Morgunblaðið - 27.10.2018, Page 4

Morgunblaðið - 27.10.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2018 Veður víða um heim 26.10., kl. 18.00 Reykjavík -1 léttskýjað Akureyri -2 snjókoma Nuuk 2 alskýjað Þórshöfn 3 skúrir Ósló 3 heiðskírt Kaupmannahöfn 10 skúrir Stokkhólmur 1 léttskýjað Helsinki 2 skýjað Lúxemborg 8 skýjað Brussel 9 skúrir Dublin 7 léttskýjað Glasgow 7 skýjað London 8 skúrir París 12 rigning Amsterdam 9 rigning Hamborg 10 rigning Berlín 12 heiðskírt Vín 12 heiðskírt Moskva 1 heiðskírt Algarve 19 léttskýjað Madríd 16 súld Barcelona 20 heiðskírt Mallorca 21 léttskýjað Róm 21 léttskýjað Aþena 17 heiðskírt Winnipeg 8 þoka Montreal 2 léttskýjað New York 7 heiðskírt Chicago 9 þoka  27. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:56 17:29 ÍSAFJÖRÐUR 9:11 17:23 SIGLUFJÖRÐUR 8:55 17:05 DJÚPIVOGUR 8:28 16:55 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á sunnudag Sunnan 13-20 m/s og rigning eða slydda, snjókoma til fjalla. Hiti 2 til 7 stig á láglendi. Á mánudag Fremur hæg suðlæg átt og stöku él, en heldur hvassara og dálítil rigning austast. Léttir til, hiti um frostmark sunnan- og vestanlands, en annars frost 0 til 5 stig. Snýst í vaxandi suðaustanátt um landið vestanvert eftir hádegi, þykknar upp og hlýnar, 13-23 m/s vestantil. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is „Við teljum okkar alveg hafa ástæðu til þess að láta eitthvað frá okkur fara. Við erum ekki sátt við stöðu veganna hérna í Borgarbyggð. Okkur finnst vera ótrúlega lítið sem er framundan þar sem hugsað er um vegina,“ segir Gunnlaugur A. Júlíusson, sveitar- stjóri Borgarbyggðar, í samtali við blaðamann Morgunblaðsins um sam- gönguáætlun sem nú er til meðhöndl- unar hjá Alþingi. „Það er mjög mikið af malarvegum í Borgarbyggð. Ég tók þetta saman í haust og þetta eru um 300 kílómetrar sem eru innan sveitarfélagsins,“ segir hann. Gunnlaugur bendir meðal ann- ars á að sum svæði innan sveitarfé- lagsins eru ekki með bundnu slitlagi þrátt fyrir að þar séu stór kúabú og skólaakstur. Hann telur verulegar vegabætur geta orðið með bundnu slitlagi án þess að lagður sé tvöfaldur vegur. „Þar sem eru fólksflutningar, skólabílar eða almenn umferð eru þessir malarvegir óásættanlegir,“ bætir hann við. Spurður um hlutdeild Vestursvæð- is í fjárveitingum segir Gunnlaugur: „Það er alveg rétt að benda á það að Vestursvæði fái mikla peninga, en megnið af þeim fer í stórframkvæmd- ir á Vestfjörðum.“ Sveitarstjóri Borg- arbyggðar segir jafnframt augljóst að samgöngumálin hafi verið vanrækt til lengri tíma og að miklu leyti sé um uppsafnaðan vanda að ræða. Gleymast „Okkur finnst svolítið eins og við gleymumst oft, án þess að ég geri lítið úr öðrum framkvæmdum,“ segir Sig- fús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Skagafjarðar. Spurður hvort þörf sé á auknum fjármunum eða að ráðstafa fjárveitingum með öðrum hætti svar- ar hann: „Það vilja örugglega allir meira fjármagn í málaflokkinn. Það sem er erfitt í þessu, eins og með veg- ina, er að þetta er í óráðstöfuðum pottum og eitthvað verður örugglega sett í vegina, en það er ekki sýnilegt. Það eina sem við sjáum hvað varðar Skagafjörðinn er það sem sett er í höfnina hjá okkur. Það er engu ráð- stafað með bein- um hætti í vegi eða flug.“ „Okkur finnst þetta óviðunandi,“ segir Sigfús spurður hvað hon- um þyki um hlut- fall áætlaðra framlaga til Norðursvæðis. „Ég lýsi vonbrigðum með hlutdeild höfuðborgarsvæðisins og með ólík- indum að Arnarnesvegur skuli enn og aftur hafa verið færður aftur á sam- gönguáætlun. Það er mikilvægt fyrir okkur að fá þennan veg,“ segir Ár- mann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, og vísar til þess að vega- kerfið í efri byggðum Kópavogs sé þegar sprungið og að íbúar svæðisins séu nú utan við settar kröfur um við- bragðstíma viðbragðsaðila. Hrósar ríkisstjórninni „Það eru auðvitað fjölmörg verk- efni sem sveitarstjórnarmenn sjá ekki á áætlun og sakna, eins og alltaf er,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði. „Við höfum lýst mikilli ánægju með áætlunina og ég vil hrósa Sigurði Inga samgöngu- ráðherra og Bjarna fjármálaráðherra fyrir að leggja fram svona metnaðar- fulla samgönguáætlun með mikilli aukningu fjármuna, sem er fullfjár- mögnuð á þessu fimm ára tímabili,“ segir hún. Þá bætir hún við að verið sé að fara í framkvæmdir á hættulegasta veg- arkafla landsins. „Auðvitað fögnum við því Sunnlendingar og landsmenn allir,“ staðhæfir hún. Sveitarstjórar misánægðir  Nýja samgönguáætlunin umdeild Framlög til landsvæða skv. samgönguáætlun Milljónir króna 2019-2023 2024-2028 2029-2033 Samtals Höfuðborgarsvæðið og Reykjanes 11.510 25.500 14.450 51.460 Vestursvæði 17.880 10.750 6.300 34.930 Norðursvæði 3.800 5.875 780 10.455 Austursvæði 4.390 6.920 24.650 35.960 Suðursvæði 8.090 10.990 3.750 22.830 Samtals 45.670 60.035 49.930 155.635 Gunnlaugur A. Júlíusson Aldís Hafsteinsdóttir Sigfús Ingi Sigfússon Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Markmið okkar er að safna fjár- magni fyrir Stígamót sem renna á til fræðslumiðstöðvar innan Stígamóta, en þar er lögð áhersla á fræðslu og forvarnir gegn kynferðisofbeldi,“ segir Anna Bentína Hermansen, ráðgjafi hjá Stígamótum, í samtali við Morgunblaðið. Vísar hún í máli sínu til þess að í gær hófst herferð Stígamóta, sem gengur undir heitinu #allirkrakkar. Var herferðinni ýtt úr vör með út- gáfu leikinnar auglýsingar sem end- urspegla á reynslu brotaþola sem leita til Stígamóta. Sýnir myndband- ið þroskasögu tveggja ungmenna og hvernig staðalmyndir hafa alvarleg áhrif á samskipti þeirra. Er mynd- bandið nú þegar komið í dreifingu á samfélagsmiðlum. „Við höfum þá trú að kynferðisof- beldi sé ekki einhvers konar náttúru- lögmál og að engum sé eiginlegt að fara yfir mörk annarra,“ segir Anna Bentína og bendir á að börn fái ung mjög mis- vísandi skilaboð, s.s. þegar kemur að kynlífi, sem haft getur skað- leg áhrif á líf þeirra síðarmeir. „Þau fá kannski helst sínar upplýsingar í gegnum klám sem oft er ofbeldisfullt og sýnir ekki rétta mynd af veruleikanum.“ Norðurlandamet í klámáhorfi Anna Bentína bendir á að meðal- aldur íslenskra stráka þegar þeir horfa á klám í fyrsta skipti er 11 ár, samkvæmt tölum sem fyrst birtust árið 2006. „Þetta er niðurstaða könn- unar áður en krakkar höfðu þann að- gang að snjallsímum sem þeir hafa í dag. Það má því gera ráð fyrir að ald- urinn sé í dag nokkuð lægri. Við eig- um, samkvæmt nýjustu tölum, Norð- urlandametið í klámáhorfi,“ segir hún, en 45% drengja í 8. til 10. bekk á Íslandi horfa á klám einu sinni í viku eða oftar. „Það segir okkur að mjög margir strákar hafi séð margfalt fleiri klukkustundir af klámi en þeir hafa fengið af kynfræðslu og um- ræðu um þessi mál.“ 70% þolenda undir 18 ára aldri Samkvæmt tölfræði Stígamóta eru gerendur kynferðisofbeldis fyrst og fremst ungir karlmenn. Þá eru 70% þolenda undir 18 ára aldri þegar þau verða fyrir kynferðisofbeldi. „Svo koma þessir þolendur til okk- ar löngu síðar og við þurfum að bregðast við því. En þessi herferð gengur einmitt út á að við sem sam- félag opnum augun fyrir þessu vandamáli,“ segir Anna Bentína og bætir við að átak Stígamóta muni ná hámarki 1. nóvember næstkomandi með fræðsluþætti sem sýndur verð- ur á RÚV laust fyrir klukkan 21. Fræðsla og forvarnir gegn kynferðisofbeldi  Kynferðisofbeldi er ekki náttúrulögmál, segja Stígamót Anna Bentína Hermansen Borgarleikhúsið mun í lok desember setja upp Ríkharð III., eitt af fyrstu leikritum Shakespeares. Leikritið var frumflutt fyrir meira en fjögur hundr- uð árum en hefur samt ekki misst gildi sitt á nokkurn hátt að sögn sérfróðra. Leikarar lásu leikritið saman fyrir gesti í Borgarleikhúsinu í gær. Morgunblaðið/Valli Samlestur leikara á Ríkharði III. Nú er ...líka orðinn léttur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.