Morgunblaðið - 27.10.2018, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2018
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Ný könnun sem Félag kvenna í at-
vinnulífinu lét gera meðal fyrir-
tækja sem farið hafa í jafnlauna-
vottun og/eða eiga að hafa klárað
jafnlaunavottun fyrir lok árs 2018,
gefur vísbendingu um að hlutfall
kvenna í efsta stjórnendalagi fyrir-
tækja hér á landi sé 21%.
Rakel Sveinsdóttir framkvæmda-
stjóri FKA segir í samtali við Morg-
unblaðið að þetta hlutfall sé alltof
lágt, og í miklu ósamræmi við til
dæmis tölur um þá sem útskrifast
með háskólapróf hér á landi, en kon-
ur eru þar í meirihluta.
„Þarna er eitthvert ósamræmi
sem þarf að laga. Þessi könnun sem
við gerðum er skýr vísbending um
það,“ segir Rakel.
Ráðstefna í næstu viku
FKA stendur fyrir ráðstefnunni
Rétt upp hönd á Hótel Reykjavík
Nordica næsta miðvikudag en félag-
ið hefur ásamt samstarfsaðilum úr
velferðarráðuneytinu, Sjóvá, Delo-
itte, Morgunblaðinu og Pipar/
TBWA sett af stað hreyfiaflsverk-
efnið Jafnvægisvogina. Markmið
Jafnvægisvogarinnar er að árið
2027 verði hlutfallið á milli kynja 40/
60 í framkvæmdastjórnum fyrir-
tækja á Íslandi.
Rakel segir að þegar FKA hafi
fyrst byrjað að beita sér fyrir kynja-
kvóta í stjórnum fyrirtækja árið
2009, sem í dag kveður samkvæmt
lögum á um 40% lágmarkshlutfall
hvors kyns, þá hafi hún raunveru-
lega trúað því að það myndi leiða til
sambærilegs kynjahlutfalls í efsta
lagi stjórnendateyma fyrirtækja.
„Við sjáum núna að það hefur alls
ekki orðið raunin. Könnunin sýnir
líka að það er raunveruleg þörf á að
afla frekari gagna um þetta.“
Rakel segir að helsta ástæða þess
að fyrrnefnd könnun hafi verið gerð
sé sú að FKA hafi verið í vandræð-
um með að afla gagna til að gera
nógu góða tölfræði um þennan þátt í
rekstri fyrirtækja. Gögnin séu
hvergi til. Hún nefnir til dæmis að í
fyrirtækjaskrá og á hluthafalistum
sé getið um stjórnarmenn og pró-
kúruhafa, en ekki um fólk í efsta
stjórnendalaginu. Eina leiðin í dag
til að fá yfirsýn yfir þetta sé einfald-
lega að hringja í hvert og eitt fyrir-
tæki.
Blönduð teymi ná meiri árangri
Rakel segir að ástæða þess að
FKA sé að beita sér jafn ákveðið í
þessu og raun ber vitni sé sú að öll
gögn og rannsóknir styðji það að
þegar blönduð teymi karla og
kvenna séu í fyrirtækjum, þá nái
fyrirtækin hreinlega betri árangri.
„Það er líka svo sorgleg sóun á
mannauði að vera að mennta allar
þessar kraftmiklu ungu konur, en
hleypa þeim ekki til meiri áhrifa í
fyrirtækjunum. Við erum með eitt-
hvert hæsta hlutfall kvenna á at-
vinnumarkaði í heimi. Þetta slagorð
okkar á ráðstefnunni, Rétt upp
hönd, er bæði hvatning til kvenna að
gera sig sýnilegri innan fyrirtækja
og einnig hvatning til karlmanna og
karlstjórnenda að horfa í kringum
sig á konurnar sem eru til staðar, og
velta alvarlega fyrir sér hvort það
séu ekki fleiri konur sem sannarlega
ættu skilið að fá tækifæri.“
Fjörutíu fyrirtæki eru að sögn
Rakelar búin að skuldbinda sig til að
skrifa undir yfirlýsingu á ráðstefn-
unni í næstu viku um að fara í það
verkefni með Jafnvægisvoginni að
ná auknu jafnvægi innan sinna vé-
banda, og þá sérstaklega fyrirtæki
sem eru frekar karllæg eða með
karlkyns stjórnendur. „Fyrirtæki
geta þarna sýnt það í verki að þau
hafi áhuga á að komast lengra í
þessum efnum. Þau geta skráð sig,
tekið þátt, og fengið þá góð ráð um
hvaða leiðir er hægt að fara.“
Umræður um lagasetningu
Spurð að því hvort lagasetning sé
til umræðu, lagist hlutirnir ekki í
efri stjórnendalögum fyrirtækja,
segir Rakel að enn sem komið er sé
látið nægja að búa til leiðir eins og
Jafnvægisvogina til að rétta hlut
kvenna. „En ég get lofað því að ef
tölurnar fara að sýna okkur það eft-
ir til dæmis tíu ár, að ekkert er að
breytast, þá fer tónninn að breyt-
ast. Ég hef tekið eftir því bæði hér á
landi og erlendis, að raddir sem
kalla eftir lagasetningu um þessi
mál, eru byrjaðar að heyrast.“
Lög um kynjakvóta í stjórnum
fyrirtækja með yfir 50 starfsmenn
voru sett árið 2010 og tóku þau gildi
árið 2013. Lögin gera ráð fyrir því
að hlutfall hvors kyns í stjórninni
skuli vera að minnsta kosti 40% í
lok ársins 2013. Að sögn Rakelar þá
var hlutfall kvenna orðið 33% í
stjórnum fyrirtækja með yfir 50
starfsmenn eða fleiri árið 2013, en
hefur staðið í stað síðan lögin tóku
gildi.
Rakel bendir á að í vikunni hafi
alþingismaðurinn Lilja Rafney
Magnúsdóttir og meðflutnings-
menn úr öllum flokkum lagt fram
frumvarp á Alþingi um dagsektir á
þau fyrirtæki sem ekki eru að upp-
fylla lögin. „Við fögnum því mjög.
Þarna er hún að fylgja eftir til-
lögum FKA“
Konur 21% stjórnenda í efsta lagi
Héldu að lög um kynjakvóta í stjórn-
um fyrirtækja myndu hafa áhrif á
framkvæmdastjórnir fyrirtækja
Morgunblaðið/Eggert
Jafnrétti Rakel segir að rannsóknir styðji það að þegar blönduð teymi karla
og kvenna séu í fyrirtækjum, þá nái þau betri árangri.
Kjötsúpudagurinn er haldinn hátíð-
legur á Skólavörðustíg í Reykjavík í
dag, laugardaginn 27. október, sem
er fyrsti vetrardagur. Þetta er 16.
árið í röð sem vetri er heilsað á
þennan hátt. Það eru sauðfjár- og
grænmetisbændur og svo kaupmenn
og íbúar á Skólavörðustíg sem bjóða
gestum og gangandi að bragða á
matarmikilli, heitri og bragðgóðri
súpu. Alls munu 1.500 lítrar af súpu
vera á boðstólum. Dagskráin hefst
kl. 14.00 og stendur fram til kl. 16
eða á meðan birgðir endast.
Alls verður boðið upp á kjötsúpu á
sjö stöðum á Skólavörðustígnum og
það eru margir af fremstu mat-
reiðslumönnum landsins sem gefa
vinnu sína á þessum degi. Þá ætla
auk þess sauðfjárbændur að taka
þátt í því að útdeila súpunni. Súpu-
stöðvar verða við hús við götuna
númer 5, 8, 14, 20, 21a, 28 og 45.
Kjötsúpan er góð
Hátíð á Skólavörðustíg Bænd-
urnir koma í bæinn 1.500 lítrar
Morgunblaðið/Golli
Fjör Kjötsúpudagur vekur lukku.
Gjafavöruverslun
Kringlan
Gríptu gjöf
með þér!
Skipholti 50b • 105 Reykjavík • Sími 569 0900
Fax 569 0909 • lifbank@lifbank.is • www.lifbank.is
Sjóðfélagafundur Hlutfallsdeildar Lífeyrissjóðs bankamanna
verður haldinn miðvikudaginn 28. nóvember kl. 17:00
á Icelandair Hótel Reykjavík Natura, þingsal 2.
Dagskrá:
1.
2.
3.
Kynning á málarekstri gegn aðildarfyrirtækjum
sjóðsins og íslenska ríkinu.
Tryggingafræðileg staða Hlutfallsdeildar.
Önnur mál.
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna
Sjá nánar á vef sjóðsins www.lifbank.is
Sjóðfélagafundur
Fundurinn er aðeins opinn sjóðfélögum Hlutfallsdeildar.