Morgunblaðið - 20.09.2018, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018 15FÓLK
Vantar fyrirtækið þitt gæða
prentefni? Við bjóðum fjöl-
breyttar lausnir hvort sem er í
offset eða stafrænt. Komdu við
í kaffisopa og við finnum leið
sem hentar best hverju sinni.
PRENTVERK
SAMSTARFSAÐILI
HVAR SEM ÞÚ ERT
Hringdu í 580 7000
eða farðu á sumarhusavorn.is
Sveinn Þórarinsson, forstöðumaður
hlutabréfagreiningar hjá hagfræði-
deild Landsbankans, var gestur á opnum
fyrirlestri viðskiptafræðideildar Háskóla
Íslands í vikunni. Vel var látið af erindi
Sveins sem fjallaði um stöðu og hlutverk
flugfélaganna í uppbyggingu á ferðaþjón-
ustu á Íslandi síðustu ár og rýndi einnig í
rekstur þeirra og framtíðarhorfur. Færri
komust að en vildu en fundurinn fór fram í
Ingjaldsstofu í húsakynnum Háskóla Ís-
lands á Háskólatorgi.
Rýnt í rekstur flugfé-
laganna í háskólanum
Björgólfur Jóhannsson, fyrrverandi for-
stjóri Icelandair Group, lét sig ekki vanta.
Staða flugfélaganna
hefur verið þung að
undanförnu.
Ari Skúlason hjá
Landsbankanum
fylgdist vel með.
Vel var látið af erindi
Sveins Þórarins-
sonar, sem sést hér.
Fundarmenn fylgdust
grannt með gangi mála.
Ásgeir Jónsson, forseti
hagfræðideildar HÍ, og
Þórólfur Árnason, forstjóri
Samgöngustofu, mættu.
Morgunblaðið/Eggert
FYRIRLESTUR