Morgunblaðið - 27.10.2018, Side 49

Morgunblaðið - 27.10.2018, Side 49
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Á umliðnum árum hefur ver-ið nóg á seyði í íslenskusvartþungarokki, bæði því sem er neðanjarðar og því sem er ofanjarðar (já, það er hægt líka). Sólstafir ferðast nú um allan heim með síðasta verk sitt, Berdreyminn (já já, ég veit, það má aldeilis deila um hvort þeir eru svartþungarokk eða ekki en hef þá hér með vegna rótanna) og Auðn gaf út lofaða plötu seint á síðasta ári, Farvegir fyrndar. Auðn er á mála hjá Season of Mist, líkt og Sólstafir og Zhrine, sem hefur farið í hvert tónleika- ferðalagið á fætur öðru eftir hina vel lukkuðu Unortheta. Ef þú, lesandi góður, dregur þessar yfirlýsingar mínar í efa er ég með skínandi, kolsvarta sönnun fyr- ir þessu öllu saman. BangerTV (Sam Dunn og félagar, en hann gerði myndirnar Metal: A Headban- ger’s Journey og Rush: Beyond the Lighted Stage m.a.) voru að hleypa nýrri Youtube-þáttaröð af stokk- unum. Og Overkill Global Album Reviews eins og hún er kölluð byrj- aði að sjálfsögðu á íslensku svart- þungarokki! Það þarf ekki frekari vitnanna við. Vánagandr-útgáfan er dugleg sem fyrr og heldur utan um sveitir eins og Misþyrmingu, Nöðru, NYIÞ og Mannveiru. Á Roadburn-hátíð- inni í ár, sem fram fer í Hollandi, léku fulltrúar frá þessari dásam- legu útgáfu (Misþyrming, Naðra, Svartidauði, Wormlust) klukku- stundar langt verk undir heitinu Sól án varma. Svartidauði og Sinmara Svarta gullið Horft í hroðann Carpe Noctem var að gefa út plötuna Vitrun fyrir stuttu. spiluðu þá á hátíðum um alla Evr- ópu og einnig í Bandaríkjunum. NYIÞ, Naðra og Misþyrming spiluðu einnig víða í Evrópu. Carpe Noctem, sem hafa legið í dvala árum saman, voru svo að gefa út plötuna Vitrun á Code666 Rec- ords. Sveitin á sér langa sögu, var stofnuð 2005 og á baki nokkrar plötur, sú síðasta, In Terra Prof- ugus, kom út árið 2013. Vitrun er ógurlegt ferðalag; tíu mínútna lög þar sem skiptist á tilfinning- arþrunginn ofsi og hægari, dul- úðlegri kaflar. Söngvarinn (og rit- höfundurinn) Alexander Dan syngur á íslensku – öskrar, rymur, skrækir og fer á dýpið – stundum að því er virðist í einu og sama laginu. Spennunni er viðhaldið út alla plöt- una og maður þarf eiginlega að leggja sig þegar síðasti tónninn deyr út. Þá tilkynnti Svartidauði um plötuna Revelations Of The Red Sword, sem út kemur í desember komandi. Ég vil þá nefna Almyrkva (plata seint árið 2017) og Guðveiki (frábært dæmi og plata á leiðinni. Eitt lag á Soundcloud núna). Worm- lust hyggst þá gefa út nýtt efni brátt en plata þess verkefnis, The Feral Wisdom (2013), er nánast komin með költstöðu í samtíma íslensku svartþungarokki. Þá gaf NYIÞ út deiliplötu með ástralska eins manns bandinu Old Burial Temple í ár. Það er skemmtileg írsk tenging inn í senuna. Stephen Lockhart (sem hefur rekið bandið Rebirth of Nefast) er búsettur í Mosfellsbæ, rekur þar Studio Emissary og hefur tekið upp fjöldann allan af íslensku svartþungarokki. Vinur hans, Jo- seph Deegan, rekur nú íslensk/ írska sveit, Slidhr (ásamt meðlimum úr Sinmara) og kom plata út í ár. Lockhart hefur einnig verið pottur- inn og pannan í Oration-tónlistarhá- tíðinni, sem hefur verið uppskeru- hátíð íslenska svartmálmsins síðastliðin þrjú ár. Hátíðinni hefur verið slitið endanlega en Lockhart er með aðra hátíð, Ascension, í burðarliðnum og verður sú fyrsta væntanlega haldin á næsta ári. Það sem gerir starfsumhverfi þessarar senu öðruvísi en maður átti að venjast í eina tíð eru sterkar tengingar út í heim. Sveitirnar hafa aðgang að öflugum dreifingarað- ilum og útgáfum eins og Terratur Posessions (Noregur), Ván Records (Þýskaland), Signal Rex (Portúgal) og Fallen Empire Records (Banda- ríkin) sem sjá til þess að svart- þungahrokksþyrstir um heim allan eigi kost á að njóta þessara bikuðu afurða frá landi elds og ísa. »Ef þú, lesandi góð-ur, dregur þessar yfirlýsingar mínar í efa er ég með skínandi, kolsvarta sönnun fyrir þessu öllu saman. Það eru mikil umsvif í íslensku svartþunga- rokkssenunni nú um stundir, glás af böndum starfandi og útgáfa með mesta móti. MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2018 Óperuunnendur hafa úr miklu að velja um helgina enda standa Óperudagar í Reykjavík sem hæst. Í kvöld kl. 20.30 í Tjarnarbíói eru haldnir óperubrúðutónleikarnir Støv. Annað kvöld kl. 20.30, einnig í Tjarnarbíói, verður óperan Trouble in Tahiti eftir Leonard Bernstein frumsýnd í leikstjórn Pálínu Jóns- dóttur, en um söng sjá Aron Axel Cortes og Ása Fanney Gestsdóttir. Af öðrum viðburðum má nefna að í dag kl. 09.30 verður Óperueyja í Sundhöllinni, óperuhlustun aðlög- uð að þörfum fólks með Alzheimer og aðra heilabilunarsjúkdóma í Hlíðabæ kl. 11 og 14, kammer- óperan Kornið eftir Birgit Djupedal við texta eftir Ingunni Láru Krist- jánsdóttur sýnd í Hörpuhorni kl. 17 og Þrymskviða eftir Jón Ásgeirsson í Hörpu kl. 20. Á morgun verður óperan In the darkness sýnd í Norræna húsinu kl. 13 og 16 og ævintýraóperan Sónata eftir Hjálmar H. Ragnarsson og Messíönu Tómasdóttur í Iðnó kl. 14. Allar nánari upplýsingar eru á vefnum operudagar.is. Óperubrúðutónleikar Listrænn stjórnandi Støv er Svend E. Krist- ensen og leikstjóri Jesper Pedersen, en Nina Sveistrup Clausen syngur. Óperuúrval um helgina  Trouble in Tahiti frumsýnd á morgun Sýning á verkum Georgs Guðna verður opnuð í Hverfisgalleríi í dag kl. 17 og í galleríinu Gamma kl. 18. Á sýningunni eru bæði olíumálverk og vatnslitaverk. Georg var frumkvöðull meðal ungra listamanna á níunda áratug síðustu aldar með áherslu sinni á landslagsmálverk, segir í tilkynn- ingu. „Í stað þess að gera tilvist mannsins að umfjöllunarefni í verk- um sínum eins og algengt var á þeim tíma, þá málaði hann náttúruna. Með þessari nálgun sinni gæddi hann landslagsmálverkið nýjum krafti hér á landi og tók þátt í að endurvekja áhuga á málverkinu sem miðli listamanna. Landslagsmálverk Georgs Guðna eru oft á tíðum byggð upp á geómetrískan hátt, en á sama tíma eru þau ákaflega persónuleg. Málverk hans eiga sér líka sterka samfélagslega tengingu. Náttúr- an, eins og Georg Guðni sýnir hana, er oft á tíðum ein- földuð og hlut- gerð upp að vissu marki, en ekki skálduð. Verkin gefa frá sér sterkt og ákveðið andrúmsloft og þekkjast á sínum fágaða einfald- leika,“ segir í tilkynningu. Georg fæddist í Reykjavík árið 1961, stund- aði nám við Myndlista- og handíða- skóla Íslands og lauk framhaldsnámi við Jan van Eyck Akademie árið 1987. Hann lést árið 2011, 50 ára að aldri. Sýningin stendur yfir til 1. desem- ber. Ljósmynd/Vigfús Birgisson Án titils Olíumálverk eftir Georg Guðna frá árinu 1989. Verk Georgs Guðna í tveimur galleríum Georg Guðni ICQC 2018-20 SÉRBLAÐ NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is föstudaginn 30. nóvember Við komum víða við í ár, heimsækjum fjölda fólks og verðummeð fullt af spennandi efni fyrir alla aldurshópa. PÖNTUN AUGLÝSINGA: til 26. nóvember. Morgunblaðsins kemur út Jólablað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.