Morgunblaðið - 05.09.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2018
Borgarstjóri fórmikinn í gær
og kvartaði undan
„upphlaupum“ og
„hávaða“ og „óróa“ í
borgarpólitíkinni og
kallaði aðfinnslur
minnihlutans í borg-
arstjórn „svona týp-
ískar lýðskrums-
legar upphrópanir“.
Þegar ekki eru tilgóð svör við
gagnrýni er svo sem
ekki verra en hvað
annað að svara henni með þessum
hætti. Sumir taka undir, vilja frið
fyrir stjórnmálamönnum og setja sig
ekki inn í mál.
Það er skiljanlegt en auðveldarvaldhöfum því miður að komast
upp með að svara ekki efnislega.
En gagnrýnin á meirihlutann íReykjavík er fjarri því ómark-
tækar upphrópanir. Eitt dæmi eru
leikskólamálin þar sem miklu hefur
verið lofað en minna efnt. Mun
minna.
Eyþór Arnalds sagði til dæmis íborgarstjórn í gær: „12 mán-
aða börnum var lofað plássi í vor. Og
18 mánaða börnum var lofað plássi
árið 2002, það var árið sem núver-
andi borgarstjóri tók sæti í borgar-
stjórn. Síðan eru liðin 16 ár og enn
þá komast ekki öll 18 mánaða börn á
leikskóla.“
Eru þetta frambærilegar efndir?
Flokkast það undir upphlaup aðvekja máls á vanefndum af
þessu tagi?
Er ekki nær að borgarstjóri ræðimálin efnislega en með skæt-
ingi í garð þeirra sem gagnrýna?
Dagur B.
Eggertsson
Sextán ára
óefnt loforð
STAKSTEINAR
Eyþór Arnalds
Veður víða um heim 4.9., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 9 rigning
Akureyri 12 skýjað
Nuuk 7 léttskýjað
Þórshöfn 11 súld
Ósló 20 heiðskírt
Kaupmannahöfn 20 léttskýjað
Stokkhólmur 20 heiðskírt
Helsinki 16 skýjað
Lúxemborg 21 skýjað
Brussel 23 þoka
Dublin 16 léttskýjað
Glasgow 16 skýjað
London 17 skýjað
París 19 alskýjað
Amsterdam 22 þrumuveður
Hamborg 22 heiðskírt
Berlín 25 heiðskírt
Vín 20 skúrir
Moskva 21 heiðskírt
Algarve 24 léttskýjað
Madríd 29 léttskýjað
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 30 léttskýjað
Róm 25 léttskýjað
Aþena 31 heiðskírt
Winnipeg 17 skýjað
Montreal 23 skýjað
New York 30 léttskýjað
Chicago 29 léttskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
5. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:23 20:31
ÍSAFJÖRÐUR 6:22 20:42
SIGLUFJÖRÐUR 6:04 20:25
DJÚPIVOGUR 5:51 20:02
Samgönguráð-
herra, Sigurður
Ingi Jóhannsson,
hefur skipað nýja
rannsóknarnefnd
samgönguslysa.
Sem kunnugt er
rann skipunar-
tími nefndarinn-
ar út 31. maí sl.
og var því engin
nefnd starfandi um þriggja mánaða
skeið í sumar.
Morgunblaðið leitaði skýringa á
þessum drætti hjá samgönguráðu-
neytinu. „Nokkrir nefndarmenn
gáfu ekki kost á sér áfram auk þess
sem ráðherra lagði áherslu á að
bæta kynjahlutfall nefndarinnar.
Kynjahlutfall þáverandi nefndar
var 30,8%. Hlutfall nýju nefndar-
innar er 38,5%,“ segir í svari ráðu-
neytisins. Ráðuneytið segir enn
fremur að nefndin sjálf hafi talið
gagnlegt og brýnt að hafa aðgang
að reyndum veðurfræðingi og
lækni fyrir rannsóknir sínar og val
á þeim hafi tekið lengri tíma en
áætlað var.
Ný rannsóknarnefnd samgöngu-
slysa er skipuð sem hér segir:
Aðalmenn: Geirþrúður Alfreðs-
dóttir, Ásdís J. Rafnar, Bryndís
Lára Torfadóttir, Gestur Gunnars-
son, Guðmundur Úlfarsson, Hilmar
Snorrason og Ingi Tryggvason.
Varamenn: Hjörtur Emilsson,
Hörður Vignir Arelíusson, Kristín
Sigurðardóttir, Pálmi Kr. Jónsson,
Guðrún Nína Petersen og Tómas
Davíð Þorsteinsson.
Guðmundur Úlfarsson tekur sæti
í nefndinni sem aðalmaður í stað
Brynjólfs Mogensen. sisi@mbl.is
Ráðherra vildi jafna kynjahalla
Ný rannsóknarnefnd samgönguslysa skipuð Hlutfall kvenna er nú 38,5%
Geirþrúður
Alfreðsdóttir
Karlmaður var í júlí dæmdur í Hér-
aðsdómi Reykjaness í þriggja og
hálfs árs fangelsi fyrir að brjóta kyn-
ferðislega gegn barnabarni sínu þeg-
ar drengurinn var 10-12 ára gamall.
Brotin áttu sér stað á heimili manns-
ins og ömmu drengsins þegar dreng-
urinn var þar í heimsókn og gisti hjá
þeim. Maðurinn var fundinn sekur
um að hafa snert kynfæri drengsins í
fjölda skipta, fróað honum og þuklað
kynfæri hans í fjölda skipta.
Málið kom upp árið 2016 eftir að
drengurinn sagði foreldrum sínum
og bróður frá brotum afa síns. Þá
sagði drengurinn einnig að amma sín
hefði í nokkur skipti orðið vitni að at-
hæfi afans en ekkert aðhafst. Faðir
drengsins og sonur ákærða manns-
ins hafði samband við barnavernd-
arnefnd daginn eftir og tilkynnti
málið. Afinn neitaði sök í málinu og
vísaði til andlegs heilsufars drengs-
ins. Dómurinn taldi hins vegar sýnt
fram á með niðurstöðu sálfræðinga
að drengurinn væri afar samkvæm-
ur sjálfum sér og að ekkert annað en
brot afans gæti skýrt áfallastreitu-
röskun drengsins.
Í fangelsi
fyrir kyn-
ferðisbrot
Maður braut
gegn barnabarni
R
GUNA
GÓÐAR
I