Morgunblaðið - 05.09.2018, Side 2

Morgunblaðið - 05.09.2018, Side 2
AFP Kevin Hart Um þrjú þúsund manns komu á uppistandið í gærkvöldi. „Það var engum hent út. Núll, ég var að fá það staðfest frá gæslunni,“ seg- ir Ísleifur Þórhallsson, fram- kvæmdastjóri Senu, aðspurður hvort einhverjum gestum hafi verið hent út vegna símanotkunar á uppi- standi bandaríska grínistans Kevins Harts í Laugardalshöll í gærkvöldi. Öll símnotkun var harðbönnuð og Ís- leifur þakkar mikilli umfjöllun í fjöl- miðlum að gestir virtu það en skila- boðum var líka komið til gesta fyrir sýninguna, auk þess var gríðarleg gæsla á sýningunni sjálfri. Á sýningu Harts í London síðasta sunnudag var m.a. mörgum gestum hent út fyrir að nota símann. Ísleifur segist vera afar kátur í alla staði með hvernig til tókst með uppistand- ið. Þegar blaðamaður sló á þráðinn til Ísleifs um klukkan hálfellefu í gærkvöldi var síðasti brandarinn í gangi að hans sögn. Góð stemning ríkti hjá þeim þrjú þúsund gestum sem mættu í Laugardalshöll og ætl- aði allt að tryllast þegar Hart steig á svið, en á undan honum höfðu fjórir uppistandarar komið fram til þess að kitla hláturtaugarnar hjá gest- unum. axel@mbl.is Engum var vikið út 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Í gær var í Bolungarvík hugað að bátnum Steinunni ÍS 46 sem þangað var komið með eftir að hann sigldi á fullu stími upp í fjöru í Stigahlíð, sem er skammt utan við Víkina. Báturinn er mikið skemmdur eftir óhapp þetta sem varð um um kl. 15 á mánudag. Fóru björgunarsveit- armenn þá þegar á vettvang. Kom- ið var svo með bátinn á kajann í Bolungarvík snemma aðfaranótt þriðjudagsins. Skipstjórinn var einn um borð og sakaði hann ekki alvarlega, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði sem vinn- ur að rannsókn málsins. Skipstjórinn var á heimstími eftir langa veiðiferð þegar þetta gerðist. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins var hann til upphitunar með gasmiðstöð í gangi. Er talið líklegt að gasið hafi eytt súrefninu úr bátnum og skipstjórinn misst meðvitund af þeim sökum. Hann vildi ekki tjá sig um málavöxtu við tíðindamann. sbs@mbl.is Sigldi bátnum sofandi upp í Stigahlíð Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Búið er að loka yfirbyggðu svæði á lóð leikskólans Fögrubrekku í Kópavogi þar sem ungmenni hanga gjarnan þegar leikskólinn er lok- aður. Í fyrradag fann fimm ára gamall drengur amfetamín á lóð leikskólans og lagði sér til munns. „Eftir þetta atvik í gær var manni bara virkilega brugðið,“ segir Edda Valsdóttir, leikskólastjóri í Fögru- brekku, í samtali við mbl.is. Edda segir að aldrei hafi fundist eiturlyf á leikskólalóðinni sem starfsmenn skólans yfirfara á hverj- um morgni. Þó hafa fundist þar áhöld til neyslu kannabisefna, svo- kallaðar beyglur, auk síga-rettu- stubba. Auk þess að loka yfirbyggða svæðinu stendur nú til að festa nið- ur trébekki sem eru á leikskólalóð- inni. Edda segir alla hafa brugðist rétt við því atviki sem kom upp í vikunni og hrósar starfsmönnum og drengn- um sjálfum fyrir góð viðbrögð. Barn komst í am- fetamín á leikskóla- lóð í Kópavogi Unnið var að því í gær að rífa niður byggingu við Nýbýlaveg í Kópavogi, þar sem áður var sölu- skálinn Kópavogsnesti. Breytir bær um svip en langt er þó síðan skálinn var upp á sitt besta og hefur ýmis önnur starfsemi verið í húsinu síðast- liðin ár, eins og til dæmis bílaréttingaverkstæði. Eftir lifa þó minningar meðal fólks um skyndi- bita í búðinni þar sem samloka með skinku og káli þótti með því besta sem bauðst. Húsið rifið en minningar um samlokurnar lifa Morgunblaðið/Hari Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Kjarasamningar eru lausir um ára- mótin sem mun vafalítið lita mjög um- ræður á Alþingi næstu vikurnar. Efnahagsmálin og fjárlagafrumvarp- ið verða ef að líkum lætur mikið rædd í samhengi við kjaramálin,“ segir Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. Alþingi verður sett á þriðjudag í næstu viku, 11. september og stefnu- ræða forsætisráðherra og umræður um hana verða svo næsta dag, það er að kvöldi miðvikudagsins 12. septem- ber. Fyrsta umræða um fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár verður 13. septem- ber og haldið áfram næsta dag. Stefnt er að 2. umræðu um fjárlagafrumvarpið 13. nóvember og þeirri þriðju, það er lokaumræðu, 22. nóv- ember. Standast fyrirheit? „Þingveturinn getur orð- ið átakamikill,“ segir Þorsteinn Víg- lundsson, þingmaður Viðreisnar. „Bæði skortir talsvert á samstöðu meðal stjórnarflokkanna sem sömu- leiðis hafa gefið út ýmsar yfirlýsingar um aukin útgjöld til dæmis í heil- brigðismálin, sem eru kannski ekki raunhæf nú þegar er að kólna í hag- kerfinu, eins og hvarvetna sjást merki um. Þá hefur rík- isstjórnin sömuleiðis heitið ýmsu varðandi aðsteðjandi kjaraviðræður og spurning hvort þau fyrirheit stand- ast.“ Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, segir að mörg spjót muni standa á ríkisstjórninni á næstunni. „Þetta eru hvikulir tímar, núna þegar við erum á leið niður brekkuna eftir fordæmalaust vaxtar- skeið. Við þær aðstæður reynir meðal annars á Vinstri græna um að koma með einhverjar jöfnunaraðgerðir í þágu þeirra sem verst standa. Fyrsta prófið verður auðvitað fjárlagafrum- varpið þar sem við í Samfylkingu munum gagnrýna málefnalega.“ Þrýst á úr öllum landshlutum Silja Dögg Gunnarsdóttir segir að samgönguáætlun verði í deiglunni á Alþingi á næstunni. Áætlunin er til 15 ára og verður lögð fram á næstu dög- um. Í þeim málaflokki komi þrýsting- ur um framkvæmdir úr öllum lands- hlutum og því þurfi að rökræða málin með tilliti til fjármuna og forgangs- röðunar. Kjaramálin munu lita þingstörf Silja Dögg Gunnarsdóttir Logi Már Einarsson Þorsteinn Víglundsson  Alþingi verður sett næsta þriðjudag  Skortir á samstöðuna  „Við erum á leið niður brekkuna“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.