Fréttablaðið - 28.02.2019, Síða 46
FÓTBOLTI Ísland mætti afar öflugu
liði Kanada í fyrsta leik liðanna á
Algarve-mótinu í gær. Leikið var
við góðar aðstæður á Spáni og fínt
tempó var í leiknum. Íslenska liðið
átti í vök að verjast í leiknum þar
sem Kanada var meira með boltann
og leikmönnum íslenska liðsins
gekk nokkuð illa að halda boltanum
innan liðsins og byggja upp álitlegar
sóknir.
Það jákvæða sem íslenska liðið
getur tekið með sér úr þessum leik
er öflugur og vel skipulagður varn-
arleikur. Í markinu minnti Sandra
Sigurðardóttir svo sannarlega á sig í
baráttunni um markmannsstöðuna
í undankeppni EM 2021 með einkar
góðri frammistöðu. Hún varði
tvisvar meistaralega þegar Kanada
komst í góð færi.
Þá lék Dagný Brynjarsdóttir sinn
fyrsta landsleik frá því í október
árið 2017. Þegar hún kemst í sitt
fyrra form er kominn frábær upp-
spilspunktur milli miðju og sóknar
íslenska liðsins.
Þetta var annar leikur Íslands
síðan Jón Þór Hauksson og Ian
David Jeffs tóku við stjórnartaum-
unum hjá liðinu en íslenska liðið
bar sigurorð af Skotlandi í frum-
raun sinni í janúar. Skoska liðið
er einmitt andstæðingar íslenska
liðsins í næsta leik liðsins á mánu-
daginn. Ísland leikur svo lokaleik
sinn á mótinu þegar leikið verður
um sæti 6. mars.
Skagamærin Hallbera Guðný
Gísladóttir varð í gær sú áttunda
sem nær hundrað leikjum fyrir
íslenska landsliðið. Hallbera lék
allan leikinn og var ánægð með
úrslitin þegar Fréttablaðið heyrði í
henni eftir leikinn.
„Ég er mjög sátt, þetta eru f lott
úrslit gegn jafn öflugu liði og Kan-
ada. Við vorum ekki alveg nægi-
lega skarpar í fyrri hálfleik, vorum
örlítið stressaðar eins og oft í byrjun
leikja og héldum fyrir vikið boltan-
um illa. Við töluðum saman í hálf-
leik, leikmenn og þjálfarateymið
og okkur tókst að laga þetta fyrir
seinni hálfleikinn,“ sagði Hallbera
og bætti við:
„Við vorum búin að fara vel yfir
það hvað þær vildu gera fyrir leik og
gerðum mun betur í að loka á það
í seinni hálf leik. Þótt að þær hafi
verið meira með boltann þá fannst
mér þær ekkert liggja á okkur í
seinni. Manni leið ekki eins og við
værum í nauðvörn.“
Hallbera sagði það ekkert nýtt að
það væri hrollur í íslenska liðinu á
fyrstu mínútum leiksins.
KR - Haukar 72-75
Stigahæstar: Vilma Kesanen 25, Kiana
Johnson 18/12 fráköst, Orla O’Reilley 15 -
Þóra Kristín Jónsdóttir 19/10 fráköst, Eva
Margrét Kristjánsdóttir 17.
Skallagrímur - Valur 59-89
Stigahæstar: Shequila Joseph 25/11 frá-
köst, Árnína Lena Rúnarsdóttir 13 - Berg-
þóra Holton Tómasdóttir 22, Guðbjörg
Sverrisdóttir 18, Heather Butler 18.
Snæfell - Breiðablik 93-56
Stigahæstar: Kristen Denise McCarthy
29/13 fráköst/10 stoðs, Berglind Gunnars-
dóttir 15 - Ivory Crawford 19, Sanja Orazoci
12, Ragnheiður Björk Einarsdóttir 11.
Stjarnan - Keflavík 80-58
Stigahæstar: Danielle Victoria Rodriguez
29/10 stoðs., Bríet Sif Hinriksdóttir 20
- Birna Valgerður Benónýsdóttir 19, Britt-
anny Dinkins 12/13 fráköst.
Efri
Valur 32
Keflavík 32
KR 30
Snæfell 26
Neðri
Stjarnan 26
Haukar 16
Skallagr. 12
Breiðablik 2
Nýjast
Domino’s-deild kvenna
Arsenal - Bournemouth 5-1
1-0 Mesut Özil (4.), 2-0 Henrikh Mkhitaryan
(27.), 2-1 Lys Mousset (30.), 3-1 Laurent Kos-
cielny (47.), 4-1 Pierre-Emerick Aubameyang
(59.), 5-1 Alexandre Lacazette (78.).
Southampton - Fulham 2-0
1-0 Oriel Romeu (23.), 2-0 James Ward-
Prowse (40.).
Chelsea - Tottenham 2-0
1-0 Pedro (57.), 2-0 Kieran Trippier, sjálfsm.
(85.)..
C. Palace - Man. Utd. 1-3
0-1 Romelu Lukaku (33.), 0-2 Lukaku (52.),
1-2 Joel Ward (66.), 1-3 Ashley Young (83.).
Liverpool - Watford 5-0
1-0 Sadio Mane (9.), 2-0 Mane (20.), 3-0
Divock Origi (66.), 4-0 Virgil van Dijk (80.),
5-0 van Dijk (83.).
Man. City - West Ham 1-0
1-0 Sergio Aguero, víti (59.).
Enska úrvalsdeildin
HANDBOLTI Sautjánda umferð Olís-
deildar karla hefst í kvöld með
fjórum leikjum.
Mikið verður undir á Seltjarnar-
nesinu þar sem botnlið Gróttu
tekur á móti Fram sem er í 10.
sæti deildarinnar. Aðeins eitt stig
skilur liðin að. Fram vann Akur-
eyri, 26-28, í síðustu umferð en það
var fyrsti sigur liðsins frá 25. nóv-
ember á síðasta ári. Grótta tapaði
hins vegar fyrir Haukum, 25-21, á
útivelli í síðustu umferð.
Grótta vann fyrri leikinn gegn
Fram, 20-24. Frammarar verða því
að vinna fimm marka sigur í kvöld
til að ná yfirhöndinni í innbyrðis
viðureignum liðanna.
Akureyri, sem er í ellefta og
næstneðsta sæti deildarinnar með
átta stig, sækir Íslands-, bikar- og
deildarmeistara ÍBV heim. Akur-
eyringar bíða enn eftir sínum
fyrsta sigri undir stjórn Geirs
Sveinssonar sem tók við liðinu um
áramótin. Eyjamenn eru í 6. sæti
deildarinnar.
Haukar, sem hafa unnið fjóra
leiki í röð, geta aukið forskot sitt
á toppnum í þrjú stig með sigri á
Stjörnunni sem er sigurlaus í síð-
ustu fimm leikjum sínum.
Þá mætast ÍR og K A í Breið-
holti. KA-menn eru með 13 stig í
8. sætinu en ÍR-ingar í því níunda
með tólf stig. Fyrri leikur liðanna
fór 25-25. Stigin tvö sem í boði eru
í kvöld eru því afar dýrmæt í bar-
áttunni um sæti í úrslitakeppn-
inni. – iþs
Fallslagur á Nesinu
Einar Jónsson,
þjálfari Gróttu
og fyrrverandi
þjálfari Fram.
60.
100.
1.
landsleik sinn lék
Gunnhildur Yrsa
Jónsdóttir.
landsleik sinn
lék Hallbera
Gísladóttir í gær.
landsleik sinn lék
Ásta Eir Árnadóttir.
Öflug vörn skilaði jafntefli
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta gerði markalaust jafntefli gegn Kanada í fyrsta leik sínum á Algarve-
mótinu í gær. Varnarleikur Íslendinga var í fínu lagi en fara þarf yfir uppspil og sóknaruppbyggingu.
Sif Atladóttir hefur góðar gætur á Nichelle Prince í leik Íslands og Kanada á Algarve-mótinu. NORDICPHOTOS/GETTY
Algarve-mótið
Kanada 0-0 Ísland
(0-0)
Byrjunarlið Íslands (4-2-3-1): Sandra
Sigurðardóttir; Ingibjörg Sigurðar-
dóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Sif
Atladóttir (65. Anna Björk Kristjáns-
dóttir), Hallbera Gísladóttir; Gunn-
hildur Yrsa Jónsdóttir, Sara Björk
Gunnarsdóttir; Agla María Alberts-
dóttir (84. Dagný Brynjarsdóttir),
Elín Metta Jensen (65. Rakel Hönnu-
dóttir), Selma Sól Magnúsdóttir (74.
Ásta Eir Árnadóttir); Berglind Björg
Þorvaldsdóttir (65. Svava Rós Guð-
mundsdóttir).
Þau Aura svo á mig
Borga
Rukka
Skipta
„Við viljum bæta spilamennsk-
una þegar við erum að spila gegn
sterkustu liðum heims. Það er ljóst
að við getum barist og hlaupið
endalaust en það hefur oft vantað
að vera rólegri á boltanum, sér-
staklega í byrjun leikja og við
ætlum okkur að bæta úr því. Það er
hvatning fyrir okkur að ná úrslitum
gegn Kanada þótt þetta hafi verið
æfingaleikur. Það sýnir okkur að
við getum haldið hreinu í hvaða
leik sem er.“ Hún hrósaði starfs-
teymi landsliðsins fyrir aðstoðina
í undirbúningnum.
„Við höfum y f irleitt komið
degi fyrr þegar við höfum keppt í
Algarve-mótinu og það var skrýtið
að koma og fá bara eina æfingu
fyrir leik. Fyrir vikið þurftum við
strax að byrja að hugsa um leik-
inn en við erum með gott teymi í
kringum liðið og mættum klárar til
leiks þrátt fyrir átján tíma ferðalag
á mánudaginn.“
Undirbúningurinn hjá kanadíska
liðinu var heldur betri.
„Kanada var búið að vera hérna
í æfingabúðum í rúma viku fyrir
leikinn gegn okkur. Miðað við allt
getum við verið sáttar við þetta
þótt við vitum að við eigum helling
inni.“
Hallbera var skiljanlega stolt af
því að ná hundrað leikjum fyrir
íslenska landsliðið.
„Ég er of boðslega stolt af þessu
afreki því þetta er mikill heiður.
Ég átti ekkert endilega von á þessu
þegar ég kom inn í landsliðið en
líkaminn hefur haldið vel.“
kristinnpall@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI Íslenska körfubolta-
landsliðið karlamegin stendur í stað
í 50. sæti styrkleikalista FIBA sem
var uppfærður eftir síðasta lands-
leikjahlé um helgina eftir tvo leiki
Íslands í undankeppni EuroBasket.
Íslenska liðið vann geysiöruggan
27 stiga sigur á Portúgal
í fyrri leiknum í þessu
l a nd s l e i k ja h l é i e n
tapaði seinni leiknum
gegn Belgíu með sam-
bærilegum mun. Af
E v r ó p u þ j ó ð u n u m
er Ísland í 28.
s æt i , ei nu
sæt i f y r ir
o f a n S v í-
þjóð.
A n d s t æ ð -
ingar Íslands á næsta
stigi undankeppninn-
ar fyrir EuroBasket,
Portúgal og Sviss, eru
fyrir neðan Ísland á
styrkleikalistanum.
Portúgal sem Ísland
mætti á dögunum er
í 62. sæti og Sviss í 65.
sæti. – kpt
Áfram í 50. sæti
heimslistans
2 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R22 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
2
8
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
7
3
-A
D
4
8
2
2
7
3
-A
C
0
C
2
2
7
3
-A
A
D
0
2
2
7
3
-A
9
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
7
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K