Morgunblaðið - 05.09.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 05.09.2018, Qupperneq 36
 Hanna Dóra Sturludóttir messó- sópran og Snorri Sigfús Birgisson píanóleikari flytja sönglög eftir m.a. Atla Heimi Sveinsson, Zoltán Kodály og Igor Stravinskíj í Salnum í dag kl. 12.15. Tón- leikarnir eru liður í dagskránni Menn- ing á miðviku- dögum á vegum Menningarhúsanna í Kópavogi. Að- gangur er ókeypis. …dúr á daggarnótt í Salnum í hádeginu MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 248. DAGUR ÁRSINS 2018  Jazzhátíð Reykjavíkur er sett í dag með skrúðgöngu sem leggur af stað frá Lucky Records við Hlemm kl. 17, fer niður Laugaveginn og endar við Borgarbókasafn í Grófinni kl. 17.30. Í framhaldinu er boðið upp á ferna tón- leika í dag og fjölda tónleika fram til laugardags. Djassgeggjarar landsins ættu því auðveldlega að finna eitt- hvað við sitt hæfi á næstu dögum. Morgunblaðið/Eggert Djössuð skrúðganga farin niður Laugaveg  Jón Yngvi Jó- hannsson, bók- menntafræðingur og lektor í íslenskum bók- menntum við HÍ, spjallar um mat- reiðslubók sína Hjálp, barnið mitt er grænmetisæta í Borgarbókasafninu í Gerðubergi í kvöld kl. 20. Bókin er hugsuð fyrir ráðvillta foreldra, vanafasta heimilis- kokka, fátæka námsmenn og alla þá sem ættu að borða meira grænmeti. Hjálp, barnið mitt er grænmetisæta í kvöld „Sigurinn í Þýskalandi var auðvitað óvæntur bónus sem hleypti upp vænting- unum en liðið nýtti sér hann ekki sem skyldi í leikjunum tveimur við Tékka. Banabit- inn er að hafa ekki náð að knýja fram sigur í öðrum hvorum leiknum,“ skrifar Víðir Sigurðsson í umfjöllun um undankeppni HM kvenna í fótbolta. Ísland þarf að bíða til 2023 hið minnsta eftir HM-sæti. »2 Biðin lengist til ársins 2023 Erlend stórlið eru með Hauk í sigtinu Handknattleiksmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson byrjaði atvinnumennsku sína á toppslag með GOG gegn meisturum Skjern í dönsku úrvals- deildinni. Hann segir mikið lagt upp úr hraða í liði GOG og að það henti sér vel. Íslendingum hefur fjölgað um tvo í dönsku úrvalsdeildinni frá síð- ustu leiktíð, og þar verður mynd- bandstækni nú nýtt í dómgæslu. »4 Hraði Óðins fær að njóta sín í GOG Þór Steinarsson thor@mbl.is Séra Hjálmar Jónsson, fyrrverandi dómkirkjuprestur, náði í fyrradag þeim merka áfanga að fara holu í höggi. Höggið sló hann á 8. braut Urriðavallar í Garðabæ. Það eitt út af fyrir sig þykir hugsanlega ekki fréttnæmt en það sem gerir áfang- ann merkilegan er sú staðreynd að þetta var í þriðja skipti á fimm ár- um sem sr. Hjálmar fer holu í höggi. Það eru ekki nema tæpar þrjár vikur síðan hann gerði það síðast. Hjálmar fór holu í höggi í fyrsta skipti fyrir 5 árum, einnig á 8. brautinni. Hann segir höggið í fyrradag hafa verið nákvæmlega eins og þá. „Ég tók sandjárnið eins og ég gerði fyrir fimm árum. Ég geri það oftast þegar það er meðvindur. Það var dálítil gola og holustaðsetningin var sú sama. Þetta var hátt högg sem lenti aðeins fyrir utan flöt og rúllaði ofan í,“ útskýrir Hjálmar í samtali við Morgunblaðið. Í minningu kunningja síns Fyrir þremur vikum, 16. ágúst sl., var hann aftur á móti staddur á 4. braut vallarins þegar hann fór holu í höggi í annað skipti. Sagan um það er sérstök segir Hjálmar. „Dóttir kunningja míns, Jóns Sigurðssonar, hringdi í mig. Þá var ég á 3. brautinni. Hún spurði mig hvort ég gæti jarðað föður hennar sem hafði þá fallið frá um morgun- inn. Ég svaraði því jákvætt. Hún heyrði að ég væri í golfi og sagði mér að slá næsta högg í minningu föður síns. Næsta högg var hola í höggi. Þetta var nákvæmlega svona,“ rifjar Hjálmar upp. Aðstoð æðri máttarvalda Presturinn fyrrverandi er ekki einungis góður í upphafshöggum. Auk þess að hafa farið tvisvar holu í höggi í sumar hefur Hjálmar unn- ið fjögur golfmót í sumar og lent í 2.-4. sæti í tveimur til viðbótar. Hann útilokar ekki að æðri máttar- völd hafi aðstoðað hann með sveifl- una í sumar. „Ég hugsaði það fyrir hálfum mánuði þegar ég fór holu í höggi að ef það gerðist aftur fljótlega þá væri ég orðinn dálítið góður, og það gerðist. Það hefur gengið rosa- lega vel í sumar þannig að maður kvíðir allavega ekki efri árunum,“ segir Hjálmar og bætir því við að hann sé með 19 í forgjöf og stefni á lækkun. Nýi Holu-Hjálmar Árangur Hjálmars hefur vakið mikla athygli og lukku á samfélags- miðlinum Facebook þar sem fólk keppist um að hrósa honum. Um hann hafa verið ortar vísur og honum hafa verið gefin ný við- urnefni. Eitt þeirra er Holu- Hjálmar. Séra Hjálmar skellir upp úr þegar blaðamaður spyr hann út í það. „Það var nú annar búinn að fá það nafn. Það er spurning hvort við verðum að skiptast á að nota það,“ segir hann hlæjandi og bætir við: „Ef ég fer einu sinni enn holu í höggi þá geri ég tilkall til nafns- ins.“ Gunnar Rögnvaldsson er einn þeirra sem hafa orðið fyrir inn- blæstri af afrekum Hjálmars. Hann skrifar: „Mörgu svarar, magnast trú manns er ákaft bíður. Í einu höggi Hjálmar nú holar öllu niður.“ Með aðstoð frá almættinu  „Var nákvæm- lega eins högg og fyrir 5 árum“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Golf Séra Hjálmar Jónsson, fyrrverandi dómkirkjuprestur, fór holu í höggi í þriðja skiptið á fimm árum í fyrradag. VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 641 KR. ÁSKRIFT 6.960 KR. HELGARÁSKRIFT 4.346 KR. PDF Á MBL.IS 6.173 KR. I-PAD ÁSKRIFT 6.173 KR. 1. Ísland í 2. sæti en ekki í umspil 2. Mynd af Vík seld á þreföldu verði 3. Smakkaði amfetamín á leikskóla 4. Vill ná tali af mönnunum »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM Á fimmtudag Suðaustanátt, 10-15 m/s og rigning með köflum V- lands, en annars hægari og víða léttskýjað. Hiti 9 til 16 stig. Á föstudag og laugardag Suðaustan 8-13 m/s og víða lítilsháttar væta, en hægara og áfram bjartviðri fyrir norðan. Hiti 10 til 15 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðlæg eða breytileg átt og skúrir eða dálítil rigning, einkum S-lands. Norðlæg átt, 3-10 m/s. VEÐURÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Erlend stórlið hafa sýnt hinum bráð- efnilega unglingalandsliðsmanni frá Selfossi, Hauki Þrastarsyni, mikinn áhuga í sumar. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins eru flest stór- liðin í Evrópu með Hauk inni á radarnum hjá sér. »1

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.