Morgunblaðið - 20.09.2018, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 20.09.2018, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018 11FRÉTTIR TIL LEIGU Skipholt 31 – 105 Reykjavík Skrifstofuhúsnæði 2. og 3. hæð hússins Stærð samtals 1.200 fm. Virðisaukaskattslaust. Ólafur Jóhannsson Rekstrarfræðingur Löggiltur leigumiðlari Löggiltur fasteignasali 534 1023 / 824 6703 olafur@jofur.is Allar nánari upplýsingar veitir: Til leigu tvær samliggjandi skrifstofuhæðir samtals um 1.200 fm. Um er að ræða 2. og 3. hæð hússins (efstu hæð). Lyfta í sameign. Gott útsýni og gluggar allan hringinn. Tveir rafmagnsstofnar eru inn í húsið og tveir ljósleiðarar, lagnaskápur fyrir netkerfi með lögnum í allar skrifstofur á hæðum og tengibox fyrir ljósleiðara. Aðgangsstýrt bílaplan með yfir 50 stæðum er við húsið. Getur hentað mjög vel fyrir t.d. tölvufyrirtæki eða almenna skrifstofustarfsemi. Uppl. um leiguverð gefur Ólafur í síma 824-6703. Laust strax. Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is Húsnæðið skiptist upp í stóran sal, sér lager/ verkstæðisrými, lokaðar skrifstofur, fundarherbergi, eldhús/ kaffistofu og snyrtingar. Glæsilegt hús á áberendi stað sem getur hentað sem verslun eða fyrir þjónustufyrirtæki. Möguleiki er að leigja til viðbótar um 3.500 fm. afgirt geymslu-/ athafnasvæði milli Fiskislóðar og Grandagarðs. 534 1020 Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is Ólafur S: 824 6703 Magnús S: 861 0511 Sigurður J. S: 534 1026 Helgi Már S: 897 7086 Bergsveinn S: 863 5868 TIL LEIGU Fiskislóð 16, 101 Rvk Gerð: verslunar-/ þjónustu- húsnæði á áberandi stað Stærð: 456,7 m2 Allar nánari upplýsingar veitir: Helgi Már Karlsson Löggiltur lei umiðlari, lögg ltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. 897 7086 | 534 1024 hmk@jofur.is Af síðum Þrátt fyrir hið frjálsa fas og sólbrennda húðina þráir fólkið sem býr á vestur- strönd Bandaríkjanna það að verða jafn virðulegt og íbúar austurstrandarinnar. Núna freistar enn einn Kaliforníubúinn þess að komast í hóp allra fínasta liðsins á Manhattan og í Washington DC: vinstrisinnaði og sérvitri milljarðamær- ingurinn Marc Benioff, stofnandi Sales- force.com. Benioff mun seint verða vin- margur út á það að vera manna fróðastur um viðskiptavenslaumsjón í skýinu. Hann upplýsti því á sunnudag að hann hygðist kaupa hina mjög svo virðulegu útgáfu Time Magazine af Meredith Corp á 190 milljónir dala og greiða fyrir það með reiðufé. Tímaritaútgáfa á undir högg að sækja og lítur allt út fyrir að kaupin séu til þess gerð að Benioff verði hleypt inn í fínni kreðsu. Þegar Meredith, sem er með höfuðstöðvar sínar í Iowa, keypti Time Inc.-samsteypuna fyrr á þessu ári á 2,8 milljarða dala var ljóst að aldrei stæði til að halda í þekktustu vörumerkin eins og Time, Sports Illustrated og Fortune. Það eru frekar blöð á borð við People Magazine, sem fylgdu með í kaupunum, sem falla vel að útgáfu Mere- dith á lífsstílsblöðum fyrir konur, s.s. Homes & Garden. Meredith keypti Time Inc. á verði sem jafngilti um það bil sjöföldu ebitda. Ekki hefur verið upplýst hve mikill hagnaður er af rekstri Time en af fréttum má ráða að kaupverðið sé í kringum sexfalt ebitda. Þrátt fyrir lægra margfeldi má segja að kaupum Benioff fylgi meiri áhætta. Var reiknað út að með því að sameina Time Inc. og Meredith mætti ná fram hagræðingu sem jafngilti öllum rekstr- arhagnaði Time Inc. Fyrir fjárfesta eins og Benioff, sem kaupa dag- blöð til að nota sem skrautfjaðrir , s.s. Patrick Soon-Shiong (Los Angeles Times) eða Jeff Bezos (Washington Post), bjóða stök fjöl- miðlafyrirtæki ekki upp á mikla möguleika til að stuðla að meiri hagnaði með stærðarhagkvæmni. Kannski tækniþekking Benioffs geti nýst til að umbreyta Time og laga útgáfuna að stafrænum fjölmiðlamarkaði. En í ljósi þess hve harður slagurinn er á netauglýsingamarkaði, og hve erfitt er að afla tekna með sölu áskrifta, verður að teljast harla ólíklegt að Time tak- ist að skera sig úr hópnum. En það er ekki endilega svo slæmt fyrir samfélagið ef þeim sem kaupa fjölmiðla til að eiga eins og verðlauna- gripi stendur á sama um hvort reksturinn er arðbær eður ei. Ef hann sættir sig við taprekstur til að gera starfsmönnum Time fært að stunda góða blaðamennsku ætti Benioff fyllilega skilið að vera boðið í allra bestu samsætin. LEX AFP Time/Benioff: dagblaðadraumar Það er ekki að ástæðulausu að þau eru kölluð tollastríð. Nýjasti um- gangurinn af gagnkvæmum tolla- hækkunum Bandaríkjanna og Kína stafar af sömu stolts- og hræðslu- tilfinningum og leiða til þess að al- vörustríðsátök brjótast út. Þegar annað landið brýnir vopnin þá getur hitt varla gert annað en að gera slíkt hið sama. Báðir deiluaðilar óttast að ef þeir gefa eittvað eftir þá verði það þeim til minnkunar bæði í augum umheimsins og í augum samlanda þeirra. Ríkisstjórn Trumps lítur svo á að Kína hafi, svo áratugum skiptir, ver- ið að „svindla“ í viðskiptum . En þegar Bandaríkin hófu að hækka tolla í júlí þá voru fyrstu viðbrögð Kínverjanna ekki eftirgjöf heldur að hækka tollana sín megin á móti. Núna er sú staða komin upp að Trump hyggst bæta við 10% viðbót- artolli á kínverskar innflutnings- vörur að verðmæti 200 milljarða dala. Enn magnast deilurnar Það var hægt að sjá það fyrir að Kínverjarnir hafa, í stað þess að láta undan, lofað að svara nýjasta útspili Trumps með enn frekari tollum á bandarískar vörur. Trump þykir rökrétt að magna deilurnar enn frekar og segir að hann muni þá leggja á enn hærri tolla – og hugs- anlega hækka gjöldin upp í 25% – svo að nái hér um bil yfir allan þann kínverska varning sem fluttur er inn til Bandaríkjanna. Báðar fylkingar eru reiðubúnar að heyja tollastríð því þær telja sigurlíkur sínar góðar. Bandaríkin halda að hagkerfi Kína sé í erfið- leikum statt og því viðkvæmt fyrir hvers kyns efnahagslegum þrýstingi frá Bandaríkjunum. Larry Kudlow, yfirefnahagsráðgjafi Hvíta hússins, sagði nýverið að „hagkerfi Kína væri á leið beint í ruslið“. Banda- ríkjamennirnir vita líka að það er mikill afgangur af vöruskiptum Kín- verja við Bandaríkin og hefur Kína því meiru að tapa í tollastríði. Kínverska ríkisstjórnin heldur, aftur á móti, að það valdboðskerfi sem þar er við lýði eigi auðveldara með að standa af sér viðskiptastríð en ameríska kerfið, sem er viðkvæmara fyrir alls kyns þrýstingi og óánægju neytenda. Það hefur varla farið framhjá ráðamönnum í Peking að ríkisstjórn Trumps þurfti að koma bandarískum sojabauna- bændum til hjálpar eftir að tollar Kínverja lækkuðu tekjur þeirra. Jeremy Shapiro hjá European Council on Foreign Relations orðar hlutina svona: „Bæði löndin telja sig geta unnið og eru því fús að heyja stríð. Frá sjónarhóli stjórnmála- fræðinnar snúast stríð nærri alltaf um hver telur sig hafa hlutfallslega meiri völd en hinn, annars væri eng- in ástæða til að takast á. Í þessu til- viki þarf að heyja viðskiptastríð til að finna svarið við því hvort ríkjanna hafði á réttu að standa.“ Fram til þessa hefur viðskipta- stríðið aðallega verið háð með toll- um. En bráðum mun Kína verða uppiskroppa með bandarískar vörur til að hækka tollana á, og þá þurfa stjórnvöld þar að finna aðrar leiðir til að svara árásum Bandaríkjanna. Það má strax sjá merki um vissar breytingar. Ríkiserindrekar segja að Kína hafi þegar slakað á við- skiptaþvingunum gegn Norður- Kóreu en þvinganirnar skipta miklu fyrir getu Bandaríkjanna til að knýja Kim Jong Un til að hætta þróun kjarnorkuvopna. Kínverjarnir væru líka vísir til að setja nýjar regl- ur sem væru til þess gerðar að íþyngja bandarískum fyrirtækjum með starfsemi í Kína. Og svo gæti Kína freistað þess að veikja gjald- miðil landsins og þannig léttilega vegið upp á móti áhrifunum af 10% tolli. Ríkisskuldir Bandaríkjanna En svo hafa nýlega vaknað nýjar spurningar um hversu mikilvægt hlutverk Kína leikur sem kaupandi bandarískra ríkisskuldabréfa. Sumir hafa lengi haldið því fram að Kína gæti beitt Bandaríkin töluverðum þrýstingi með því einfaldlega að hætta að kaupa af þeim ríkisvíxla, með þeim afleiðingum að erfiðara yrði að fjármagna hallarekstur ríkis- sjóðs. Hillary Clinton fullyrti á sín- um tíma að Bandaríkin myndu eiga erfitt með að „sýna hörku“ í sam- skiptum við ráðamenn í Peking því að Kína er „lánveitandi Bandaríkj- anna“. Í valdatíð Baracks Obama var það aftur á móti ríkjandi viðhorf að Kína gæti aldrei selt bandarísk ríkisskuldabréf í stórum stíl því það myndi ganga á sparnað Kínverjanna sjálfra. En nú þegar hallinn á ríkis- sjóði Bandaríkjanna er í methæðum, eftir skattalækkanir Trumps, þá er alveg öruggt að Kínverjarnir eru að skoða hvort hægt sé að nota skulda- bréfin sem vopn í viðskiptastríðinu. Þegar stríð brjótast út þá líta dagsins ljós alls kyns ný vopn. Það gildir um viðskiptastríð rétt eins og alvörustríð. Rökin að baki tollastríðum Eftir Gideon Rachman Enn harðna átökin milli Kína og Bandaríkjanna og æðstu ráðamenn beggja ríkja hika ekki við að herða tökin á mótherjan- um. Fyrir því eru gild rök en bæði ríkin hafa þó ýmsu að tapa ef allt fer á versta veg. AFP Það andar köldu milli Donald Trump, forseta Bandaríkjanna og Xi Jinping, forseta Kína. Þeir beita tollum í átökum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.