Morgunblaðið - 08.10.2018, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Sýndu skoðunum annarra virðingu og
leitaðu samkomulags við þá. Bíttu á jaxlinn
og haltu áfram að berjast fyrir þínu. Einhver
lofar bót og betrun.
20. apríl - 20. maí
Naut Haltu ró þinni á hverju sem gengur og
líttu bara á björtu hliðar tilverunnar. Þú hefur
alltaf haft skynsemina að leiðarljósi, hví að
hætta því núna?
21. maí - 20. júní
Tvíburar Gefðu þér tíma til þess að sinna
vandamálum þeirra, sem til þín leita. Vertu
stöðugt á tánum og leystu þau mál sem upp
koma jafnóðum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Afköst þín eru með ólíkindum og vinir
og samstarfsmenn fylgjast með þér í for-
undran. Þú ert sátt/ur við guð og menn og
það er góð tilfinning.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú lendir í einhverjum deilum heima fyr-
ir og það er mikilvægt til sátta að þú dragir
ekkert undan. Sinntu sjálfum þér með því að
sinna áhugamálum þínum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú sérð möguleika á að hjálpa ein-
hverjum. Þó að það verði erfitt fyrir þig að
segja ekki hug þinn skaltu hafa í huga að
hlutleysi á eftir að koma sér betur þegar til
langs tíma er litið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er líf og fjör í félagslífinu og svo
margt í boði að vandi er um að velja. Reyndu
að sinna öllum jafnt. Það eru blikur á lofti í
ástamálunum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hlustaðu án þess að dæma. Þú
ert sleginn blindu þegar kemur að eigin göll-
um. Einhver er inni á gafli hjá þér og þér er
farið að leiðast það.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert meira en til í að læra af
mistökunum. Það gengur hvorki né rekur í
ástamálunum, en ekki gefast upp. Þú ert á
grænni grein í fjármálunum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Breyting verður til batnaðar á
sambandi þínu við andstæðing þinn enda
hefurðu unnið að því á bak við tjöldin.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu óttann ekki hindra þig í að
ná takmarki þínu. Klukkan tifar, hvenær ætlar
þú að gera eitthvað í málunum? Þeir fiska
sem róa.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Flýttu þér hægt að kveða upp dóm um
menn og málefni. Af hverju að bíða fram í
næstu viku þegar hægt er að grípa tækifærin
í dag?
Guðmundar- og Geirfinnsmál hafaverið til lykta leidd, svo langt
sem það nær. Dæmdir menn hafa
verið sýknaðir, enda þótt við séum
engu nær um hvarf tveggja manna
fyrir rúmlega fjörutíu árum. For-
sætisráðherra hefur fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar beðið þá sem
dóma hlutu á sínum tíma afsökunar
og til stendur að bæta viðkomandi
skaðann með bótagreiðslum. Sann-
girnisbætur mætti líka kalla þetta,
samanber þær greiðslur sem vist-
fólk á Kópavogshælinu, Breiða-
víkurdrengir og fleiri hafa áður
fengið. Munum samt líka að pen-
ingar fremur sundra en græða sár.
Mikilvægast af öllu er að þeir sem
óréttlæti og harðræði hafa verið
bættir fái sálrænan stuðning.
x x x
Í uppgjöri við liðinn tíma verðurannars að fara varlega. Ágætt er
að hafa þar í huga orð höfundarins
Jóns Helgasonar ritstjóra í eftir-
mála bókarinnar Tyrkjaránið sem
út kom árið 1963. Þar segir að um
alla atburði „ .... gildir sú megin-
regla, að á þá verður að leggja sið-
ferðilegan mælikvarða síns tíma og
síns umhverfis. Rétt og rangt er
ekki hið sama í dag og það var í gær
... Auk þess skulum við ekki heldur
miklast um of af siðferði okkar,
dyggðum og réttlæti. Þeir tímar
munu vissulega koma að það, sem
okkur finnst rétt og loflegt, verður
skoðað allt öðrum augum og það
jafnvel virt til siðleysis og hrotta-
mennsku. Þegar ný öld hefur dregið
hulu frá augum kynslóðanna, mun
margt í fari okkar líka þykja við-
sjárvert.“
x x x
Í síðustu viku voru í fjölmiðlumfréttir um slæman aðbúnað er-
lends verkafólks hér á landi. Víða er
pottur brotinn en viðbrögðin við
þessari umfjöllun hefðu þó sam-
kvæmt alvarleika málsins klárlega
átt að vera sterkari. Og þó; sumt
vekur athygli og leiðir af sér aðgerð-
ir til úrbóta en annað ekki, jafnvel
þótt háttalagið sé viðsjárvert á
mælikvarða fortíðar, dagsins í dag
og jafnvel framtíðarinnar – þótt allt-
af sé hún óráðin. vikverji@mbl.is
Víkverji
Og þetta er vitnisburðurinn: Guð hef-
ur gefið okkur eilíft líf og þetta líf er í
syni hans.
(Fyrsta Jóhannesarbréf 5.11)
Misty
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14
Þykkar aðhalds-
sokkabuxur og
leggings
Litur: Svartar
Stærðir: S - 2XL
Verð frá 3.990 kr.
Við styrkjum
BLEIKU slaufuna 2018
15% af völdum vörum rennur
til krabbameinsfélagsins
Helgi R. Einarsson yrkir limrusem ber yfirskriftina „Sjálfs-
ánægjan“
Frekar fallegur er ég,
af flestum karlmönnum ber ég,
greindur og snjall,
góðlegur kall
og í grafgötur ei með það fer ég.
Síðan kemur „Lífsins elexír“:
Ef framtíð skal færa til bóta
á fegurðarinnar að njóta.
Betra finnst ekki neitt,
sem fær ýmsu breytt,
en fallega leikin nóta.
Fyrri limran kallaði fram í hug-
ann stöku Sölva Helgasonar:
Ég er gull og gersemi,
gimsteinn elskuríkur,
ég er djásn og dýrmæti,
Drottni sjálfum líkur.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir á
Boðnarmiði:
Mokar fé í mikla hít,
málið á að þagga,
Dagur er í djúpum skít,
dýrt er að rífa bragga.
Ingólfur Ómar Ármannsson
sendi mér tvær hringhendur vel
kveðnar, – „það fer bráðum að
frysta og það styttist í veturinn“:
Hnígur sól í sævardjúp
sorti bólin þekur.
Skartar njóla héluhjúp
hrollinn gjólan vekur.
Fölna rindar, falla strá
förlast myndir kærar
Hjúpar tinda héla grá
hema lindir tærar.
Guðmundur Arnfinnsson er á
svipuðum slóðum:
Haustið kemur hélugrátt,
hroll að manni setur,
klærnar sýnir kannski brátt
konungurinn vetur.
Á sunnudag skrifaði Pétur Stef-
ánsson á Leir:
Gleymt er æsku svall og sukkið
sem að áður gladdi lund.
- Áfengi hef ég ekkert drukkið
frá árinu tvö þúsund.
Ólafur Stefánsson var með á nót-
unum:
Aldamótin illa fóru í árans kallinn.
Hann sem áður hrundir kætti,
og hjartans glaður kverkar vætti.
Og sömuleiðis Ingólfur Ómar:
Hans var jafnan geðið glatt
glaður undi svalli.
Nú hefur Bakkus konung kvatt
kappinn eitursnjalli.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sjálfhælni, braggi
og haustvísur
„Í ALVÖRU?“ „VIÐ ERUM MEÐ SEXTÍU GESTI EN BARA ÞRJÁR KÖKUSNEIÐAR!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... snædrottningin þín.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GEISP!
ÞETTA VAR
LEIÐINLEGT GEISP GEISP!
ÞARNA
KOM ÞAÐ!
ÉG ÆTLAÐI AÐ TAKA TÍMANN Á
ÞÉR AÐ BORÐA STEIKINA...
EN SVO SÁ ÉG AÐ ÞAÐ ER ENGINN
SEKÚNDUVÍSIR Á KLUKKUNNI!