Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2019, Qupperneq 48
48 18. janúar 2019
Þ
að kom afar sjaldan fyrir
að Stacey Westbury, sem
bjó í London, hefði slökkt
á farsíma sínum. Um miðj-
an ágúst 2007 hafði faðir Stacey
hringt ítrekað í hana en ekki feng-
ið svar og var ekki rótt. Dóttir hans
var náin foreldrum sínum og hafði
alltaf verið „litla hnátan hans
pabba“ þrátt fyrir að vera orðin 23
ára og þegar þarna var komið sögu
bjó hún með 10 mánaða syni sín-
um í Fulham.
„Ég held ég skjótist til henn-
ar og kanni hvort eitthvað sé að,“
sagði hann við móður Stacey.
Engin viðbrögð
Þegar hann kom að heimili dóttur
sinnar tók hann eftir því að dregið
var fyrir alla glugga. Það setti ugg
að honum og ekki dró úr áhyggj-
um hans þegar hann fékk engin
viðbrögð eftir að hafa hvort tveggja
hringt dyrabjöllunni og barið á
forstofuhurðina.
Hann brá á það ráð að kíkja
inn um bréfalúguna. Eðli máls-
ins samkvæmt þá var sýn hans
takmörkuð, en þó gat hann séð
dótturson sinn í rimlarúminu og
heyrði í honum kjökrið.
Fnykur fyllir vit
Þá fyrst fylltist faðir Stacey skelf-
ingu og hann setti öxlina af öllu
afli í hurðina, en hún gaf sig ekki.
Setti hann þá olnbogann í rúðu á
hurðinni, teygði höndina inn og
náði að opna innan frá.
Þegar hann kom inn í íbúðina
mætti honum viðurstyggileg lykt.
Hann hundsaði fnykinn og kallaði
nafn dóttur sinnar, en fékk ekki svar.
Stacey lá á sófanum, skammt
frá rimlarúmi sonar síns. Hún var
nakin, blóðug og marin; hafði verið
stungin með eggvopni, barin, kýld,
kæfð og kynferðislega misþyrmt.
Kunningi bankaði upp á
Í örfáar sekúndur, sem sennilega
virtust heil eilífð, stóð faðir Stacey
sem frosinn í sporunum. Grát-
kjöltur dóttursonar hans vakti
hann til meðvitundar. Hann tók
drenginn blíðlega upp og vaggaði
honum í örmum sínum og tárin
streymdu niður kinnar hans.
Stacey hafði verið látin í 18
klukkustundir. Kvöldið áður hafði
hún opnað dyrnar fyrir 22 ára
fyrrverandi skólabróður sínum,
Christopher Braithwaite, sem hún
þekkti enn lítillega og eingöngu
sem kunningja.
Í ljós kom að atburðir undan-
farinnar viku höfðu leitt til þessara
hörmulegu endaloka.
Sleppt þrátt fyrir sterkan grun
Christopher Braithwaite var vafa-
samur pappír, krakkfíkill með
langan lista yfir kynferðisglæpi
gagnvart konum á ferilskránni.
Þannig var mál með vexti
að um viku áður, þann 9. ágúst,
hafði Brai thwaite verið handtek-
inn, grunaður um að hafa nauðg-
að ungri konu. Einhverra hluta
vegna hafði nefnd sem ákvarð-
ar um hvernig skuli staðið að sak-
sókn í Englandi og Wales komist
að þeirri niðurstöðu að sönnunar-
gögn réttlættu ekki að Braithwaite
yrði ákærður og þaðan af síður
36 ára að aldri lagði Frakkinn Pierre-François Lacenaire háls sinn á höggstokk fallaxar í París. Þetta gerðist 9. janúar árið 1836. Lacenaire, sem
var þekkt ljóðskáld, var sakfelldur fyrir tvö morð. Annað
fórnarlamb hans hét Chardon, klæðskiptingur sem hélt til í
fátækrahverfi í París. Hitt fórnarlambið var móðir Chardon.
Við morðin notaði Lacenaire al og öxi.
Eftir að hann var sakfelldur skrifaði hann endurminningar
sínar sem voru gefnar út eftir að hann var tekinn af lífi og urðu
metsölubók. Sagan segir að hann hafi umbreytt réttarhöldun-
um í leikstykki og breytt fangaklefa sínum í sýningarsal.
SAKAMÁL
Kaffihlaðborð ýmsar útfærslur, Pinnamatur,
smurt brauð, tertur, o.fl. fyrir erfidrykkjuna
Afgreitt á einnota fötum
tilbúið á borðið
Erfidrykkja
HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810
Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is
RÉTTARKERFIÐ KOSTAÐI STACEY LÍFIÐ
Christopher Braithwaite Naut
góðs af gölluðu réttarkerfi.
Stacey Westbury
Lenti í klóm krakk-
fíkils og kynferðis-
glæpamanns.
n Var grunaður um nauðgun en sleppt úr varðhaldi n Fékk tækifæri til að endurtaka leikinn n Gerði það og bætti um betur