Fréttablaðið - 28.02.2019, Side 30
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Útfararþjónustan var stofnuð árið 2002 af hjónunum Hálfdáni Hálfdánarsyni og
Ólöfu Helgadóttur. Árið 2015 bætt-
ist Frímann Andrésson í hópinn en
hann hefur starfað við útfarir í 24
ár. Í fyrstu hét fyrirtækið Útfarar-
þjónusta Hafnarfjarðar en því
var breytt í Frímann og Hálfdán
– útfararþjónusta enda þjónusta
þeir allt höfuðborgarsvæðið og
nærliggjandi sveitarfélög.
„Fyrirtækið byrjaði sem lík-
kistuvinnustofa. Við bæði fram-
leiðum og flytjum inn vandaðar
líkkistur sem við seljum um allt
land. Hálfdán er menntaður smið-
ur og sér um vinnustofuna, Ólöf
er með bókhald og saumastofu.
Við sérsaumum sængur og kodda
ásamt fóðri í kisturnar. Sjálfur tek
ég á móti fólki og aðstoða við allt
er viðkemur útförinni og saman
sinnum við svo athöfnunum,“
útskýrir Frímann. „Sérstaða fyrir-
tækisins er sú að við bjóðum allt á
einum stað og leggjum okkur fram
um að öll umgjörð sé í lagi, jafnt
viðmót sem öryggi, fagmennska
og snyrtimennska. Þá erum við
alltaf með nýja og fallega bíla í
okkar þjónustu,“ segir Frímann
og bendir á að nýr Cadillac líkbíll
hafi verið keyptur fyrir rúmu ári
og í byrjun mánaðarins hafi verið
skipt út Ford líkflutningabifreið
til að sjá um flutning af dánar-
stað.
Hann segir að sjálfar athafn-
irnar séu yfirleitt svipaðar í
uppsetningu. „Annaðhvort
er kista jarðsett í kirkjugarði
eða það er bálför en þær hafa
aukist mjög mikið á undan-
förnum árum. Bálfarir
eru núna um
helmingur
útfara. Mér
sýnist að fólk á
öllum aldri sé farið að huga frekar
að bálför þegar tíminn kemur. Þá
eru margir sem óska þess að duft-
ker verði jarðsett í leiði nákomins
ættingja. Það hefur t.d. færst í
vöxt að duftker séu grafin í gamla
kirkjugarðinum við Suðurgötu og í
Fossvogskirkjugarði,“ upplýsir Frí-
mann og bætir við að allt að átta
duftker komist fyrir í kistuleiði
þannig að úr verði fjölskyldugraf-
reitur. Svo eru auðvitað duftreitir
í f lestum kirkjugörðum sem eru
eingöngu fyrir duftker.
Veita fyrstu aðstoð
Útfararþjónustan er staðsett
í Stapahrauni 5 í Hafnarfirði.
Þar er góð aðstaða til að taka á
móti aðstandendum hins látna.
Frímann segir að hann fari líka
heim til fólks sé þess óskað. Oft
þarf að sinna mörgum aðkallandi
málum en Frímann er vanur því að
umgangast fólk á sorgarstundum.
Hann segir að starfið geti oft verið
erfitt, sérstaklega þegar fólk fellur
frá í blóma lífsins. „Fólk getur
alltaf hringt til okkar og
fengið upplýsingar,“ segir
Frímann og bætir
við að þeir
komi
á dánarstað og veiti fyrstu aðstoð.
Stundum þurfi að flytja hinn látna
í heimabyggð hafi hann látist
fjarri henni.
Líkkistur og duftker
Frímann segir að það geti verið
mikill munur á kistum eftir
útfararþjónustum. „Við erum með
töluvert úrval og góðar upplýs-
ingar á heimasíðunni okkar uth.is.
Fólk gerir sér auðvitað ekki grein
fyrir gæðamuni á líkkistum en
það er gott að kynna sér málin. Við
leggjum mikla áherslu á að vera
með vandaða vöru,“ segir hann.
„Fyrir nokkrum árum var reglum
breytt þannig að nú má bara hafa
lítið magn málms í kistunum,
hvort heldur valin er bálfarar-
leiðin eða jarðsetning kistu. Við
aðstoðum fólk við valið og veitum
persónulega þjónustu. Auk þess
erum við með fjölbreytt úrval
duftkera. Algengust
eru vist-
væn duftker sem eyðast í jarðveg-
inum á nokkrum árum. Hugsunin
er sú að askan og kerið samlagist
moldinni á umhverfisvænan hátt.“
Öll þjónusta á einum stað
Frímann segir að útfararþjónustan
annist allt fyrir aðstandendur
hins látna, allt frá andláti þar til
viðkomandi hefur verið jarð-
settur. „Við vinnum alltaf í nánu
samstarfi við aðstandendur. Þetta
eru mörg handtök sem þarf að
sinna og við spörum fólki þau
spor. Oftast hefur fólk ákveðnar
skoðanir á presti og tónlist en við
getum leiðbeint með þá hluti líka.
Auk þess látum við prenta fallega
sálmaskrá og pöntum blóm,“
segir Frímann sem hefur starfað
við útfararþjónustu frá því hann
var 23 ára og hefur því víðtæka
reynslu og þekkingu. „Við leggjum
okkur fram um að veita
persónulega þjónustu og ég fylgi
fólki í gegnum allt ferlið sem hefur
reynst aðstandendum best.“
Þegar Frímann er spurður hvort
breyting hafi orðið á erfidrykkjum
svarar hann því neitandi. „Í
rauninni ekki. Það hefur aðeins
aukist að fólk velji að hafa jarðar-
för í kyrrþey. Sömuleiðis hefur
aðeins aukist að erfidrykkur séu
minni um sig, þá er boðið upp á
konfekt og kleinur í stað hnallþóra
og heitra rétta,“ segir hann.
Nánar er hægt að skoða þjón-
ustuna sem Frímann og Hálfdán
– útfararþjónusta veitir á heima-
síðunni uth.is eða koma við í
Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími
565-9775. Skrifstofan er opin frá
8-17 virka daga, en þjónusta er
allan sólarhringinn og um helgar.
Netfang: uth@uth.is
Frímann, Ólöf og Hálfdán hafa langa reynslu af útfararþjónustu. Þau veita alla aðstoð frá upphafi til enda er varðar útför. Þau leggja áherslu á fagmennsku, þekkingu og reynslu. MYND/STEFÁN
Nýjasti bíllinn hjá Frímanni og Hálfdáni – útfararþjónustu er glæsilegur.
2 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RÚTFARIR
2
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
3
-A
D
4
8
2
2
7
3
-A
C
0
C
2
2
7
3
-A
A
D
0
2
2
7
3
-A
9
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K