Morgunblaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 19
„Já. Sjóböð eru það besta sem hægt er að hugsa sér. Þau taka í burtu streitu og styrkja líkamann. Þau auka bæði kuldaþol og gera bara eitthvað ótrúlegt fyrir líkama og sál.“ Ragnar segir að fólk sé frekar fljótt að ná upp þoli í sjónum. „Maður þarf ekki að vera lengi í sjónum í einu. Heldur er þetta meira að ná ákveðnu hugar- ástandi ofan í vatn- inu. Þetta er allt í hausnum á okkur. Mitt ráð til þeirra sem langar að prófa, er bara að láta vaða!“ Ljósmynd/Einkaeign. Það er eitthvað ótrúlega heillandi við veturinn. „Eins og gamall veiðimaður sagði mér þegar við vorum að fara í tvær vikur út á hafísinn. Hann sagði að ég hefði val, ef ég væri neikvæður þá yrði mér kalt og ferðin yrði ömurleg. Ef ég væri hins vegar jákvæður þá yrði þetta mín besta ferð.“ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018 MORGUNBLAÐIÐ 19 Vertu viðbúinn vetrinum LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR SNJÓKEÐJUR Nøsted Kjetting as Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Ný hönnun Veistu um góðan rafvirkja? FINNA.is N ámskeiðin eru hvort tveggja; skemmtilegt frístundagaman fyrir þá sem hafa áhuga á að syngja og einnig mjög góður undirbún- ingur fyrir frekara söngnám. Hægt er að læra bæði á dagvinnutíma og á kvöldin. „Sumir þátttakendur verða svo spenntir og glaðir að þeir skrá sig í frekara nám í skólanum og oft hefur þátttaka í námskeiðum skólans orðið kveikjan að far- sælu söngnámi. Námskeiðin henta stórum hópi fólks. Margir sem syngja í kór sækja námskeiðin og oft hafa þau líka orðið hvatning að því að fólk, sem hefur haft áhuga á að fara í kór en ekki haft sig í það eða skort kjark, gengur til liðs við kór að námskeiði loknu. Yngstu þátttakendurnir eru á unglingsaldri og þeir elstu komnir yfir miðjan aldur. Námskeiðin sam- anstanda af kennslu í söngtækni og tónfræðiundir- stöðu, sem er forsenda þess að geta lesið nótur,“ segir Ásrún Davíðsdóttir, aðstoðarskólastjóri Söngskólans í Reykjavík. Hún segir að í einkatímum sé farið yfir rétta radd- beitingu og sönglög og túlkun þeirra kennd. „Kennararnir virða það og vinna með hverjum nem- anda í samræmi við hans óskir og áhugasvið. Í litlum hópum er svo kennd tónfræði og undirstöðuatriði nótnalesturs. Það er mikill fengur fyrir fólk sem syng- ur í kór; því finnst heill heimur ljúkast upp fyrir því þegar það áttar sig á hvað nóturnar þýða.“ Tvisvar á hverju námskeiði hittast allir nemendur með píanóleikara og kennara og þjálfast í því að koma fram og syngja fyrir framan áhorfendur. Hvert nám- skeið stendur í sjö vikur, næsta námskeið hefst 29. október og stendur til 14. desember. Farðu syngjandi í gegnum veturinn Hefur þig alltaf dreymt um að læra að syngja? Ef svo er þá gæti Söngskólinn í Reykjavík verið eitthvað fyrir þig. Ljósmynd/Sölvi Sólríkir vetrardagar kalla á hlýjan yfirfatnað. Viðhorfið skiptir einnig máli, að sögn Ragnars Axelssonar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.