Morgunblaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018 MORGUNBLAÐIÐ 21
Smiðjuvegi 30 (rauð gata) 200 Kóp., S: 577 6400
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
fyrir heimilið
VifturHitarar
LofthreinsitækiRakatæki
Gott er að hafa ákveðinn lágmarksbúnað í bílnum á veturna og
brýnt að ökumenn haldi ekki illa útbúnir af stað út úr bænum að
vetri til. „Innanbæjar er auðveldara að hóa eftir hjálp ef aðstoðar
er þörf, en samt gagnlegt að hafa samanbrjótanlega skóflu í skott-
inu og poka af sandi til að losa bílinn ef hann festist í snjó og
hálku,“ segir Björn. „Vitaskuld þarf líka að hafa góða gluggasköfu
við höndina sem þægilegt er að nota og er bæði með bursta- og
sköfuhlið. Er vissara að athuga hvort skafan er með stál- eða
plastblaði því fara þarf varlega með stálsköfurnar sem geta rekist
utan í og rispað lakkið.“
Fyrir akstur út fyrir höfuðborgarsvæðið ráðleggur Björn að taka
m.a. með hlýjan fatnað, hanska og góða vetrarskó, og jafnvel
teppi ef það gerist að bíða þarf aðstoðar í bílnum. „Einnig ætti að
hafa startkapla meðferðis, vasaljós, gæta þess að loftdælan sé til
staðar ef bíllinn er ekki með varadekk og að snúra sé í bílnum til
að hlaða farsímann.“
Vasaljós, vetrarfatn-
aður og hlaðinn sími
hjálpa að hafa rúðuþurrkurnar uppi svo að
gúmmíið frjósi ekki fast við rúðuna. Enn
aðrir nota það ráð að úða hressilega af rúðu-
vökva á framrúðuna þegar komið er
heim í hlað í lok dags. Allt eru
þetta þó ráð sem ég get ekki
tekið neina persónulega
ábyrgð á og verða les-
endur sjálfir að sjá hvað
reynist þeim best.“
Er rafgeymirinn lúinn?
Góð regla er að yfirfara
bílinn vandlega í upphafi
vetrar og segir Björn sér-
staklega brýnt að skoða ástand
rafgeymisins. Flestir framleiðendur
mæla með að skipt sé um rafgeymi á 3-5 ára
fresti en meira mæðir á rafgeymunum í
nýrri bílum en eldri enda miklu meiri tækni
í þeim fyrrnefndu. „Þegar rafgeymarnir eru
orðnir þreyttir eiga þeir það til að gefast
upp þegar tekur að kólna í veðri og verður
þá í nógu að snúast hjá vegaþjónustu FÍB,“
segir Björn og bætir við að ef grunur leikur
á að geymirinn sé orðinn slappur sé einfalt
að láta prófa hann hjá viðurkenndum aðila.
Einnig ætti að ganga úr skugga
um að frostlögurinn sé með
nægilegt frostþol, rúðuþurrk-
urnar í lagi og nóg af rúðu-
pissi. Bendir Björn á að
skoða tilmæli framleið-
anda í þjónustubók um
hve títt þarf að skipta um
frostlög. „Þá er vissara
að ganga úr skugga um að
allar læsingar séu vel
smurðar jafnt í skotti sem
hurðum.“
Enginn ætti að vera á götum að
vetri til á lélegum dekkjum og góð regla að
vera tímanlega á ferðinni með dekkjaskiptin
á haustin. Að vera á dekkjum sem henta
ekki aðstæðum er ávísun á slys og minnir
Björn líka á mikilvægi þess að hreinsa
mynstrið á dekkjunum endrum og sinnum
með tjöruhreinsi til að losa burtu óhreinindi
sem geta safnast þar upp. „Loftþrýsting-
urinn þarf líka að vera í lagi en innan á
hurðarkörmum má finna spjald með upplýs-
ingum um réttan loftþrýsting. Rangur loft-
þrýstingur getur skert aksturseiginleika
bílsins, aukið eldsneytisnotkun og valdið því
að dekkin slitna hraðar.“
Bónhúðin hjálpar
Þegar kemur að daglegri umhirðu segir
Björn vissara að reyna að finna tíma til að
þrífa bílinn og bóna rækilega til að vernda
lakkið gegn salti og tjöru. „Góð bónhúð
hjálpar heilan helling við að halda lakkinu
fallegu og heilu,“ útskýrir hann. „Ætti líka
að forðast að hafa eldsneytistankinn hálf-
tóman því þá vill það gerast að raki í and-
rúmsloftinu þéttist í tankinum og verði að
vatni sem blandast saman við bensínið eða
díselolíuna. Getur það valdið gangtruflunum
og öðrum vandamálum ef vatnið kemst í vél-
ina. Margir díselbílar eru með vatnssíu af
þessum sökum og gæti þurft að tappa af
henni.“
Til í slaginn við vetrarfærðina
Samanbrjótanleg skófla og poki af grófum sandi geta komið í góðar þarfir í vetrarfærðinni.
Svo er óvitlaust að setja gömul dagblöð undir motturnar í bílnum til að draga úr rakamyndun.
Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þ
að er ekkert grín að festa bílinn í
snjóskafli uppi á heiði, og býður
líka hættunni heim að aka úr
hlaði með hélaðar rúður. Mikil-
vægt er að undirbúa bílinn fyrir
veturinn til að geta betur tekist á við frostið
og hálkuna og tryggja að allir komi heilir og
kátir á áfangastað.
Björn Kristjánsson, sérfræðingur hjá FÍB,
segir gott húsráð að setja gömul dagblöð
undir motturnar í bílnum. „Þegar við stígum
upp í bílinn berum við með okkur snjó og
bleytu á skónum og það getur haft þau áhrif
að töluverður raki myndast í farþegarýminu.
Bæði ætti fólk að vera duglegt við að taka
motturnar úr bílnum til að losa úr þeim
snjóinn og bleytuna, og svo er hægt að
lauma dagblaði undir motturnar og skipta
blaðinu reglulega út. Pappírinn dregur í sig
raka svo að hélar síður innan á rúðunum.“
Að sögn Björns má líka reyna, ef það
hentar, að setja mottu yfir framrúðuna á
kvöldin til að losna við hélun og létta sköf-
unina næsta morgun. „Sumum þykir líka
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Morgunblaðið/Kristinn
Samanbrjótanleg skófla
getur bjargað deginum.
Vissara er að vera
á góðum dekkjum
áður en færðin
verður slæm.
Öflug skafa kemur í góðar þarfir
á köldum vetrarmorgnum. Gæta
þarf að því, ef skafan er úr
málmi, að rispa ekki lakkið.