Morgunblaðið - 26.10.2018, Side 18
É
g hef alltaf góða tilfinningu fyrir vetrar-
mánuðunum. Mér finnst skemmtilegt í
vondum veðrum, enda verða þar bestu ljós-
myndirnar til,“ segir Ragnar Axelson sem
hefur fengið mikið lof að undaförnu fyrir
ljósmyndasýninguna sína Jökul, í Ásmundarsal. Þess
má geta að samhliða sýningunni kom út bókin Jökull,
sem er einstaklega fallega hönnuð af samstarfsmanni
Ragnars, Einari Geir Ingvarssyni. Ragnar segi Jökul
allt öðruvísi bók en hann hafi gert áður, þetta sé í
rauninni hálfgerð ljóðabók, þar sem munstur í lands-
laginu minni á blýantsteikningar.
Kuldinn hefur sjarma
Hvað með kuldann. Ertu ekki viðkvæmur fyrir hon-
um?
„Kuldinn hefur ákveðinn sjarma í mínum huga, það
er bara að klæða sig vel þá líður manni vel.
Að vera í hlýjum fötum og búa sig vel undir að-
stæður hverju sinni er mikilvægt að mínu mati.
Þegar ég ferðast um norðurslóðir er mikilvægt að
klæða sig vel og vera búinn undir það versta því það
er ekkert verra en að verða kalt einhvers staðar
fjarri öllu sem getur hlýjað manni.“
Ragnar segir hugarfarið ekki síður mikilvægt en
fötin. „Að vera jákvæður og með hausinn á réttum
stað skiptir öllu. Eins og gamall veiðimaður sagði mér
þegar við vorum að fara í tvær vikur út á hafísinn.
Hann sagði að ég hefði val, ef ég væri neikvæður þá
yrði mér kalt og ferðin yrði ömurleg. Ef ég væri hins
vegar jákvæður þá yrði þetta mín besta ferð. Þá
myndi ég upplifa einhvern fallegasta listaverkasal á
jörðinni þar sem risaísjakar sitja fastir í hafísnum.
Rétt hugarfar yfirvinnur allt og þú munt sigra kuld-
ann.“
Myrkrið veitir tilhlökkun
Ragnar segir alla mánuði sína uppáhaldsmánuði.
„Stundum eru þessir dimmu og stuttu dagar aðeins
of stuttir, en myrkrið veitir tilhlökkun til sumarsins.“
Aðspurður hvað hann borði á veturna segist hann
borða allt. „En það er mismunandi hvað ég borða, eft-
ir því hvar ég er hverju sinni.
Á Norðurslóðum þarf maður svolítið orkuríkan mat
til að halda á sér hita þegar frostið bítur hart. Á
sumrin er ég mikil grænmetisæta og borða yfirleitt
mjög hollan mat.“
Hvað með sjóböð, stundar þú þau?
Bestu ljósmyndirnar verða til í vondum veðrum
Ragnar Axelsson ,ljósmyndari er einn af þeim sem kunna að klæða sig eftir veðri. Hann hefur undanfarin misseri ferðast
um landið að mynda íslenska jökla. Að fenginni reynslu finnst honum kuldi hafa ákveðinn sjarma.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ragnar Axelsson ljósmyndari
er einn af þeim sem er alltaf
viðeigandi klæddur.
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
Vetraryfirhafnir
Vind- og vatnsþéttar
20%
AFSLÁTTUR
TUDOR rafgeymar
TUDOR TUDOR
Er fjórhjólið tilbúið fyrir
fyrir fjallaferðina?
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Veldu
öruggt
start með
TUDOR
NÝTT NÝTT,
Lithium rafgeymar fyrir mótorhjól
Ljósmynd/Óskar Páll
Náttúran er án efa fallegasta lista-
verkið sem hægt er að njóta ef
maður er vel undirbúinn og
klæddur eftir veðri.