Morgunblaðið - 01.11.2018, Page 1

Morgunblaðið - 01.11.2018, Page 1
VILL LÉTTA UNDIRMEÐ KONUNNIEKKI GLÓRA Í NEINU helt gler í sérstökum peningaskáp fyrir viskísafnarann. 4 Unnið í Formaður Sjómannafélagsins segir Heiðveigu Maríu Einarsdóttur hafa unnið gegn hagsmunum félagsins. 7 VIÐSKIPTA 4 Skot samvinnu við Samkeppnisstaða Íslands hefur versnað segir Pétur Óskarsson og krefjandi tímar eru framundan. Hann sækir innblástur í klárt og gefandi fólk. FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018 Fjárfest í skugga taprekstrar Þann 6. nóvember í fyrra tók stjórn Íslandspósts endanlega ákvörðun um að ráðast í umfangsmiklar fram- kvæmdir við húsnæði fyrirtækisins að Stórhöfða 21. Þar er um að ræða stækkun á húsnæði fyrirtækisins og nemur viðbótin 1.100 fermetrum eða tæplega 2.000 fermetrum með milli- gólfi. Samkvæmt niðurstöðu útboðs sem Ríkiskaup héldu utan um nem- ur heildarbyggingarkostnaður við framkvæmdina tæpum 700 millj- ónum króna. Samkvæmt upplýs- ingum frá Íslandspósti er kostnaður við innréttingar í húsnæðinu inni í þeirri upphæð en ekki kaupverð mögulegs tækjabúnaðar, en ákvörð- un um fjárfestingu í búnaði hefur ekki enn verið tekin. Þá segir í svari fyrirtækisins til ViðskiptaMoggans að gert sé ráð fyrir að áætlanir við framkvæmdina muni standast. Athygli vekur að fyrirtækið hafi ráðist í jafnumfangsmikla fram- kvæmd og þessa í lok síðasta árs í ljósi þess að í september síðast- liðnum varð ríkissjóður að leggja Ís- landspósti til 500 milljónir króna í formi 12 mánaða láns í þeirri við- leitni að styrkja lausafjárstöðu fyrirtækisins. Var lánveitingin veitt með fyrirvara um heimild í fjár- lögum. ViðskiptaMogginn leitaði upplýs- inga hjá Íslandspósti um það með hvaða hætti framkvæmdin á Stór- höfða er fjármögnuð. Samkvæmt upplýsingum þaðan er verkefnið fjármagnað með framkvæmda- fjármögnun frá Landsbanka Ís- lands. Þá leitaði blaðið einnig upplýs- inga um hvað ráðið hafi ákvörðun um að ráðast í framkvæmdirnar, í ljósi þess að fyrirtækið hefur nú, fáum mánuðum eftir að ákvörðunin var tekin, neyðst til að slá lán hjá ríkissjóði vegna bágrar lausa- fjárstöðu. Í svari frá Íslandspósti segir að lengi hafi legið fyrir að stækka þyrfti póstmiðstöð fyrirtækisins vegna aukins pakkamagns. „Þessum endurbótum hafði verið slegið á frest á árunum 2011-2015 en eftir þokkalega afkomu árin 2016 og 2017 og útlit fyrir sambærilega þróun á árinu 2018 var ákveðið að ráðast í þessar framkvæmdir.“ Í svari fyrirtækisins kemur einnig fram að magnminnkun í einka- réttarbréfum hafi verið mun hraðari og meiri á þessu ári en búist hafi verið við og að það hafi leitt til hratt versnandi rekstrarstöðu fyrirtækis- ins. „Spár gengu út frá því að bréfa- magn myndi minnka 7% á árinu en eins og staðan er í dag hefur þeim fækkað um rúm 14%. Þegar litið er til september og október á þessu ári hefur magnminnkun samanborið við sama tímabil í fyrra verið yfir 20%.“ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Þegar stjórn Íslandspósts ákvað að ráðast í umfangs- miklar framkvæmdir undir lok síðasta árs var ekki gert ráð fyrir þeim taprekstri sem nú hefur raungerst. Morgunblaðið/Árni Sæberg Viðbyggingin á Stórhöfða mun kosta um 700 milljónir króna að lágmarki. Úrvalsvísitalan EUR/ISK 1.900 1.800 1.700 1.600 1.500 1.400 2.5.‘18 1.5.‘18 31.10.‘18 31.10.‘18 1.780,48 1.623,64 135 130 125 120 115 122,05 137,6 Árni Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri lífeyrissjóðsins Gild- is, segir að sjóðurinn hafi lánað 15 milljarða króna það sem af er þessu ári í formi sjóðfélagalána. Fyrri áætlanir sjóðsins hafi gert ráð fyrir að draga myndi úr að- sókninni í lánin hjá sjóðnum en að engin merki séu um hjöðnun í þeim efnum.„Fólk er að koma og endur- fjármagna hér lán og spara sér tugi þúsunda í greiðslubyrði með uppgreiðslu óhagstæðari lána,“ seg- ir hann og bætir við að aukin áhersla á sjóðfélagalán séu ein mesta kjarabót sem almenningi hafi boðist á síðustu árum.Í viðtali á miðopnu ViðskiptaMoggans í dag ræðir Árni einnig um þá ákvörðun Gildis árið 2015 að beita sér með ákveðnari hætti á vettvangi þeirra skráðu hlutafélaga sem sjóðurinn fjárfestir í. Nú er það markmið sjóðsins að funda með stjórnarfor- mönnum allra félaganna ár hvert. Segir hann þá nálgun hafa gefið góða raun. Ekkert lát á aukningu útlána Morgunblaðið/RAX Árni Guðmundsson hefur stýrt Gildi og forverum sjóðsins frá árinu 1982. Það sem af er ári hefur lífeyrissjóðurinn Gildi lánað sjóðfélögum 15 milljarða króna. 8 „Ársfjórðunga-kapítalismi“ hefur valdið því að langtíma- hugsun ræður ekki lengur för við val á fjárfest- ingarkostum. Skortsalar og skammsýni 10 Eftir langt uppgangstímabil kom óvænt bakslag í rekstur- inn hjá Silicon Valley Bank. Bankinn stendur samt vel að vígi. LEX: Gamanið kárnar í Kísildal 11 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík ey.is Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.