Morgunblaðið - 20.09.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 20.09.2018, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018FRÉTTIR Sími 555 3100 www.donna.is Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu Ég lifði af ©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim. Af síðum Evrópusambandinu er oft, og það mjög réttilega, lýst sem yfirþjóðlegu lagabákni. En ef við einblínum á áherslu ESB á lagabókstafinn þá er hætt við að við missum af öðru og ekki síður mikilvægu atriði sem ein- kennir samstarf Evrópuríkjanna: að þar hefur jafnt og þétt verið unnið að því að skapa traust á milli aðild- arríkjanna. Að halda uppi lögum og reglu skiptir svo sannarlega máli, en það er dalandi traust sem gæti veikl- að Evrópu – ekki bara á pólitíska sviðinu heldur líka á því efnahags- lega. Við skulum skoða, sem dæmi, mál úkraínska aðgerðasinnans Lyud- mylu Kozlovsku sem var í síðasta mánuði stöðvuð af landamæravörð- um á flugvellinum í Brussel og vísað úr Evrópusambandinu. Reyndist Ríkisstjórn Póllands hafa horn í síðu Kozlovsku vegna hagsmunasamtaka sem hún stofnaði og rekur í Varsjá með pólskum eiginmanni sínum. Meðan á ferð hennar til Úkraínu stóð var Kozlovsku meinað að snúa aftur til heimkynna sinna í Póllandi og sett á svartan lista í tölvukerfi Schengen- svæðisins. Með þessu útspili gerðu pólsk stjórnvöld öll hin aðildarríki Schengen-samstarfsins – að belgísku landamæravörðunum meðtöldum – að samverkamönnum sínum í því að meina Kozlovsku aðgang að Póllandi. Ráðamenn í Varsjá halda því fram að eitthvað grunsamlegt sé við það hvernig samtök Kozlovsku hafa verið fjármögnuð. En jafnvel ef það reyn- ist vera rétt þá væri um að ræða brot sem er fjarri því nógu alvarlegt til að réttlæta það að loka nærri allri Evr- ópu fyrir réttindafrömuði, bara af því að ríkisstjórn eins lands datt það í hug. Öllu sennilegri ástæða fyrir ákvörðun Póllands er færsla sem eig- inmaður Kozlovsku birti á Facebook á síðasta ári þar sem hann hvatti samlanda sína til borgaralegrar óhlýðni til að mótmæla aðgerðum pólsku ríkisstjórnarinnar gegn frjálsum félagasamtökum. Liggja ráðamenn í Varsjá því und- ir grun um að hafa notað kerfi sem var ætlað að verja þjóðaröryggis- hagsmuni til að refsa baráttukonu fyrir það að vera þeim óþægur ljár í þúfu. Í mótmælaskyni veittu þýsk stjórnvöld Kozlovsku skammtíma- áritun í síðustu viku svo hún gæti ávarpað þýska þingið. Þetta er makalaus atburðarás. Schengen- samningurinn markaði tímamót í samstarfi þjóða. Að afnema landa- mæraeftirlit (nema við alveg sér- stakar aðstæður) kallaði á fullkomna samstöðu og traust á milli aðildar- ríkjanna um að þau myndu öll taka öryggishagsmuni hvert annars jafn alvarlega og sína eigin. Mál Koz- lovsku sýnir hversu viðkvæmt þetta samstarf er. Þegar ríki fara að nota það sem vopn í eigin innanlands- pólitík að Schengen-löndin verða að reiða sig hvert á annað vakna spurn- ingar um hvort hægt verður að halda þessu samstarfi til streitu. Hriktir í pólitískum undirstöðum í álfunni Málið varðar svo miklu meira en bara Kozlovsku sjálfa, og hefur að gera með þær pólitísku undirstöður sem Schengen-samstarfið hvílir á. Og ekki bara það. Ef við skoðum hlutina vandlega sjáum við að allt samstarf Evrópuþjóðanna byggist ekki bara á því að fylgja sameigin- legum reglum heldur líka að hafa sömu væntingar um hvernig önnur aðildarríki beita því valdi sem þeim hefur verið veitt. Lélegt eftirlit með peningaþvætti í Lettlandi og Eistlandi (og einnig hjá rótgrónari fjármálamiðstöðvum) grefur undan bankakerfi allrar Evr- ópu. Frjálslegar reglur Möltu um veitingu ríkisborgararéttar gefa auðmönnum greiða leið að öllum þeim réttindum sem borgarar ESB njóta. Óánægja með ríkisfjármál sumra evrulandanna hefur komið óorði á fjárlagareglur Evrópusam- bandsins eins og það leggur sig og það þrátt fyrir að ýmis framfara- skref hafi verið stigin. Þessi dæmi og fjöldamörg til viðbótar snúast ekki um að aðildarríki séu að brjóta lögin, heldur eru þau að beita þeim og túlka með þeim hætti að sameiginlegir evr- ópskir hagsmunir eru að engu hafðir. Það blasir við að ef traustið fer þverrandi þá eiga ríki ESB erfiðara með að sýna pólitíska samstöðu. Efnahagslega tjónið sést ekki jafn greinilega en er samt engu minna al- varlegt. Efnahagslegur þróttur Evr- ópu byggist ekki bara á þeim reglum sem gilda um innri markaðinn, og að þeim sé fylgt, heldur byggist hann líka á því að traust ríki á milli aðild- arríkjanna. Traust er gulls ígildi Traust leiðir til betri lagasetn- ingar. Það er auðveldara að fallast á málamiðlun í skiptum fyrir aukna hagsæld fyrir heildina ef allir geta treyst því að enginn ætli sér að hagn- ast á kostnað hinna. Ef traust ríkir á milli landa er líklegra að þau hlíti sameiginlegum reglum af fúsum og frjálsum vilja, sem þýðir að ekki þarf að kosta eins miklu til við eftirlit og eftirfylgni. En traust þýðir líka að það þarf ekki að setja jafnmargar reglur, gera jafnmarga samninga og ráða jafn- marga lögfræðinga til vinnu. Þau hagkerfi þar sem ríkir mikið traust njóta verulegs forskots af því að þurfa ekki að kerfisbinda alla efna- hagsstarfsemi niður í smæstu smáat- riði. Ef traust er fyrir hendi er hægt að fylla upp í glufur í lögum og samn- ingum með sameiginlegum skilningi á því hvernig hlutirnir eiga að vera og gagnkvæmum vilja til að haga sér í samræmi við það. Felst mikill efna- hagslegur ávinningur í þeim fyr- irsjáanleika sem þetta skapar. Eitt af því sem getur komið í stað- inn fyrir minnkandi traust er ítarlegri reglur. (Óháðir sérfræðingar halda því fram að Belgarnir hefðu átt að spyrja spurninga um hvers vegna Kozlovska var sett á svarta listann áður en þeir vísuðu henni úr landi. Er næsta víst að málið mun fara fyrir dómstóla.) En lög og samningar ná ekki yfir hverja minnstu glufu og gloppu á sama hátt og gagnkvæmt traust gerir. Og svo veldur minnk- andi traust því líka að erfiðara verður að setja lög sem eiga að bæta upp fyr- ir skort á trausti. Eru löndin of háð hvert öðru? Ef strangari reglur geta ekki slegið á þá tilfinningu fólks að verið sé að misnota sameiginlegar stofnanir Evr- ópusambandsins, þá væru rökrétt viðbrögð að reyna að draga úr því hve mikið löndin eru hvert öðru háð. Að misnota það traust sem greiðir fyrir atvinnustarfsemi í Evrópu er til marks um ótrúlega skammsýni. Það leiðir annaðhvort til meiri miðstýr- ingar við lagasetningu eða tærir smám saman upp efnahagsleg tengsl á milli þjóða. Smærri og minna þróuð hagkerfi, þar sem nú þegar ríkir minna traust á meðal fólks, myndu tapa mestu á þess háttar þróun. Það væri afleitt ef nýj- ustu aðildarríki ESB, sem hafa grætt mest á því að verða hluti af þeirri Evrópu sem byggir grundvöll sinn á gagnkvæmu trausti, yrðu þau sömu og spilla fyrir traustinu. Dalandi traust veldur efnahagslegu tjóni Eftir Martin Sandbu Fleinn er rekinn í sam- starf ríkja innan ESB og pólsk stjórnvöld reyna nú á þolrifin á vettvangi Schengen. Hætt er við að þessi þróun leiði til þverr- andi trausts og efnahags- legs tjóns fyrir alla álfuna. AFP Ríkisstjórn Mateusz Morawiecki, forsætisráðherra Póllands, sætir harðri gagnrýni vegna máls Kozlovsku.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.