Morgunblaðið - 26.10.2018, Síða 10
É
g elska fólk og heillast auðveldlega
af því, hvort sem það er fólkið sem
deilir með mér heimili, fjölskyldan
mín, traustir vinir, nemendur mínir
eða áhugaverðar persónur í bókum
og bíómyndum.“
Hvers nýtur þú á veturna?
„Ég er nýflutt til Seyðisfjarðar þar sem
vetrarríkið getur verið ansi tilkomumikið. Ég
er að búa mig undir það andlega og veraldlega
að takast á við komandi vetur. Ég keypti mér
til dæmis hnausþykka, skærbleika heima-
prjónaða ullarpeysu á markaði á Haustroða
hérna á Seyðisfirði um sl. helgi og er að skoða
kuldaskókaup. En ég er líka í leshópi með
skemmtilegum vinkonum hér í fiðinum fagra
og við lesum áhugaverðar og fjölbreyttar bæk-
ur og gerum þær svo upp í huggulegum sam-
sætum. Ég syng í kór og er að læra söng hjá
Rusu Pertriashvili og Kristjönu Stefánsdóttur
sem kemur sem gestakennari hingað austur.
Seyðfirðingar eru ekkert fyrir að láta sér leið-
ast og mér virðist alltaf eitthvað vera um að
vera hérna – maður er manns gaman, sagði
einhver og fólk er duglegt að koma saman og
gera sér glaðan dag. Það þarf ekki að vera flók-
ið og stundum er bara gaman að hóa fólki sam-
an í göngu og enda á kaffi og kexi heima hjá
einhverjum eða taka í spil.“
Hvað er það fallegasta við árstíðina?
„Bærinn minn er fagur á öllum árstímum en
í snjó er hann bara eins og hinn eini sanni jóla-
bær. Ég kann vel við friðsældina sem fylgir
snjónum en það er líka notalegt að hjúfra sig
saman fjölskyldan í sófanum og horfa á
skemmtilegt barnaefni á meðan rigningin og
rokið lemja húsveggina.“
Að líða þukkafullt niður brekkurnar
Ertu dugleg að æfa úti í kulda?
„Ég get eigilega ekki sagt það,
ég stunda enga skipulagða lík-
amsrækt en ég er móðir
tveggja barna, tveggja og fjög-
urra ára. Við erum því mikið
úti að leika um helgar, ég á
ekki bíl svo við löbbum mikið.
Það er svo stórkostlegt
skíðasvæði hérna að ég eig-
inlega verð að læra að standa
á skíðum og líða þokkafullt
niður brekkurnar. Kannski
stekk ég bara á gönguskíðaæðis-
ölduna sem gengur nú yfir land-
ann.“
Hvernig eyðirðu köldum vetrar-
kvöldum með fjölskyldunni?
„Kertaljós eða fallegt lampaljós búa til
huggulega stemningu. Við höfum gaman af því
að mála, perla og lita. Svo eru bara gömlu góðu
hlutverkaleikirnir svo skemmtilegir, ég er svo-
lítið oft gömul farlama kona í slíkum leikjum og
börnin eru læknar og hjúkrunarfræðingar.
Við fórum í æðislega stjörnuskoðunarferð í
fyrrakvöld, dóttir mín söng frumsamin lög um
stjörnurnar og valdi eina stjörnu á himninum
fyrir hvern einasta vin og ættingja okkar.“
Föndur og annað dundur
Áttu gott ráð fyrir aðra foreldra að gera með
börnunum þegar veðrið er vont?
„Föndur og dundur, lesa bækur saman.
Baka eitthvað gott. Búa til tjald eða hús úr
stólum og teppum. Fara í „pikknikk“ fram í
forstofu. Það er líka gaman að fara í feluleik í
myrkri og jafnvel með vasaljós. Svo er auðvit-
að gaman að dúða sig bara og bjóða veðrinu
birginn. Bókasöfn eru líka skemmtileg og hægt
að kíkja á þau til að breyta um umhverfi.“
Borðar þú öðruvísi mat á veturna en sumr-
in?
„Kuldinn hefur vissulega áhrif á matarlyst-
ina og mig langar miklu meira í súpur og ég
drekk endalaust af tei á veturna en mun síður á
sumrin. Svo verður rjómi og rjómaostur miklu
fyrirferðarmeiri á matseðlinum. Við erum
mjög dugleg að baka lummur og þá sérstak-
lega á veturna og það er dásamlegt að hafa
rjómaslettu með.“
Áttu uppskrift að einhverju góðu?
„Ég er með svo mikinn mótþróa þegar kem-
ur að uppskriftum að ég fylgi þeim aldrei. En
ég hef gaman af að skoða þær og nota sem inn-
blástur. Lummurnar mínar eru sykurlausar en
við notum yfirleitt gott hunang á þær.“
Bara leiðinlegu fólki leiðist
Áttu góða minningu af þér að vetri til í
æsku?
„Já, ég var einmitt að rifja það upp um dag-
inn með systur minni að einhvern tíma ca ’84
eða ’85 fékk ég að vera með eldri systrum
mínum og nágrannakonu okkar að búa til
snjóhús. Það var gríðarstórt í minni minningu
og við gátum allar fjórar setið þar með kerta-
ljós þegar byggingin var tilbúin. Svo fengum
við að fara með kakó og smákökur út í húsið
líka, það var huggulegt.“
Guðrún segir að mamma sín hafi einhvern
tímann sagt að bara leiðinlegt fólk gæti látið
sér leiðast.
„Ég hlýt að vera ágætlega skemmtileg því
mér leiðist aldrei, maður getur alltaf fundið
sér eitthvað til dundurs og ef ekki þá á maður
að fara að hjálpa einhverjum. Það er alltaf
einhver sem getur þegið félagsskap eða að-
stoð við uppvaskið.“
„Bara leiðinlegu fólki leiðist“
Guðrún Ásta Tryggvadóttir er mamma, kennari og áhugasöngdíva að eigin sögn. Hún kann mörg góð ráð fyrir fjölskylduna
að eiga góðan tíma saman á veturna. Henni leiðist aldrei og mælir með að aðstoða aðra ef mann vantar vekefni á veturna.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Guðrún Ásta fer allra sinna
ferða fótgangandi. Hún er
mikið fyrir fjölskylduna og
elskar að vera kennari.
Guðrún Ásta segir að það sé margt hægt að gera með börnunum
á veturna. Hér er verið að setja upp nýtt andlit.
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018