Morgunblaðið - 05.09.2018, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2018
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hljómsveitin Grúska Babúska gaf
út EP-plötuna Tor á laugardag, 1.
september, og heldur tónleika á
Húrra í kvöld kl. 21 þar sem eflaust
munu hljóma nokkur, ef ekki öll,
lög plötunnar. Auk Grúsku Bab-
úsku koma fram á tónleikunum
sveitirnar Rex Pistols og Skaði.
Grúska Babúska hefur gengið til
liðs við tónlistarútgáfufyrirtækið
Möller Records og er Tor fyrsta
plata sveitar-
innar sem gefin
er út af fyrir-
tækinu.
Grúska Bab-
úska hefur verið
breytileg að
stærð allt frá því hún var stofnuð
árið 2010 af þremur ungum tónlist-
arkonum: Arndísi A. K. Gunnars-
dóttur, Guðrúnu Birnu Le Sage de
Fontanay og Hörpu Fönn Sigur-
jónsdóttur, en ári síðar bættist Dísa
Hreiðarsdóttir í hópinn. Nú hafa
fjórar konur tekið við kjarnanum,
þær Harpa Fönn, Dísa, Íris Hrund
Þórarinsdóttir og Erla Stefáns-
dóttir, og leika þær á hin ýmsu
hljóðfæri, m.a. hljóðgervla, meló-
díku, klukkuspil, hörpu og spiladós.
Fyrsta plata sveitarinnar kom út
árið 2013 og það í heldur óvenju-
legu formi, á USB-minniskubbi sem
var inni í babúsku. Síðar sama ár
kom út platan B-sides Grúska Bab-
úska og árið 2015 gaf sveitin út
fimm myndbandsverk og var þeim
öllum leikstýrt af sjónlistakonum.
Tor er því fjórða verkið sem
Grúska Babúska gefur út og voru
lögin á plötunni að mestu samin í
vinnubúðum sveitarinnar í mið-
aldabænum Glastonbury á Eng-
landi fyrir tveimur árum.
Krúttlegur bær
Harpa segir Glastonbury þekkt-
an fyrir hin ýmsu kennimerki frá
miðöldum. „Það er m.a. talið að
gröf Arthúrs konungs sé í Glaston-
bury,“ segir hún, „þetta er talinn
mjög heilagur staður. Glastonbury
Tor er einhvers konar hlið þar og
við erum í raun með titlinum að
vísa í þennan bæ.“
Harpa segir Grúsku Babúsku
hafa farið í tónleikaferð til Bret-
lands árið 2015 og komið þá við í
Glastonbury og spilað þar, þ.e.a.s. í
bænum en ekki á tónlistarhátíðinni
sem við hann er kennd. „Það hafa
allir heyrt um Glastonbury-hátíðina
en bærinn sem er nokkrum kíló-
metrum frá hátíðarsvæðinu er rosa-
lega sjarmerandi. Ég held að skráð-
ir íbúar séu 5.000 og þetta er mjög
krúttlegur bær, fullur af búðum
sem selja kristalla, nornavendi,
-hatta og -kústa, mjög skemmtilegt.
Við spiluðum þarna við mjög góðar
undirtektir og var boðið að koma
þangað aftur, í listamannadvöl og
semja nýju plötuna okkar. Við þáð-
um það og létum verða af því, feng-
um styrk frá Tónlistarsjóði Íslands
til að fara út og vorum í tíu daga.
Við unnum þessa plötu þar og klár-
uðum hana hérna á Íslandi. Barn-
eignir og fleira komu þar inn í en
þetta hafðist,“ segir Harpa kímin.
Alltaf verið tilraunagjarnar
–Í tilkynningu segir um plötuna
að tónlist og hljóðmynd hennar
spretti upp úr dulrænum hljóðheimi
hins andlega, allt frá dreymandi
möntrum yfir í þunga syntha,
trommur og takta. Passar þetta?
„Þetta passar, ég myndi segja
það,“ svarar Harpa og er í fram-
haldi spurð að því hvort breyting
hafi orðið á tónlist Grúsku Bab-
úsku?
„Tónlistin hefur nú alltaf verið
dálítið tilraunakennd, við höfum
alltaf leyft okkur að prófa eitthvað
nýtt, notað skrítin hljóðfæri og ég
man að á fyrstu plötunni notuðum
við til dæmis ljósakrónu, snakkpoka
og steina. En þessi plata er aðeins
þyngri að því leyti að hún fer svolít-
ið inn á við og það er ekki alltaf
„happy go lucky“ þar í fólki. Ég
myndi segja að hún væri persónu-
legri og tilfinningaþrungnari en við
tökum þó alltaf lífinu létt, tökum
okkur ekki of alvarlega. Við erum
að gera þessa tónlist fyrir okkur og
engan annan, erum ekki að reyna
að koma þessu í spilun á Bylgj-
unni,“ segir Harpa og hlær við,
„með fullri virðingu fyrir Bylgj-
unni.“
Miklar breytingar
–Hvað textagerðina varðar stend-
ur m.a. í sömu tilkynningu að text-
arnir fjalli um þá list að tileinka sér
festu og núvitund. Eruð þið búnar
að vera í einhvers konar
núvitundarátaki?
„Við höfum nú alltaf litið á okkur
sem rokkhljómsveit inn við beinið
en upp á síðkastið höfum við verið
að drekka meira grænt te. Við er-
um allar mjög ólíkir persónuleikar
sem gerir tónlistina okkar svo
skemmtilega en allar höfum við
verið að leita svolítið inn á við, í nú-
vitund, jóga og fleira. Þess vegna
spretta textarnir dálítið upp úr
þessari leit. Það hafa orðið miklar
breytingar hjá okkur, bæði er
hljómsveitin alltaf að breytast og
við sem leiðum hana, ég og Íris
Hrund, erum báðar nýbúnar að
eignast okkar fyrstu börn. Við eig-
um báðar stráka rétt tæplega eins
árs og það fær mann til að horfa á
lífið upp á nýtt,“ segir Harpa kímin.
Gaurarnir með í hljóðveri
„Þetta er búið að vera yndislegt
og við höfum bara tekið gaurana
okkar með í stúdíó og þeir hafa líka
verið á mörgum tónleikum með
okkur, í bumbunni.“
Harpa er að lokum spurð að því
hvers vegna hljómsveitin hafi samið
við Möller Records. „Við höfum
verið að sækja í okkur veðrið í raf-
tónlistarstefnunni og Möller eru
þar algjörir kóngar eða drottn-
ingar. Þeir vildu gefa okkur út og
spurðu hvort við vildum ekki sam-
einast þeirra fjölskyldu. Og við er-
um rosalega spenntar fyrir því.“
Tor kemur út rafrænt til að byrja
með að sögn Hörpu og má m.a.
finna hana á Spotify. Frekari upp-
lýsingar um hljómsveitina má finna
á gruskababuska.com og Facebook.
Ljósmynd/Laufey Elíasdóttir
Leitandi Harpa Fönn, Dísa Hreiðarsdóttir og Íris Hrund Þórarinsdóttir skipa Grúsku Babúsku ásamt Erlu
Stefánsdóttur sem vantar á myndina sem tekin var áður en hún gekk til liðs við hljómsveitina.
Grúska Babúska leitar inn á við
Tor, fjórða plata Grúsku Babúsku, kom út 1. september „Ég myndi segja að hún væri persónu-
legri og tilfinningaþrungnari,“ segir Harpa Fönn um plötuna Tónleikar á Húrra í kvöld
Listasafni Reykjavíkur hafa borist
umsóknir frá yfir 130 listamönnum
um þátttöku í D-salar sýningaröð
Hafnarhússins á næsta ári og eru
þær bæði frá íslenskum og erlend-
um listamönnum. Þessi fjöldi er
langt umfram væntingar, að því er
fram kemur í tilkynningu frá safn-
inu, og er haft eftir Ólöfu Kristínu
Sigurðardóttur safnstjóra að þessi
mikli fjöldi umsókna sýni fram á
hve verkefnið sé þakklátt og hve
mikil gróska sé í myndlistinni.
Tilkynnt verður um val á lista-
mönnum við opnun næstu sýningar
í D-sal, 13. október, og verður hún
sú 34. í röðinni. Sýningin verður
með verkum listakonunnar Maríu
Dalberg.
Ráðgerðar eru fjórar sýningar í
D-sal á næsta ári og dómnefndar
bíður því erfitt starf að velja úr
hinum mikla fjölda umsókna. Aug-
lýst var eftir umsóknum um miðjan
júlí á þessu ári og rann frestur út
31. ágúst. Er það nýtt fyrirkomulag
á vali á listamönnum í sýningaröð-
ina skv. tilkynningu þar sem segir
að markmiðið með röðinni sé að
gefa listamönnum með skamman
feril að baki tækifæri til að beina
athygli að listsköpun sinni.
Sýningaröðin í D-sal Hafnarhúss-
ins hóf göngu sína árið 2007 og
hafa rúmlega þrjátíu listamenn
sýnt verk sín í henni, listamenn
sem hafa sterka og persónulega
listræna sýn en hafa ekki áður
haldið einkasýningu í opinberu
safni.
Morgunblaðið/Einar Falur
Í D-sal Páll Haukur Björnsson sýndi í D-sal Hafnarhússins í byrjun þessa árs.
Yfir 130 sóttu um að sýna í D-sal VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk. | SÍMI 419 9000 | info@handafl.is | handafl.is
Við útvegum hæfa
starfskrafta í flestar
greinar atvinnulífsins
Handafl er traust
og fagleg
starfsmannaveita
með margra ára reynslu
á markaði þar sem við
þjónustum jafnt stór
sem smá fyrirtæki.
ICQC 2018-20