Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2019, Blaðsíða 52
52 FÓKUS 18. janúar 2019
q
20% afsláttur!
www.igf.isFlokkaðu HÉR
af flokkunarílátum
út febrúar
„Ekkert til sem heitir of
klikkað eða yfirdrifið“
„Það er hvorki gaman né spennandi að vera normal“
L
ovísa Tómasdóttir er 27
ára klæðskeri, förðunar-
fræðingur, verslunarstjóri og
hönnuður sem hefur verið á
rjúkandi uppleið á síðustu miss-
erum. Hún lýsir sér sem hrein-
ræktaðri „föndurkerlingu“ sem
þrífst á hugmyndaflugi sínu og
sköpunargleði annarra, en hún
hefur vakið talsverða athygli sem
hönnuður verslunarinnar Kjólar
og konfekt, sem margir segja að
sé eitt best geymda leyndarmál
miðbæjarins. Síðar gerðist hún
lykilhönnuður Rokks og róman-
tíkur, sem er systurbúð Kjóla og
konfekts, þó að stíllinn sé allt ann-
ar.
Stíl Lovísu og handbragð má
finna víða, þótt viðkomandi geri
sér ekki grein fyrir því, og segir
hún að mest gefandi tilfinningin
sé að ganga um bæinn og sjá fólk
klæðast einhverju sem hún bjó
til sjálf. Hún lýsir umræddum stíl
sem mjög breiðum en mestmegn-
is „retró, pönk og litríkum .“
Auk kjólasaums hefur Lovísa
verið að dýfa burstanum í förðun
og verið í búningadeild fyrir sjón-
varpsþætti, þar á meðal þættina
Venjulegt fólk, auk þess að hafa
gegnt störfum sem fatahönnuð-
ur fyrir dragdrottninguna Gogo
Starr, hina alræmdu spákonu
Siggu Kling og fjöldann allan af
tónlistar fólki.
Meira þýðir meira
Lovísa segir lykilinn að sinni ham-
ingju fylgja sköpunargleðinni og
ákvörðuninni um að leyfa hinu
skrítna að njóta sín. „Fyrir mér, í
fatahönnun, er ekkert til sem heit-
ir of klikkað eða yfirdrifið. Það er
aldrei hægt að hafa of mikið gling-
ur, eða glimmer. Það þýðir ekkert
að spyrja mig hvort eitthvað sé „of
mikið,“ því í langflestum tilfellum
segi ég fólki að bæta meiru við.
Það er ekki til neinn staðall fyrir
svona. Ef það talar til viðkomandi,
þá hvet ég þann einstakling til að
taka á móti því með opnum örm-
um.“
Aðspurð um innblástur verka
sinna og almennan stíl nefnir hún
Cher, Madonnu og jafnvel David
Bowie.
Lovísa segir það vera sér eðlis-
lægt að vera skrítin. Hún segir
mögulegt að þetta hafi blundað
í henni frá æsku. Þá reyndi hún
mikið að vera eins og flestir hin-
ir krakkarnir og var alltaf haldin
feimni eða meðvitaðri ákvörðun
um að skera sig ekki úr hópnum,
ákvörðun sem hún taldi vera þá
skynsamlegustu á þeim tíma. Eftir
á að hyggja er hún sannfærð um
að betra hefði verið að finna sinn
eigin stíl og karakter frá upphafi.
„Það er hvorki gaman né
spennandi að vera normal að
mínu mati,“ segir Lovísa. „Ég elska
að klæða mig upp í eitthvað sem
er örlítið furðulegt eða vekur smá
athygli, eitthvað sem er skemmti-
legt að horfa á. Það er miklu
áhugaverðara að vera öðruvísi og
ég elska það.“
Súrsætt að kveðja systkinin
Lovísa hefur saumað frá því hún
var barn. Kunnáttuna fékk hún frá
móður sinni og segir hún fyrsta
stóra verkefnið hafa verið þegar
hún saumaði sinn eigin ferm-
ingarkjól. Hún segir þá ákvörðun
hafa verið gríðarlegan létti fyr-
ir móður sína, sem þurfti þá ekki
að leggja í leiðangur að finna rétta
kjólinn.
Æska Lovísu mótaði hana og
segir hún það gefandi að hafa alist
upp með fóstursystkinum. Lovísa
er miðjubarn og á þrjú systkini en
foreldrar hennar tóku reglulega
að sér fósturbörn. Þetta segir hún
hafa skipt sköpum í uppeldinu og
viðhorfi gagnvart fordómum og
segir það ótrúlega gefandi hugs-
un að taka á móti fósturbörnum
úr misjöfnum aðstæðum.
Reynslan við að eignast fóstur-
systkini var þó
þyrnum stráð
þegar kom að
því að kveðja hvert barn
sem kom á heimilið. Henni finnst
lykilatriði í lífinu að viðhalda já-
kvæðu viðhorfi og að leyfa ekki
leiðindapúkum að slá sig niður.
Lovísa kláraði náttúrufræði-
braut en áttaði sig á því við náms-
lok að sú stefna væri ekki sniðin
fyrir hana. „Mér fannst ég verða að
gera eitthvað með höndunum og
skapa eitthvað nýtt og spennandi.
Ég er ekki skrifstofutýpa.“
Skiptir máli að spegla sig
Nýlega sagði Lovísa upp störfum
hjá Kjólum og konfekti og Rokki
og rómantík til að sækja í aðrar
áskoranir, efla sjálfstæðið í sínu
fagi og mæta eftirspurn í önnur
verkefni sem hafa boðist henni.
Hún fullyrðir þó að hún verði
alltaf með annan fótinn í þessum
verslunum sem mótuðu hana.
Hún fullyrðir að besti
skólinn sem hún hafi verið í
hafi verið reynslan í Kjólum og
konfekti. Andrúmsloftið þar snýst
um að vera maður sjálfur og hafa
einfaldlega gaman. Sköpunar-
gleði hennar fékk lausan tauminn
og mottóið að föt væru skemmti-
leg og þyrftu því að hafa gaman
var við lýði.
„Ég braust mjög mikið úr skel-
inni með því að vinna þarna, að
vera í kringum ótrúlega jákvætt
fólk og það hefur mótað svolítið
framtíð mína og faglegt hugar-
far. „Hafðu gaman af því sem þú
gerir samkvæmt allra bestu getu,
annars ertu að sóa tíma þínum,“
segir hún. „Fólk gerir sér ekki
alltaf grein fyrir því að fatahönnun
er list og það er svo gaman að týna
sér í henni. Listinni fylgja tilfinn-
ingar og fötin geta speglað hvernig
þú sérð þig sjálfan í heiminum.“ n
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
Kjóll Regínu sem Lovísa
hannaði og saumaði sjálf.
„Stund á milli stríða“