Fréttablaðið - 28.02.2019, Page 48

Fréttablaðið - 28.02.2019, Page 48
Það eru beinar línur úti um allt en þær finnast hvergi í náttúrunni nema í sjóndeildar- hringnum Ástkær faðir okkar, Runólfur Valdimarsson rafvirkjameistari, lést á Landspítalanum 23. febrúar sl. Útför hans fer fram frá Fella- og Hólakirkju mánudaginn 4. mars kl. 13.00. Valdimar Runólfsson Ingibjörg Runólfsdóttir og fjölskyldur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Finnbogi Höskuldsson véltæknifræðingur, sem lést föstudaginn 22. febrúar verður jarðsunginn mánudaginn 4. mars frá Kópavogskirkju kl. 13.00. Hildigunnur Þórðardóttir Rakel Þóra F. Larsen Keld Larsen Ásdís M. Finnbogadóttir Magnús Magnússon og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma Elita Benediktsson frá Efri-Dálksstöðum, Svalbarðsströnd, er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Friðrika Stendevad Poul Stendevad Benedikt Kristjánsson Álfheiður Björk Karlsdóttir Jóhannes Kristjánsson og fjölskyldur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, séra Sigurður Helgi Guðmundsson Norðurbakka 3a, 220 Hafnarfirði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 20. febrúar. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju, Hafnarfirði, mánudaginn 4. mars kl. 13. Brynhildur Ósk Sigurðardóttir Sigurður Þór Sigurðarson Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir Margrét Sigurðardóttir Örn Hauksson Vilborg Ólöf Sigurðardóttir Jóhannes Rúnar Jóhannsson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, Gylfi Thorlacius hæstaréttarlögmaður, sem lést á Landspítalanum 22. febrúar verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 4. mars kl. 15.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Svala Thorlacius Á þessum degi árið 1964 komst djass­ tónlistarmaðurinn Thelonious Sphere Monk á forsíðu Time Magazine en Monk þótti nýstárlegur og náði til margra á þessum tíma. Málverk af Monk prýddi forsíðu Time og inni í blaðinu var viðtal við þennan virta tónlistarmann. Blaðamaðurinn Barry Farrell skrifaði viðtalið og fyrirsögnin var The Loneliest Monk. Þegar Farrell var að undirbúa forsíðu­ viðtalið komst hann að því að það var ómögulegt að taka viðtal við Monk. Viðtalið var því ekki tekið á hefð­ bundinn máta heldur áttu þeir um 30 stutt samtöl á um tveggja mánaða tímabili. Mörg samtölin áttu sér stað á bar eða á rölti um Manhattan. Í greininni spurði Farrell Monk út í sérlundina, sem vinir og fjölskylda hans þekktu betur sem geðsjúkdóm sem hann þjáðist af. En Monk sló á létta strengi og kvaðst ekki geta verið geðsjúkur þar sem hann hefði einu sinni verði lagður inn á geðdeild en honum hefði verið sleppt út. Í greininni lofsamaði Farrell Monk hægri vinstri og sagði frá því hvernig hann hefði blásið nýju lífi í djasstón­ listina. Þess má geta að Monk hélt áfram að skapa djasstónlist alveg þar til hann lést í febrúar árið 1982.  Þ E T TA G E R Ð I S T: 2 8 . F E B R ÚA R 19 6 4 : Thelonious Monk á forsíðu Time 1794 Kristjánsborgarhöll brennur í fyrsta sinn. 1913 Fyrsti íslenski hárgreiðslumeistarinn, Kristólína Kragh, opnar stofu í Reykjavík. 1920 Þilskipið Valtýr ferst fyrir sunnan land og með því 30 manns. Valtýr var mikið aflaskip. 1941 Belgíska flutningaskipið Persier strandar á Dyn­ skógafjöru suðaustur af Hjörleifshöfða. Skipið næst á flot um miðjan maí og er dregið til Reykjavíkur. 1950 Clam, breskt olíuskip, ferst við Reykjanes. Björg­ unar sveit frá Grindavík bjargar 23 mönnum en 27 skip­ verjar farast. Flestir þeirra voru kínverskir. Merkisatburðir Listakonan Ásdís Spanó býður gestum upp á listamanna-spjall milli klukkan 17 og 18 í dag um sýningu hennar „Triangular Matrix“ sem nú stendur yfir í Grafíksalnum Tryggvagötu 17. Aðgangur er ókeypis og segir Ásdís að allir séu velkomnir. „Ég mun fjalla um sýninguna og aðdraganda hennar en ég er búin að vera að vinna í þessu í þó nokkurn tíma. Ég er svolítið að breyta um stíl þar sem ég er að vinna meira með geómetríu í verkunum. Í þessu spjalli mun ég útskýra hvað það er sem heillar mig við þetta,“ segir Ásdís. Hún segist reyna að hafa svona lista- mannaspjall í kringum hverja sýningu sína. „Fólk getur spurt og þetta verður samtal sem á sér stað. Þarna er tækifæri fyrir fólk sem vill vita meira eða hitta listamanninn.“ Í sýningarskránni segir að Ásdís setji í verkum sínum „fram frumspeki- legar og óhlutbundnar birtingarmyndir heimsins þar sem tilbúni hluti hans og náttúran lifa hlið við hlið í viðkvæmu en flóknu bandalagi“. Ásdís segist hafa unnið mikið með borgarlandslag og landslag náttúrunn- ar. „Ég hef alltaf verið að blanda þessu saman en þarna er ég að vinna þetta aðeins öðruvísi og taka þríhyrnings- formið sem finnst bæði í náttúrunni og borgarlandslaginu. Þetta form verður svolítið einkennandi í þessum verkum sem ég er að vinna.“ Í gegnum árin hefur Ásdís unnið mikið með láréttar línur í verkum sínum sem er bæði vísun í náttúruna og borg- ina. „Það eru beinar línur úti um allt en þær finnast hvergi í náttúrunni nema í sjóndeildarhringnum. Út frá því hef ég verið að velta fyrir mér hvort það sé eitt- hvað form sem sé algengt að sjá á báðum stöðum.“ Það sé einmitt áhugavert að þríhyrn- ingsformið finnist víða í náttúrunni til dæmis í kringum fjöll og í jarðlögum. „Þetta er líka geómetrískt form og hægt að finna í listasögunni en líka í borgar- landslagi. Nafn sýningarinnar er dregið úr stærðfræði en Triangular Matrix vísar til þríhyrnings sem er staðsettur inni í ferningi en það er hægt að stað- setja hann á ólíkum stöðum innan ferningsins.“ Sý ning u Á sd ísa r lýk u r næst- komandi laugardag en hún verð- ur opin milli klukkan 14 og 17. sighvatur@frettabladid.is Geómetrískt listaspjall um sýningu Ásdísar Klukkan fimm í dag býðst gestum að hitta listakonuna Ásdísi Spanó í listamanna- spjalli um sýningu hennar „Triangular Matrix“ í Grafíksalnum Tryggvagötu 17. Lista- konan vinnur með þríhyrningsformið sem finnst bæði út í náttúrunni og borgum. Ásdís Spanó stendur hér á vinnustofu sinni með nokkur verkanna sem eru á sýningunni í Grafíksalnum við Tryggvagötu. 2 8 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R24 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 2 8 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 7 3 -9 9 8 8 2 2 7 3 -9 8 4 C 2 2 7 3 -9 7 1 0 2 2 7 3 -9 5 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 2 7 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.