Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 8
Leigufélagið Heimavellir var stofnað árið 2013 að norrænni fyrirmynd með samruna þriggja leigufélaga og hefur vaxið hratt undanfarin ár. Rúmlega 120 íbúðir voru í eignasafni Heima- valla í byrjun árs 2015 en í dag eru þær 1.978. Heimavellir voru skráðir á markað í maí á þessu ári en frá þeim tíma hefur gengi bréfa félagsins lækkað um 20% í Kauphöllinni. Markaðsvirði þess á lokadagsgengi í gær var 12,7 milljarðar króna, sem er töluvert lægra en eigið fé félags- ins, sem var 18,6 milljarðar króna í bókum þess í lok júní, sem bendir augljóslega til þess að fyrir- tækið sé undirverðlagt. Umræðan í kringum fé- lagið hefur að mörgu leyti verið neikvæð. Fyrir- tækið hefur verið sakað um gróðahyggju, sér í lagi í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í vor, þegar margir bentu á leigufélögin sem einn helsta orsakavald hækkana á fasteignamarkaði. Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimavalla, segist sáttur við sjálft útboðið í maí en vonbrigði að sjá hvernig gengi bréfa þess hefur þróast frá skráningu. Hann segir fyrir- tækið eiga mikið inni og sé, þegar horft er til lengri tíma, álitlegur kostur á markaði enda fé- lag sem starfi á tiltölulega stöðugum og áhættu- litlum markaði. Vonbrigði með hlutafjárútboð „Að sjálfsögðu er verðþróun á gengi félagsins vonbrigði,“ segir Guðbrandur aðspurður um hlutafjárútboð Heimavalla í maí en strax á fyrsta degi lækkaði gengið á bréfum félagsins í 1,24. „Við töldum að hóflegt útboð á genginu 1,39 myndi vekja áhuga markaðarins á félaginu því að á þeim tíma var bókfært gengi bréfanna töluvert hærra. En við erum kannski að fara á óheppilegum tíma inn á markaðinn. Þar virðist vera lítið fjármagn til nýfjárfestinga eins og nokkuð hefur verið rætt um. Frá því að við fór- um á markað hefur hann fallið um 20-25% sem er kannski í takt við það sem hefur verið að ger- ast hjá okkur líka,“ segir Guðbrandur í samtali við ViðskiptaMoggann. Guðbrandur segir að rekstur leigufélaga sé áhættulítill og henti þess vegna vel í dreifð eignasöfn fjárfesta. „Ég held að á einhverjum tímapunkti fari markaðurinn að sjá að þetta félag á mikið inni, en við þurfum að vinna ötullega að því að bæta rekstur félagsins og sýna fram á að það sem við erum að gera sé algjörlega raunhæfur kostur til lengri tíma litið. Enda er þetta eignaflokkur sem er í eðli sínu mjög áhættulítill og hentar þess vegna mjög vel í eignasöfn fjárfesta. Maður sér það víðast hvar erlendis að svona stöðug fyrirtæki eru alltaf hluti af eignasöfnunum. En auðvitað er þetta bara ungt félag sem hefur vax- ið hratt og við þurfum líka að sanna okkur. Mað- ur skilur það líka,“ segir Guðbrandur sem segir að fyrirtækið trúi á það sem það stendur fyrir. „Við erum trú því sem við erum að gera. Fé- lagið er ungt og það fór auðvitað mikil orka í að byggja það upp, ryðja brautina og koma því á markað. Ég held að það sé ekkert fyrirtæki á Ís- landi sem á sér styttri rekstrarsögu og hefur farið á markað,“ segir Guðbrandur. Fjarvera lífeyrissjóða Fjarvera nokkurra stærstu lífeyrissjóða landsins í hlutafjárútboði Heimavalla var nokk- uð æpandi en aðeins einn lífeyrissjóður, Birta, er í hópi tíu stærstu hluthafa fyrirtækisins. Guð- brandur segist þakklátur fyrir þann stuðning en hann hafi ekki sérstaklega búist við þátttöku stærstu lífeyrissjóðanna núna en telur þó að fjárfesting í Heimavöllum sé álitlegur kostur fyrir þá. „Ég myndi halda að þetta væri mjög gott tækifæri fyrir lífeyrissjóðina, en þeir eru í augnablikinu kannski fyrst og fremst að horfa á fjárfestingar erlendis. Þeir hafa líka verið að setja inn mjög mikla peninga á fasteigna- markaðinn í gegnum sjóðfélagalánin. Það er auðvitað frábært að fólk fái aðgang að fjármagni á góðum kjörum, en ég hef líka haldið því fram að á sama hátt ættu lífeyrissjóðirnir einnig að standa við bakið á þeim sjóðfélögum sem eru á leigumarkaði og veita leigufélögum á borð við Heimavelli brautargengi,“ segir Guðbrandur. „Ég átti svo sem aldrei von á því að þeir myndu koma inn á þessum tíma en auðvitað vonast ég til að þeir komi í eigendahópinn í fyll- Heimavellir eiga mikið in Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Heimavellir færa leigumarkaðnum stöðugleika sem ekki hefur verið áður að sögn Guðbrands Sigurðs- sonar framkvæmdastjóra. Hann segir að félagið eigi mikið inni og ekki sé skynsamlegt að leysa það upp á þessari stundu eftir mikla vinnu og hraðan vöxt undanfarin ár. Hann segir Heimavelli álitlegan fjár- festingarkost til lengri tíma litið enda teljist fyrirtækið í áhættulitlum eignaflokki. 8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018VIÐTAL lykilstærðir 30. júní 2018 Heimavellir Eigið fé 18,6 milljarðar Heildarskuldir 39,3 milljarðar Tap 136,3 milljónir Leigutekjur 1,8 milljarðar Fjöldi íbúða 1978 Útleiguhlutfall 96,30% Markaðsverðmæti m.v. 1,13 12,7 milljarðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.