Morgunblaðið - 27.10.2018, Síða 46

Morgunblaðið - 27.10.2018, Síða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2018 NÁNAR Á S A L U R I N N . I S 01/11 kl. 20:00 TVÆrKONUR, TVÖ PÍANÓ TÓNLEIKARÖÐ 2 0 1 8–2 0 1 9T Í B r Á Su nn aG un nl au gs dó tt ir og Ju lia H ül sm an n Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð Alfreð D. Jónsson – Hver er á myndinni? Greiningarsýning í Myndasal Hjálmar R. Bárðarson – Aldarminning á Vegg Prýðileg reiðtygi í Bogasal Leitin að klaustrunum í Horni Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sunnudagur 28.10. kl. 14. Sjónarhorn í skjölum. Leiðsögn Njarðar Sigurðssonar, Þjóðskjalasafni Íslands Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 Ókeypis aðgangur á greiningarsýningu í Myndasal VÉFRÉTTIR – KARL EINARSSON DUNGANON LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign BÓKFELL eftir Steinu í Vasulka-stofu SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17 LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON Opið allar helgar frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 515 9625, www.listasafn.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is SNIP SNAP SNUBBUR nefnist sýning myndlistarmannsins Guð- mundar Thoroddsen sem opnuð verður í dag, laugardag, kl. 15 í að- alsal Hafnarborgar. Á sama tíma verður sýningin Til móts við náttúr- una opnuð í Sverrissal þar sem sjá má verk úr safneign Eiríks Smith. Guðmundur lauk BA-námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2003 og útskrifaðist með meist- aragráðu í myndlist frá School of Visual Arts í New York árið 2011. Guðmundur er á mála hjá Asya Geisberg Gallery í New York og Hverfisgalleríi í Reykjavík og hefur tekið þátt í mörgum sýningum bæði hér á landi og erlendis. Þekkt dag- blöð, tímarit og vefsíður hafa fjallað um verk hans, m.a. Artforum, og The New York Times. Guðmundur sýnir ný verk í Hafn- arborg og töluvert ólík þeim sem hann er þekktastur fyrir. Í mál- verkum sínum hefur hann tekið fyrir karlmennskuna og stöðu feðraveld- isins á gamansaman hátt, sýnt m.a. skeggjaða karla við karlmannlega iðju á borð við þá að brugga bjór og stunda skotveiðar. Svolítið subbulegir En núna er enga karla að sjá – eða hvað? Jú, þeir gægjast fram í verk- unum sem í fyrstu virðast nærri því að vera algjörlega abstrakt, með hatt á höfði, skegg og oftar en ekki reykjandi. Guðmundur sýnir olíu- málverk, teikningar og skúlptúra og eru skúlptúrarnir á annan tug, að hans sögn. „Þeir eru allir svolítið subbulegir og klaufalegir,“ segir Guðmundur sposkur um skúlptúr- ana en hann hefur unnið skúlptúra meðfram málverkum í nokkur ár. „Það sem ég er að gera núna er al- veg nýtt fyrir mér,“ segir Guðmund- ur um málverkin á sýningunni. „Ég hef verið að gera meira vatnslita- og klippimyndir og fígúrurnar eru oft miklu greinilegri,“ útskýrir hann. Sem fyrr segir hefur Guðmundur lengi vel verið upptekinn af karl- mennskunni og feðraveldinu í verk- um sínumen núna er hins vegar ekk- ert slíkt konsept á ferð, engin grundvallarhugmynd eða útgangs- punktur. „Eitt af meginatriðunum með þessa sýningu var að ég ætlaði algjörlega að kasta körlunum frá mér, ætlaði ekki að gera karla, alls ekki. Ég ætlaði að leysa þá einhvern veginn upp þannig að þeir væru alls ekki þarna en svo troða þeir sér inn í þetta, samt sem áður. Og þó þeir séu óljósir eru þeir samt mjög greini- legir.“ Karlarnir eru stundum með laf- andi eyru, líkt og þeir séu hundar, segir Guðmundur. „Svo getur maður séð augu á svolítið marga vegu, nef og svona en þetta er svolítið óljóst,“ útskýrir hann. Í fjarlægð séu karl- arnir þó greinilegir. En hvers vegna koma þessir karl- ar alltaf upp úr kafinu? Guðmundur segir mögulegt að þeir séu einhvers konar hækja. „Ég hugsa með mér að nú ætli ég að gera abstraktverk sem er samspil lita og forma en svo dett- ur inn einhver sjóndeildarhringur og það vantar líka eitthvert myndefni. Þá er manni svo eiginlegt að leita í fígúruna og þetta kemur kannski til út af einhvers konar vana líka.“ Litapallettan hjá Guðmundi hefur verið frekar dempuð hin síðustu ár og í ljósari kantinum þar sem hann hefur unnið töluvert með vatnsliti. „En þetta er allt þyngra og meiri efniskennd í verkunum,“ segir hann um olíumálverkin. Snubbóttur stubbur – Skúlptúrarnir eru dálítið „naive“, ekki satt? „Jú, þeir eru það,“ svarar Guð- mundur og segir að þeir myndu sóma sér vel á sýningu í tröllaleik- skóla. „Skúlptúrarnir eru frekar stórir og öflugir en gætu hafa verið búnir til af börnum, fyrir utan að það er erfitt að búa til svona stóra skúlp- túra,“ segir Guðmundur kíminn. Hann hafi gefið sjálfum sér leyfi til að leika sér með efnið, bæði í mál- verkum og skúlptúrum. Upphafslína í lagi Og talandi um leik þá virðist vera mikill leikur í sýningartitlinum, SNIP SNAP SNUBBUR. „Þetta er upphafslína í lagi sem ég held að tónmenntakennarinn minn hafi sam- ið og var oft sungið í skólanum hjá mér, Fossvogsskóla. Þetta kom bara upp í hugann þegar ég var að hugsa um titil og mér fannst ekki ganga að vera með titil með vitrænum eða rökrænum skírskotunum eða ein- hverju umfjöllunarefni. Mér finnst þessi titill lýsa því hvernig verkin Karlarnir tróðu sér inn  Guðmundur sýnir í Hafnarborg Stórsveit Reykjavíkur heldur tón- leika í Silfurbergi í Hörpu á morg- un kl. 20. Sveitin mun leika tónlist eftir bandarísku tónlistarkonuna Mariu Schneider, öll verkin af fyrstu plötu hennar; Evanesence, frá árinu 1994. Schneider er af flestum talin fremsti höfundur stórsveita- tónlistar samtímans, að því er fram kemur í tilkynningu, og segir þar einnig að gagnrýnendur hafi meðal annars kallað tónlist hennar „tignarlega, töfrandi, hjartastöðv- andi, ægifagra og óflokkanlega“. Schneider hlaut að loknu háskóla- námi styrk til að nema hjá Bob Brookmeyer, einum áhrifamesta stórsveitahöfundi síðari áratuga, og vann einnig sem kópíisti og að- stoðarmaður Gils Evans sem var annar stórmeistari í sögu stór- sveitanna. Árið 1992 stofnaði Schneider eigin stórsveit og vakti athygli fyrir persónulegan og frumlegan stíl, eins og því er lýst í tilkynningu, en fyrsta plata henn- ar, fyrrnefnd Evanesence, er til- einkuð Gil Evans. Hún hefur frá útgáfu hennar ferðast víða um heim og þá bæði með eigin stór- sveit og til að stjórna öðrum stór- sveitum. Ein þeirra er Stórsveit Reykjavíkur sem Schneider stjórn- aði á tónleikum í Gamla bíói fyrir 18 árum. Meðlimir sveitarinnar tóku margir hverjir líka þátt í samnorrænu verkefni undir henn- ar stjórn á Grænlandi nokkrum ár- um síðar. Schneider hefur hlotið fimm Grammy-verðlaun og hefur 13 sinnum verið kjörin útsetjari árs- ins af djasstímaritinu Downbeat, auk þess að hljóta fleiri viðurkenn- ingar. Schneider hefur unnið með þekktum listamönnum á borð við Sting og David Bowie og kom hún og hljómsveit hennar við sögu á síðustu plötu Bowies, Blackstar. Stjórnandi á tónleikunum verð- ur Snorri Sigurðarson og fer miðasala fram á tix.is, harpa.is og í miðasölu Hörpu. Stórsveitin Heldur tónleika í Silfurbergi í Hörpu annað kvöld. Stórsveit Reykjavíkur leik- ur verk Mariu Schneider  Einn fremsti höfundur stórsveitatónlistar samtímans Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.