Morgunblaðið - 08.10.2018, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2018 21
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042, Húsviðhald
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Leikfimi með Maríu kl. 9. Ganga
um nágrennið kl. 11. Handavinna með leiðb. kl. 12.30-16. Félagsvist
með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið fyrir úti- og
innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á
könnunni. Allir velkomnir. s: 535 2700.
Boðinn Leikfimi kl. 10.30. Myndlist kl. 12.30. Bingó kl. 13. Vatnsleik-
fimi kl. 14.30. Spjallhópur kl. 15.
Bústaðakirkja Fyrsti fundur Kvenfélags Bústaðasóknar verður í
kvöld kl. 20, kaffiveitingar að hætti kvenfégskvenna. Guðríður Gyða
Halldórsdóttir fræðir okkur um ilmolíur og segir frá bók sinni.
Hlökkum til að sjá sem flestar. Stjórnin
Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. kl. 7.30/8.15/15.15. Kvennaleikf. Sjál. kl.
9.30. Liðsstyrkur, Sjál kl. 10.15. Kvennaleikf. Ásg. kl.11.15.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Sauma-
námskeið í Jónshúsi kl. 14.10. Smiðja, Kirkjuhvoli opin kl. 13 – 16.
Allir velkomnir. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Útskurður m/leiðb. kl.
9-16. Leikfimi Maríu kl. 10-10.45. Leikfimi Helgu Ben kl. 11-11.30.
Qigong kl. 10.30-11.30. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9, handavinna, kl. 9 Boccia, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9 – 14. Hádegismatur kl. 11.30. Sögustund kl 13-
14. Jóga kl. 14.15 – 15.15.
Hraunsel Myndmennt kl. 9. Tyffanis í föndurstofu kl. 9-12. Gaflara-
kórinn kl. 11. Félagsvist kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45 og jóga með Carynu kl. 10. Hádegismatur er kl.
11.30, tálgun og listasmiðja kl. 13, frjáls spilamennska kl. 13, liðleiki á
stólum og slökun með Önnu kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Opnar kl. 8.50. Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp
á kaffi. Byrjendanámskeið í línudansi kl. 10. Myndlistarnámskeið hjá
Margréti Zophoníasd. kl. 12.30-15.30. Handavinnuhornið kl. 13-15.
Félagsvist kl. 13. Kaffi kl. 14.30. Allir velkomnir, óháð aldri. Nánari
uppl. í s. 411 2790.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl. 9 í Borgum gönguhópar kl. 10
frá Borgum og Grafarvogskirkju. Dans kl. 11, allir velkomnir í Borgum.
Prjónað til góðs kl. 13 í Borgum og tréútskurður kl. 13 á Korpúlfs-
stöðum. Kóræfing Korpusystkin í Borgum kl. 16, fleiri velkomnir í
kórinn
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upp-
lestur kl. 11, trésmiðja kl. 13-16, ganga m.starfsmanni kl. 14, bíó á 2.
hæð kl. 15.30. Uppl í s. 411 2760.
Seltjarnarnes Gler, neðri hæð Félagsheimilins við Suðurströnd kl. 9
og 13. Leir, Skólabraut kl. 9. Billjard, Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi
í króknum kl. 10.30. Jóga með Öldu í salnum á Skólabraut kl. 11.
Handavinna, Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.40.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á
könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er
frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er
félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl.
14.30 – 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568 2586.
mbl.is
alltaf - allstaðar
skildir. Lalli og Elsa stunduðu
einnig golf og flestir í fjölskyldu
þeirra hafa haldið í þá hefð. Þar
er keppt í fjölskyldugolffélaginu
Glettu einu sinni á ári og endar
með matarveislu og afhendingu
verðlaunabikars.
Lalli var ástríðufullur safnari.
Bækur og dagblöð fylltu heimili
hans og Elsu. Hann flokkaði og
klippti út greinar og hélt öllu til
haga. Kennarar Menntaskólans
á Akureyri sendu oft nemendur
til hans til að afla gagna fyrir
ritgerðir þar sem hann var sem
lifandi bókasafn. Og þar komu
þeir sannarlega ekki að tómum
kofanum.
Hann var einnig umhyggju-
samur faðir, opnaði börnum sín-
um leiðir og fræddi þau. Elsu
sinni færði hann stundum negra-
koss í poka sem hann keypti
handa henni á leiðinni heim af
íþróttavellinum eftir að hafa ver-
ið verið tímavörður alla helgina.
Lalli var sjálfstæðismaður og
það duldist engum. Stjórnmála-
skoðanir hans voru skýrar og
hann vildi ekki fara neinn milli-
veg.
Það er mikill missir að Har-
aldi. Hans mun verða minnst í
fjölskyldunni sem litríks per-
sónuleika og gleðigjafa.
Hvíli hann í friði.
Þórey og Ragna.
„Góðan daginn meistari, þetta
er seiðkarlinn í Naustaborgum.
Verður þú heimavið, mig langar
að skjóta til þín nokkrum blöð-
um sem ég held að þú getir haft
gagn af.“
„Lalli minn, ég er nú ekkert
of góður til að renna eftir þessu
til þín, hef gott af því að hreyfa
mig.“
„Nei, nei, ég þarf hvort eð er
að fara í bæinn í snúninga, verð
hjá þér eftir fimm mínútur.
Sjáumst.“
Þetta var Lalli vinur minn
Sig, eins og hann var oftast kall-
aður af samferðafólki á Akur-
eyri. Mikill orkubolti frá því ég
man eftir honum, enda af Fjalla-
fólki kominn í báða stofna, fædd-
ur á Jökuldal, en flutti fimm ára
til Akureyrar og var stuttu síðar
genginn í KA.
Ég ákvað að ganga út á hlað
til að fagna góðum gesti. Á með-
an ég dokaði við eftir kappanum
varð mér hugsað til ferðalags
fyrir ríflega hálfri öld. Þá var ég
á ferð með föður mínum norður
yfir öræfin á leið heim úr sveit-
inni á Héraði. Þegar við nálg-
uðumst Möðrudal tók ég eftir
manni ríðandi gæðingi á grasi
grónum grundum við hlið bíls-
ins. Hann fór mikinn, þannig að
hestur og knapi komu í hlað í
Möðrudal á sama andartaki og
við feðgar á Ópelnum okkar.
Þarna var þá kominn Jón bóndi í
Möðrudal, þjóðsagnapersóna,
orðinn hálfníræður, en snaraðist
af baki sem unglingur væri.
Hann reið berbakt og hafði ein-
ungis bundið snæri upp í klár-
inn. Hann fagnaði okkur feðg-
um, var ræðinn og skemmtinn,
ekki ólíkur Lalla Sig, enda ná-
frændur.
Ég var rifinn upp úr þessum
minningum þegar systursonur
Jóns í Möðrudal, Lalli Sig í
bankanum, ók í hlað á hvítum
gljáandi fáki frá Chevrolet. Það
var ekkert að aksturslaginu.
Hann „negldi niður“á punktinum
og snaraðist síðan út úr bílnum
sem táningur væri, en ekki eins
og aldraður maður með þrjú ár
yfir nírætt. Hann færði mér
gamlar úrklippur og blöð, sem
hann taldi að ég gæti haft gagn
af. Gaf mér stuttar og hnitmið-
aðar skýringar, en vildi ekki
þiggja kaffi og spjall. Það er svo
mikið að gera, drengur minn,
sagði kappinn. Síðan var hann
rokinn.
Svona var Lalli Sig. Hafði
alltaf mikið að gera, enda kom
hann ótrúlega miklu í verk.
Hann skilaði óteljandi vinnu-
stundum fyrir íþróttafólk á
Akureyri, hann vann með Leik-
félaginu, skrifaði bók um leiklist
á Akureyri og aðra um skíða-
íþróttina, auk þess að skrifa
fjölda greina í blöð og tímarit.
Launin voru ekki önnur en
ánægjan og heiðursnafnbót í
mörgum félögum. Þar að auki
safnaði hann að sér ótrúlegu
safni heimilda í blaðaúrklippum,
tímaritum og bókum. Það safn
verður mælt í tonnum. Hann
hafði ótrúlega starfsorku, allt
fram á síðustu stundu, rétt eins
og forfeður hans á Fjöllum.
Lalli Sig var einstakur maður,
sem gaman var að kynnast og
starfa með. Við vorum bræður í
Oddfellow og þar vorum við að
lesa upp fyrir skemmstu. Ég
með hnausþykk gleraugu, en
Lalli gleraugnalaus, þótt ég ætti
að teljast tuttugu árum yngri.
En hann var oftast að flýta sér.
Líka þegar hann lagði upp í
ferðalagið til Sumarlandsins. Jón
í Möðrudal hafði tvö ár yfir ní-
rætt þegar hann lagði í slíka
ferð, en Haraldur þrjú. Margt
líkt með skyldum.
Gísli Sigurgeirsson.
Góður vinur minn, Haraldur
Sigurðsson, er til moldar borinn
í dag. Andlát hans kom mér á
óvart, þótt hann væri fjörgamall
orðinn. Ekki er langt síðan við
töluðum saman í síma. Ég
hringdi í hann til þess að fá upp-
lýsingar um gamlan Akureyring
og kom ekki að tómum kofunum.
Haraldur var hress í bragði og
áður en ég vissi af vorum við
farnir að tala um vísur og slitum
við svo talinu, að hann ætlaði að
senda mér sitthvað af því taginu
sem mér þætti skemmtilegt.
Um nokkur ár vorum við ná-
grannar á Akureyri og synir
okkar léku sér saman – báðir í
KA. Þá tókust með okkur Har-
aldi góð kynni, sem brátt urðu
að vináttu. Haraldur fylgdi Sjálf-
stæðisflokknum fast að málum,
hafði verið sterkur stuðnings-
maður Jónasar G. Rafnars og
þess naut ég. Þegar ég nú lít yfir
stjórnmálaferil minn finn ég, að
ég stend í mikilli þakkarskuld
við hann og félaga okkar marga
sem studdu mig í gegnum tíðina
svo áratugum skipti. Stjórn-
málamaður verður undir eins
bitlaus nema hann hafi sterkt
bakland og trúnaðarvini á hverju
sem gengur. Stjórnmálamaður-
inn er mannlegur og þarf upp-
örvun og hreint loft í kringum
sig.
Með því að hlaupa yfir ævi-
ágrip Haralds áttar maður sig
fljótt á því að hálfverk var ekki
til í hans orðabók. Hann var heill
að hverju sem hann gekk. Hann
var ástríðufullur safnari og hélt
til haga mörgu smálegu á þeim
sviðum, þar sem áhugi hans lá
og hann hafði beitt sér. Bækur
hans eru skýrasti votturinn um
það.
Þegar ég nú kveð minn gamla
vin og hugsa til hans koma þessi
orð óðara fram á varir mínar:
Það var bjart yfir Haraldi Sig-
urðssyni. Guð blessi minningu
hans. Guð styrki Elísabetu í
hennar djúpu sorg.
Halldór Blöndal.
Upp að Minjasafninu á Akur-
eyri eru 60 tröppur upp á skrif-
stofuhæðina úr garðinum. Fyrir
Lalla Sig. voru þær skemmtilegt
spretthlaup, alveg fram á
níræðisaldurinn. Það kæmi mér
raunar ekki á óvart að Lalli
hefði mælt tímann á sjálfum sér
og átt yfirlit aftur í tímann.
Erindið var oftast að miðla
upplýsingum um fólk á ljós-
myndum sem safnið geymir.
Lalli talaði hratt og mikið, enda
hafði hann frá miklu að segja og
var að því er virtist óþrjótandi
brunnur upplýsinga um mynd-
efnið hvort sem það sneri að
leiklist, sögu, tónlist eða fólki. Ef
hann vissi það ekki birtist hann
von bráðar með upplýsingarnar í
töskunni. Það var fleira sem
hann dró upp úr pússi sínu.
Hann átti það til að gauka að
okkur starfsmönnunum ýmsu
góðgæti á kaffistofunni, ekki síst
Lindu konfekti rétt fyrir jól.
Lalli lét til sín taka í menning-
arlífi bæjarins og var virkur í
safnastarfi um árabil. Hann sat í
sat í stjórn Minjasafnsins á
Akureyri 1982-87 sem lagði
grunn að ljósmyndadeild safns-
ins með því að ráða starfsmann í
verkefnið; var gjaldkeri lands-
söfnunar fyrir stofnun Davíðs-
húss 1964-65 en sjálfur var hann
mikill safnari, ekki síst að leik-
skrám leikfélaga í Eyjafirði. Við
Lalli deildum áhuganum á leik-
listinni og ófá samtöl snerust um
sögu og stöðu leiklistar í bæn-
um.
Við hittumst síðast við opnun
Listasafns Akureyrar. „Sæll
stórleikari,“ sagði hann við mig,
kankvís. Við ræddumst stuttlega
við og ég sá á eftir honum skjót-
ast yfir götuna upp í bílinn sinn
ásamt konu sinni og aka brott.
Núna er Lalli stokkinn upp
himnastigann, væntanlega með
nokkrar sögur í farteskinu og
Lindu konfekt.
Þó líði dagar og líði nætur,
má lengi rekja gömul spor.
Þó kuldinn næði um daladætur,
þá dreymir allar um sól og vor
(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi)
Fyrir hönd Minjasafnsins á
Akureyri votta ég fjölskyldu
Lalla Sig samúð mína.
Haraldur Þór Egilsson.
Látinn er góður félagi, Har-
aldur Sigurðsson, 93 ára að
aldri.
Ég minnist Lalla, eins og við
kölluðum hann, með miklu þakk-
læti og hlýhug fyrir þann mikla
stuðning og hvatningu sem hann
veitti mér sl. 8 ár í formanns-
stólnum. Ég gat alltaf leitað til
Lalla því fróðleikur hans um fé-
lagið var með eindæmum. Það
var sama hvort ég þurfti að fá
upplýsingar um einhvern látinn
félaga eða um íþróttaafrek ein-
hvers innan KA, Lalli var með
allt á hreinu og þuldi það upp úr
sér.
Lalli var gegnheill KA-maður
og fylgdist vel með því sem var
að gerast í félaginu. Hann var
heldur ekkert feiminn við að
koma með ábendingar um það
sem hann vildi að betur færi en
miklu fremur kom hann til mín
með hrós og hvatningarorð sem
mér þótti afskaplega vænt um.
Ég kynntist Lalla og Elsu
konu hans þegar ég var 16 ára
gömul en þá vorum við í hópi
sem fór á æskulýðsleiðtogamót í
Västeräs í Svíþjóð í um viku
skeið. Það var ósköp gott að hafa
Lalla og Elsu svona sem auka-
foreldra þegar ég 16 ára gömul
var að fara til útlanda án for-
eldra minna.
Á leiðinni til Íslands aftur var
dvalið um eina helgi í Kaup-
mannahöfn. Þegar Íslendinga-
hópurinn var í skoðunarferð um
Kaupmannahöfn var meðal ann-
ars staldrað við fyrir utan hliðin
við konungshöllina. Þar fyrir
framan stóðu, eins og lög gera
ráð fyrir, verðir í fullum skrúða.
Lalli gengur að öðrum verðin-
um, reyndar þétt upp að honum,
og spyr: „Tror du ad dronningen
er hjemme?“ Vörðurinn brá ekki
svip og auðvitað kom ekkert
svar. Hópurinn gekk skellihlæj-
andi í burtu.
Það verður skrýtið að sjá ekki
Lalla koma skokkandi upp
tröppurnar að KA-heimilinu,
léttan í spori rétt eins og ung-
lamb.
Minning þín er mér ei gleymd,
mína sál þú gladdir,
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Ég sendi Elísabetu Kemp
Guðmundsdóttur, ekkju Harald-
ar, og aðstandendum öllum mín-
ar dýpstu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning þessa
mæta manns.
Hrefna Gunnhildur Torfa-
dóttir, fyrrverandi for-
maður Knattspyrnufélags
Akureyrar.
Látinn er Haraldur Sigurðs-
son, fyrrverandi formaður og
heiðursfélagi KA, 93 ára að
aldri.
Haraldur, eða Lalli eins og við
kölluðum hann, var gegnheill
KA maður frá því hann gekk í
félagið árið 1938, þá þrettán ára
gamall, til hinsta dags.
Hann gegndi fjölmörgum
trúnaðarstörfum fyrir félagið,
m.a. var hann í stjórn frjáls-
íþróttadeildar KA um árabil og
óþreytandi að vinna að fram-
gangi frjálsra íþrótta á Akur-
eyri. Hann var ötull að standa
fyrir og vinna við frjálsíþrótta-
mót KA um áratuga skeið. Iðk-
endur frjálsra íþrótta á Akureyri
þann tíma sem Haraldur vann að
uppgangi íþróttarinnar eiga hon-
um mikið að þakka.
Haraldur var ritari aðal-
stjórnar KA frá 1958 til 1962 og
síðast en ekki síst var hann for-
maður KA á árunum 1976 til
1979. Auk þessa vann hann að
ýmsum ritstörfum fyrir félagið
m.a. Afmælisrit KA, 25 ára,
1953; Afmælisrit KA, 30 ára,
1958; í ritnefnd afmælisbókar
KA, 60 ára, 1988 og ritstjóri af-
mælisbókar KA, 70 ára, 1998.
Haraldur var gerður að heiðurs-
félaga KA árið 1985. KA á þess-
um mæta manni mikið að þakka.
Lalli fylgdist alla tíð vel með
því sem var að gerast í félaginu
og hafði mikinn áhuga á fram-
gangi þess. Fróðleikur hans um
félagið var með eindæmum.
Hann var duglegur að koma með
ábendingar þegar betur mátti
gera og ekki síður að koma með
hvatningarorð og hrós þegar vel
hafði verið gert.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama
en orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Knattspyrnufélag Akureyrar
sendir ekkju Haraldar, Elísa-
betu Kemp Guðmundsdóttur, og
aðstandendum sínar innilegustu
samúðarkveðjur.
KA minnist hans með þakk-
læti og virðingu.
Fyrir hönd Knattspyrnu-
félags Akureyrar,
Hrefna G. Torfadóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ANNA GUÐRÚN GEORGSDÓTTIR,
Borgarbraut 65A, Borgarnesi,
andaðist á heimili sínu þriðjudaginn
2. október.
Jarðsungið verður frá Borgarneskirkju
miðvikudaginn 10. október klukkan 14.
Rúnar Ragnarsson Dóra Axelsdóttir
Steinar Ragnarsson
Þóra Ragnarsdóttir Gísli Kristófersson
Jón Georg Ragnarsson Maríanna Garðarsdóttir
Ragnheiður Elín Ragnarsd. Björn Yngvi Sigurðsson
ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn