Morgunblaðið - 05.09.2018, Síða 25

Morgunblaðið - 05.09.2018, Síða 25
Raðauglýsingar Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt HERRASKÓR - STAKAR STÆRÐIR 39, 40, 41, 42, 45, 46, og 47. Verð: 6.990kr Laugavegi 178, sími 551 2070. Opið mán. - fös. kl. 10–18, Laugardaga kl. 10 - 14 Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryð á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Færir þér fréttirnar mbl.is Félagsstarf eldri borgara Árskógar Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin smíðastofa kl. 9-16. Opið hús, t.d. vist og brids kl. 12.30-16. Opið fyrir úti- og inni- pútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könn- unni. Allir velkomnir. S. 535-2700. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10- 10.30. Myndlist kl. 9-12. Botsía kl. 10.40-11.20. Spiladagur, frjáls spila- mennska kl. 12.30-15.50. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Félagsmiðstöð Aflagranda 40 Í dag er söngstund með Helgu. Eftir langt og gott sumarfrí verður gott að hittast aftur saman við píanóið og syngja skemmtileg lög með henni Helgu okkar. Verið velkomin. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi frá kl. 9-10 í setustofu á 2. hæð. Bókband frá kl. 9-13. Fyrir hádegi á miðvikudögum er postu- línsmálun og hefst námskeið í næstu viku. Tölvu- og snjallsímaaðstoð er frá kl. 10-11 og kl. 13.30 er myndlist í handverkstofu 2. hæðar. Kl. 14 hefst dansleikur með Vitatorgsbandinu. Dansinn er öllum opinn og ókeypis aðgangur. Verið öll velkomin til okkar á Vitatorg, Lindargötu 59, sími 411-9450. Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Kvennaleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Liðsstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 11.30. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13. Leir í Kirkjuhvoli kl. 13. Gerðuberg Opin handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með leið- beinanda kl. 9-12. Leikfimi Helgu Ben kl. 11-11.30. Útskurður / pappa- módel með leiðbeinanda kl. 13-16. Félagsvist kl. 13-16. Velkomin. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 félagsvist. Guðríðarkirkja Félagsstarf eldri borgara miðvikudaginn 5. sept. kl. 12. Fyrsta samvera haustsins. Bænastund í kirkjunni og söngur. Kynn- ing á vetrarstarfinu. Kjötsúpa í boði á kr. 700. Hlökkum til að sjá ykkur. Sr. Karl, sr. Leifur, Hrönn og Lovísa. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9-14. Hádegismatur kl. 11.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9, útvarpsleikfimi kl. 9.45, zumba með Carynu kl. 10 og hádegismatur kl. 11.30. Handavinna kl. 13, leikfimi og slökun með Önnu kl. 13.15, línu- dans með Ingu kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, ljóðahópur Soffíu kl. 9.45, ganga kl. 10, línudans með Ingu kl. 10, zumba dansleikfimi með Auði kl. 13, tálgun með Valdóri kl. 13.30, síð- degiskaffi kl. 14.30, haustkynning verður fimmtudaginn 6. september. Nánari upplýsingar í Hæðargarði 31 eða í síma 411-2790. Korpúlfar Stjórn og nefndarfundur Korpúlfa kl. 10, gönguhópar ganga frá Borgum kl. 100 og allir velkomnir í GAMAN SAMAN í Borgum í dag frá kl. 13. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleik- fimi kl. 9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl. 11, félagsvist kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14, Bónusbíllinn kl. 14.40, heimildarmyndasýning kl. 16. Seltjarnarnes Gler, glerbræðsla kl. 9 og 13 á neðri hæð Félags- heimilisins við Suðurströnd. Leir Skólabraut kl. 10. Botsía Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Á morgun fimmtudag verður félagsvist á Skólabraut kl. 13.30. Allir velkomnir. Stangarhylur 4 Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði, Stangarhyl 4, kl. 10, kaffi og rúnnstykki eftir göngu. Félagslíf Vitnisburðar- og bænasam- koma kl. 20 í Kristni- boðssalnum. Allir velkomnir. Landssamband sjálfstæðiskvenna Aðalfundur LS og framboð til stjórnar Stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna boðar til aðalfundar miðvikudaginn 19. september 2018 klukkan 17:30 í Valhöll. Dagskrá fundarins: Skýrsla stjórnar: Vala Pálsdóttir, formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna Reikningar starfstímabilisins lagðir fram til samþykktar Kosning formanns til tveggja ára Kosning stjórnar Skipun laganefndar Venjuleg aðalfundarstörf Önnur mál Áhugasömum konum sem vilja taka sæti í stjórn landssambandsins er bent á að senda póst á ls@xd.is fyrir lok þriðjudags 11. september 2018. Kjörgengar eru allar konur sem skráðar eru í aðildarfélög Sjálfstæðisflokksins. Stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna Fundir/Mannfagnaðir MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2018 fjölskyldur þeirra senda Bertu, Kristjönu og Agnari innilegustu samúðarkveðjur. Helga frænka á Laufásveginum. Föðurbróðir minn Guðmundur Bogi Breiðfjörð blikksmíðameist- ari gegndi ýmsum hlutverkum í Breiðfjörðs blikksmiðju öll sín fullorðinsár, að undanskildum fá- einum misserum í Þýskalandi á fyrri hluta sjöunda áratugar, og síðustu árin, þegar heilsan leyfði ekki meira. Smiðjan var frá stofn- un 1902 ekki bara mikilvæg fyrir langafa minn, afa minn, föður minn og tvo eldri föðurbræður mína, heldur var hún í senn at- vinna þeirra og ástríða. Í barn- æsku minni, og á unglingsárum (þegar ég vann í smiðjunni í sumarfríum), var Guðmundur verkstjóri smiðjunnar. Hann var með verkstjórakompu í miðju húsinu við gamla Sigtún 7 en sjaldnast var hann í henni. Ég sá hann aldrei sitja þarna inni. Hann stóð við hátt afgreiðsluborð og tók á móti viðskiptavinum og pöntun- um áður en hann þaut út um smiðjuna alla til að deila verkefn- um á milli starfsmanna, sjá um vöruflutninga og sendingar, breyta stillingum á vélum og skipta um stansa á pressum. Á þessum árum var Guðmund- ur einhleypur maður og bjó á jarð- hæðinni í húsi foreldra sinna að Laugateigi 27 í Reykjavík. Hann mun hafa verið með bíladellu. Ég man eftir mörgum skemmtilegum bílum sem hann átti, bæði banda- rískum og evrópskum. Hann smíðaði meira að segja einn jeppa sjálfur, allavega meirihlutann af honum, ofan á verksmiðjufram- leidda grind. Hann keypti nokkuð stóra lóð austan við Þingvelli og byggði þar tvö sumarhús. Lóðina skreytti hann með stígum, gróðri, brúum og hann bjó til litla tjörn sem hann setti bleikjusíli út í. Þessir sumarbústaðir voru sumarstöðvar fjölskyldu okkar í mörg ár. Svo komu þáttaskil hjá Guð- mundi þegar leið á lok níunda ára- tugar fyrri aldar. Hann kynntist norskættaðri konu og kvæntist henni. Þau eignuðust tvö börn þegar Guðmundur var rösklega fimmtugur. Bertha Ragnheiður Langedal er reyndar tvítyngd og meira íslensk en norsk núna. Hún reyndist honum afar góð eigin- kona. Þegar veikindin komu í ljós fyrir nokkrum árum – þetta var alzheimer – veitti hún honum nærveru og aðhlynningu sem telja má með eindæmum á okkar tíma. Börnin þeirra, Agnar Knut og Kristjana Ólafía, voru líka föður sínum ákaflega hliðholl. Mér finnst eftirfarandi ljóð segja eitt- hvað um samferð Berthu og Guð- mundar síðustu árin: Þegar þú leiðir mig um leyningana dimmu, hæfir mig engin ör – ekki heldur úr launsátri. Þegar þú leiðir mig leysist upp það sem gnæfir líkt og ókleif hindrun fyrir augum mér. Þegar þú leiðir mig skín ljós inn í hönd mína og það svæfir allar svartar hugsanir. (Hannes Pétursson) Ég bjó áratugum saman í Nor- egi. Ég gerðist bókmenntaþýð- andi af íslensku á norsku, og fór að leita aftur heim til Íslands fyrir tíu árum síðan. Ég var – og er – tíður gestur á Laugateigi 27, eins og á liðinni tíð þegar amma og afi voru uppi. Guðmundi fannst ánægjulegt að hlusta á tal mitt um bækur og rithöfunda, og við fór- um saman í ýmsa leiðangra á bók- menntasögulega staði hérlendis. Guðmundur sagði við mig: „Hér er opið hús fyrir þig. Þú ert alltaf velkominn.“ Ég er ævarandi þakklátur fyrir það. Kristján Breiðfjörð. ✝ Ingi Þorbjörns-son fæddist í Vestmannaeyjum 21. janúar 1931. Hann lést á Eiri 25. ágúst 2018. Foreldrar hans voru hjónin Þor- björn Guðjónsson, bóndi á Kirkjubæ í Vestmannaeyjum, og kona hans Guð- leif Helga Þor- steinsdóttir. Ingi var yngstur fimm systkina. Elst var Þórný Unnur, þá Leifur, Engilbert og Björn. Þau eru öll fallin frá. Ingi og systkini hans ólust upp í for- eldrahúsum að Kirkjubæ við frjálsræði en jafnframt skyldur við búskapinn. Þorbjörn faðir Inga stóð fyrir viðamiklum kúabúskap og rækt- un í Vestmannaeyjum. Á upp- vaxtarárunum í Eyjum aðstoð- aði Ingi foreldra sína við búskapinn og það sem til féll á degi hverjum allt þar til eld- gosið hófst í Heimaey 23. janúar 1973 í túnfætinum á Kirkjubæ. Eftir gosið keypti Ingi vörubíl af Engilbert bróður sínum og vann síð- an um skeið hjá Vörubílastöð Vest- mannaeyja við hreinsunarstörf og önnur tilfallandi verkefni. Eftir það flutti Ingi til Reykjavíkur og hóf störf hjá Vörubíla- stöðinni Þrótti sem vörubílstjóri og vann þar meðan heilsan leyfði. Ingi kynntist fljótlega eftir að hann flutti til Reykjavíkur eigin- konu sinni Dóru Jóhannes- dóttur. Ingi og Dóra gengu í hjónaband 13. febrúar 1976. Þau festu síðan kaup á húsnæði í Safamýri 81 í Reykjavík. Þar bjuggu þau saman hátt í 23 ár, eða þar til Dóra féll skyndilega frá 25. nóvember 2000. Ingi bjó síðan áfram í Safamýri þar til hann fékk inni á Hjúkrunar- heimilinu Eiri í Reykjavík í árs- byrjun 2017. Útför Inga fer fram frá Há- teigskirkju í dag, 5. september 2018, klukkan 13. Árið 1973 kynntust Ingi og móðir okkar Dóra Jóhannesdótt- ir (d. 2000). Í kjölfar Vestmanna- eyjagossins var hann nýfluttur til Reykjavíkur frá Vestmanna- eyjum. Þau giftu sig og hófu bú- skap í Safamýri 81 í Reykjavík. Það hefur líklega ekki verið einfalt að kynnast konu með fjögur börn á aldrinum 13 til 25 ára. En þessu tók Ingi með stó- ískri ró eins og hans var von og vísa. Tvö af okkur systkinunum bjuggu þá enn heima og vorum stundum með stæla sem fylgir gjarnan unglingsárunum. En sambýlið við unglingana gekk vel og hnökralaust vegna þess að Ingi sýndi okkur ekkert annað en umburðarlyndi og rólegheit. Á heimili Inga og mömmu var oft mikill gestagangur, þau voru gestrisin og þangað var gott að koma. Þau áttu einstaklega fal- legt heimili og ræktuðu fallegan garð. Ingi og mamma höfðu gaman að því að ferðast og gerðu tölu- vert af því, þau ferðuðust bæði innan- og utanlands. Þau fóru mikið til Spánar og Kanaríeyja, þá gjarnan með vinafólki. Okkur er sérstaklega minnisstæð ferð allrar fjölskyldunnar til Parísar árið 1995, sem var 70 ára afmæl- isferð mömmu okkar. Þetta var ferð sem var skipulögð án vit- undar mömmu og var Ingi með í þeim undirbúningi. Hann og við öll héldum þessu leyndu fyrir mömmu, það tókst og ferðin var algjört ævintýri fyrir alla. Á seinni árum hafði hann mjög gaman af því að láta hug- ann reika og rifja upp þessi ferðalög og staði sem þau höfðu heimsótt. Ingi dvaldi tvö síðustu ár æv- innar á Hjúkrunarheimilinu Eiri, þar sem honum leið mjög vel og fékk hann þar mjög góða umönn- un. Við minnumst Inga með þakk- læti og hlýhug. Guðmunda, Sigríður Hanna, Hannes og Þóra Kristinsbörn. Mín fyrstu kynni af fjölskyld- unni á Kirkjubæ voru þau að ég, smápolli sex eða sjö ára, var að hanga aftan í hestvagninum hjá föður Inga, Þorbirni. Hann var bóndi á Kirkjubæ og seldi bæj- arbúum mjólk í flöskum sem hann dreifði um allan bæ. Þor- björn var alltaf barngóður og hann bauð mér að sitja í vagn- inum og þannig gerðist það að ég varð mjólkurpóstur hjá Tobba, eins og hann var kallaður, og fékk það starf að hlaupa með flöskurnar í húsin. Síðar fékk ég að aðstoða Inga við heyskapinn og var ráðinn kaupamaður á hverju sumri til 16 ára aldurs. Það var mér mikil gæfa að fá að kynnast þessari fjölskyldu og reyndust þau hjónin Helga og Þorbjörn mér alltaf vel og við Ingi Þorbjörnsson áttum eftir að verða góðir vinir. Ingi rak búið með föður sínum alveg fram að eldgosinu 1973 og ráku þeir myndarlegt kúabú með 30-40 nautgripum þegar best lét, einn- ig ræktuðu þeir stór og mynd- arleg tún og ræktuðu rófur og kartöflur. Eldgosið í Eyjum hófst í tún- garðinum á Kirkjubæ. Það þurfti að taka stórar ákvarðanir og voru nautgripirnir reknir í Hrað- frystistöðina, þar sem þeim var slátrað þá um nóttina. Það voru erfið spor hjá fjölskyldunni að sjá á eftir skepnunum, heimili sínu og lífsstarfi sínu í einni svip- an. Það er mín skoðun og örugg- lega margra að fallegasti hluti Eyjarinnar hafi horfið undir hraunið á þessum örlagadögum eldgossins. Eftir að vikurhreinsunin hófst í Eyjum keypti Ingi vörubíl í Eyjum af Berta bróður sínum og fór að starfa hjá Bifreiðastöð Vestmannaeyja og keyrði hann þar í nokkur ár. Eftir það flutti hann til Reykjavíkur og hóf akstur hjá Bifreiðastöðinni Þrótti og lauk starfsferli sínum þar. Það er saga að segja frá þegar Ingi vinur minn hitti draumadís- ina sína, hana Dóru sem átti eftir að verða eiginkona hans. En þannig var að við hjónin buðum Inga í kvöldmat í Hraunbæinn á laugardagskvöldi. Þegar líða fór á kvöldið sagði Ingi: „Jæja, það er víst búið að bjóða mér í sam- kvæmi í kvöld hjá Leifi bróður og Huldu. Þau eru búin að bjóða fleira fólki og ég verð að mæta og Gaui, þú verður að koma með mér.“ Meðal gestanna þetta kvöld var Dóra og hreppti hún piparsveininn frá Kirkjubæ. Það var mikið lán fyrir Inga að kynnast þessari góðu konu sem Dóra var og hennar fjöl- skyldu. Þau hjónin komu til Eyja í fimmtugsafmæli mitt og þótti mér vænt um það. Stuttu seinna lést Dóra um aldur fram og saknaði Ingi hennar mikið. Í samtölum okkar Inga í gegnum árin fann ég hvað hann hafði alltaf sterkar taugar til Eyjanna sinna og vildi hann fá aflafréttir og hvernig gengi hjá Dallasbændum. Nú að leiðarlokum langar mig að þakka fyrir vináttu okkar í meira en sextíu ár. Við Ragnheiður sendum fjöl- skyldu Inga okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Inga Þor- björnssonar frá Kirkjubæ. Guðjón R. Rögnvaldsson. Ingi Þorbjörnsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.