Morgunblaðið - 20.09.2018, Side 16

Morgunblaðið - 20.09.2018, Side 16
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTA OGGINN VIÐSKIPTI Á MBL.IS Brugðið eftir eitt „óviðeigandi“ tilvik Hafa tvisvar kyrrsett flugvélar Leitar réttar síns vegna uppsagnar Milljarðaskuld við Isavia Sagt upp vegna „óviðeigandi“ ............ Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Ísland færir sig upp um eitt sæti á milli ára og stendur sig í ár næstbest 146 þjóða í mælingu fyrirtækisins Social Progress Imperative á vísitölu félagslegra framfara, Social Progress Index (SPI). Einungis Norðmenn standa betur en vísitalan mælir vel- megun og lífsgæði þjóða og aðgreinir sig frá öðrum mælikvörðum á þann hátt að hún byggir eingöngu á sam- félagslegum og umhverfistengdum breytum. Samkvæmt þremur grunn- víddum skorkorts SPI eru Íslend- ingar í þriðja sæti þegar kemur að grunnþörfum einstaklingsins, í sjö- unda sæti þegar kemur að grunn- stoðum velferðar og í sjötta sæti þeg- ar kemur að tækifærum einstakl- ingsins til betra lífs. Fremstir í 12 flokkum Íslendingar eru fremstir í 12 flokk- um af 51 á listanum. Hér á landi er t.d. vannæring minnst, ungbarna- dauði og dánartíðni mæðra við fæð- ingu einnig minnst og þá er á Íslandi best aðgengi að drykkjarvatni. Ís- lendingar standa einnig öðrum fram- ar í jákvæðu viðhorfi til samkyn- hneigðra auk þess sem umburðar- lyndi gagnvart minnihlutahópum er hvergi í heiminum meira. Íslendingar ættu að geta gert betur í ýmsum flokkum, þar á meðal þegar kemur að aðgengi að lágmarkshreinlæti, en þar er Ísland í 32. sæti. Varðandi þátt umhverfisgæða er Ísland aðeins í 17. sæti og vegur þar þungt meðhöndlun fráveitu sem og slök frammistaða við verndun lífríkisins en þar er Ísland í 84. sæti. Sé litið á heiminn í heild bæta 133 þjóðir af 146 sig á milli ára. Mestar eru framfarirnar í Asíu og í Afríku sunnan Sahara. Afturför er hins vegar hjá Tyrklandi og Banda- ríkjunum. 75 af 146 þjóðum sýna merki um versnandi þróun borgara- legra réttinda. Morgunblaðið/Styrmir Kári Íslendingar hafa það afskaplega gott miðað við vísitölu félagslegra framfara. Ísland upp í annað sætið Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Íslendingar standa sig sífellt betur samkvæmt útreikn- ingum fyrirtækisins Social Progress Index sem mælir vísitölu félagslegra framfara. Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Ráðstefna á vegum norrænu ráð-herranefndarinnar og utanríkis- ráðuneytisins var haldin síðasta haust í Kaupmannahöfn. „Frá Íslandi hélt Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, kynningu um góðan ár- angur fyrirtækisins í jafnrétt- ismálum,“ segir í frétt undirritaðs sem var á staðnum. Í fyrirlestrinum komu fram þau markmið OR að eyða skyldi óútskýrðum launamun. „Við erum komin niður í 1,1% úr 8,4% og höfum lofað sjálfum okkur að fara niður í 0 fyrir lok árs,“ sagði Bjarni og uppskar skiljanlega lófaklapp fyrir. Ímáli Bjarna kom fram að OR hefðiráðið kynjasérfræðing til þess að rannsaka fyrirtækjamenninguna. Sérfræðingurinn skrifaði skýrslu og tók fyrirtækið engum vettlingatökum að sögn Bjarna. Í OR þyrfti að ráða bót á málum. Var hver einasti starfs- maður meðal annars settur á nám- skeið um kynjajafnrétti og leiðbein- endur nýrra starfsmanna þjálfaðir með aðferðir kynjajafnréttis að leið- arljósi. Í enda dags er þetta spurning umfyrirtækjamenningu. Og það er framkvæmdastjórnin sem ber ábyrgð á því að þróa hana,“ sagði Bjarni, sem benti á að eftir átak OR hefði starfs- ánægja þar aukist, stríðni á vinnustað væri minni og einkum og sér í lagi væri minni áhætta á kynferðislegri áreitni. „Hún er nánast horfin,“ sagði Bjarni. En annað kom á daginn hjá fyrirtækinu. Er ekki við hæfi á 10 ára afmæli hrunsins að Íslendingar hætti að stæra sig af því sem virðist inni- haldslaust þvaður á alþjóðavettvangi? Innihalds- laust erlendis Með öndina í hálsinum beið ís-lensk ferðaþjónusta eftir því að forsvarsmönnum WOW tækist að loka boðuðu skulda- bréfaútboði. Tíðindin bárust svo á þriðjudag og ekkert bendir til annars en að félagið tryggi sér ríflega 7 milljarða fjármögnun með aðgerðinni. Það eru jákvæð tíðindi enda ljóst að mikill vöxtur og afar krefjandi rekstrarum- hverfi kölluðu á að félagið tryggði sér skjótt og vel verulegar fjár- hæðir. Vöxtur WOW á síðustu árumhefur verið hreint ævintýra- legur og honum hefur fylgt aukin samkeppni og meira framboð á flugi til og frá Íslandi. Þótt ís- lensku flugfélögin fljúgi að mestu á sömu áfangastaðina hafa þau, m.a. vegna samkeppninnar, teygt sig víðar og opnað dyr fyrir ferða- glaða Íslendinga að nýjum áfanga- stöðum. Sömu kraftar hafa leitt til þess að fleiri útlendingar geta nú látið draum sinn um að berja landið í norðri augum. Útboðið sem nú er í höfn erfyrsta skref af mörgum sem Skúli Mogensen og hans fólks þurfa að stíga á komandi miss- erum til að tryggja WOW í sessi. Félagið er gírað, byggir á glæsi- legum nýjum flugvélaflota sem er fjármagnsfrekur og það keppir á markaði þar sem verðstríð er við- varandi og að því er virðist sífellt að harðna. Það eru áskoranir sem fylgja því í ofanálag við innri vöxt sem ekki sér fyrir endann á. Það verður spennandi að fylgj-ast með félaginu á komandi mánuðum, ekki síst þeim áætl- unum sem gefnar hafa verið út um mögulega skráningu þess á markað. Áður en að því kemur verða forsvarsmenn þess að sann- færa markaðinn um ákveðinn stöðugleika og að flökt á eldsneyt- ismarkaði eða hörð samkeppni ógni ekki rekstrarstöðu félagsins frá degi til dags. Að byggja upp fyrirtæki á örfáum árum sem flyt- ur yfir 4 milljónir farþega á ári og beinir tugum véla á áhugaverð markaðssvæði er afrek. Nú þarf annað eins átak til að treysta reksturinn. Sama eldmóð þarf til, en varfærni og vönduð áhættu- stýring þurfa einnig að koma til. Jákvætt skref hjá WOW air í erfiðum aðstæðum Bandarísk yfirvöld eru með ummæli Elon Musk um afskráningu fyrirtækisins af mark- aði til rannsóknar. Rannsaka ummæli Musk 1 2 3 4 5 SETTU STARFSFÓLKIÐ Í BESTA SÆTIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.