Morgunblaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018 REYKJANES UNESCO GLOBAL GEOPARK VERKEFNASTJÓRI Reykjanes UNESCO Global Geopark leitar að kraftmiklum einstaklingi í krefjandi starf verkefnastjóra sem vinnur að fjölbreyttum verkefnum Jarðvangsins. Starfið er fjölbreytt og spennandi í umhverfi þar sem sjálfstæði og frumkvæði í starfi er nauðsynlegt. Reykjanes UNESCO Global Geopark er sjálfseignarstofnun fjögurra sveitarfélaga og fimm hagsmunaaðila sem eru aðilar að stofnuninni. Sveitarfélögin fjögur eru Grindavíkurbær, Reykjanesbær, sameinað sveitarfélag Garðs og Sandgerðis og Sveitarfélagið Vogar. Ásamt sveitarfélögunum eru Heklan - atvinnuþróunarfélag Suðurnesja, Ferðamálasamtök Reykjaness, Bláa Lónið, Þekkingarsetur Suðurnesja og HS Orka aðilar að Reykjanes Geopark. Um fullt starf er að ræða og fara launakjör eftir samningum BHM og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknir m.a, með upplýsingum um menntun og starfsreynslu sendist á netfangið sss@sss.is eigi síðar en 1. október 2018. Nánari upplýsingar veitir Berglind Kristinsdóttir framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum berglind@sss.is. Einnig er hægt að kynna sér starfsemi Jarðvangsins á vef hans reykjanesgeopark.is eða senda fyrirspurnir á eggert@heklan.is. HELSTU VERKEFNI: • Ábyrgð á gerð rekstrar- og stjórnunaráætlunar fyrir Jarðvanginn • Umsjón með uppbyggingu ferðamannastaða á vegum Jarðvangsins • Gerð umsókna í sjóði t.d. Uppbyggingarsjóð ferðamannastaða • Gerð fræðsluefnis • Innlend og erlend samskipti er teng jast Jarðvanginum • Markaðs- og kynningarmál jarðvangsins HÆFNISKRÖFUR: • Háskólapróf sem nýtist í starfi, en háskólapróf í jarðfræði eða landafræði er kostur. • Lipurð í mannlegum samskiptum • Frumkvæði og sveig janleiki í starfi • Gott vald á íslensku og ensku • Færni og geta til að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi • Reynsla af kennslu og/eða gerð fræsluefnis er kostur • Reynsla af rekstri er kostur Auglýst er laust til umsóknar starf launa- og mannauðsfulltrúa Faxaflóahafna sf. Í starfinu felst m.a.: • Launaútreikningur og launavinnsla. • Skilagreinar vegna lífeyrissjóða og annarra launatengdra gjalda. • Umsjón með starfsmannagrunni. • Umsjón með starfsmannamálum, þ.m.t. vefsíðu og innri vef. • Umsjón með árlegum starfsmannasamtölum. • Umsjón með ráðningum, starfsþróun og jafnrétti á vinnustað. • Ábyrgð á fræðslu og endurmenntun starfsmanna. • Umsjón með innleiðingu á jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012 og eftirfylgni eftir vottun. • Umsjón með innleiðingu á verndun persónuupplýsinga (GDPR) og eftirfylgni eftir vottun. Leitað er eftir hæfileikaríkum og áhugasömum starfsmanni sem hefur eftirfarandi til að bera: • Menntun á framhalds- eða háskólastigi, sem nýtist í starfi. • Góð reynsla af mannauðsstjórnun og launakerfum skilyrði. • Færni í mannlegum samskiptum og gildum góðrar liðsheildar. • Góð hæfni til að tjá sig á íslensku og ensku, í ræðu og riti. • Góð almenna tölvukunnáttu sem nýtist í starfinu. • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. Forstöðumaður fjármáladeildar Faxaflóahafna sf. er næsti yfirmaður launa- og mannauðsfulltrúa. Umsókn, ásamt ferilskrá með nöfnum umsagnaraðila, sendist til Faxaflóahafna sf., á netfangið gudbjorg@faxafloahafnir.is, eigi síðar en miðvikudaginn 10. október nk. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður fjármáladeildar Faxaflóahafna sf. í síma 525 8900. Hafnarstjóri Faxaflóahafna sf. Launa- og mannauðsfulltrúi Félagsráðgjafi Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir stöðu félagsráðgjafa lausa til umsóknar. Um er að ræða 100% starf. Staðan er laus frá og með 1. nóvember 2018 eða eftir samkomulagi. Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga (FSS) annast félags- og skólaþjónustu sveitarfélaganna á Snæfellsnesi, Snæfellsbæjar, Stykkishólmsbæjar, Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar og Eyja- og Miklaholtshrepps. Í sveitarfélögunum búa tæplega 3.900 íbúar. Hjá FSS starfa auk forstöðumanns, skólasálfræðing- ur, tveir félagsráðgjafar, tveir þroskaþjálfarar, náms- og starfsráðgjafi, talmeinafræðingur auk starfsfólks dagþjónustu- og hæfingarstöðva og stoðþjónustu sveitarfélaganna. Umsækjandi skal hafa starfsréttindi félags- ráðgjafa. Verkefni félagsráðgjafa taka til almennrar félags- og skólaþjónustu, barnaverndar og stoðþjónustu sveitarfélaga. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félagsráðgjafafélags Íslands. Skrifleg umsókn tilgreini menntun, starfsferil, 1-2 umsagnaraðila ásamt prófskírteinum, starfsleyfi og sakavottorði berist Sveini Þór Elinbergssyni, forstöðumanni sem jafnframt veitir frekari upplýs- ingar um starfið í síma 430-7800, 861-7802 og tölvupósti sveinn@fssf.is Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ. Umsóknarfrestur er til 12. október.        Óskum eftir yfirvélstjóra með réttindi VVY1 og vélaverði með réttindi VV á Pálínu Ágústsdóttur EA-85 skrnr.1674. Frekari upplýsingar veitir Arnþór í síma 868-9398, einnig er hægt að senda fyrir- spurnir á netfangið kgehf@simnet.is.  atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.