðmundsson Selfossi.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
2
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
3
-C
1
0
8
2
2
7
3
-B
F
C
C
2
2
7
3
-B
E
9
0
2
2
7
3
-B
D
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K