Morgunblaðið - 01.11.2018, Blaðsíða 4
ÁHUGAMÁLIÐ
Það getur verið dýrt að þróa með sér
smekk fyrir fínt viskí. Kosta sumar
flöskurnar tugi og jafnvel hundruð
þúsunda króna og gætu freistað þjófa
eða illa upp alinna unglinga á heim-
ilinu sem eiga ekkert með að stelast í
Suntory eða Dalmore.
Þetta vita stofnendur taívanska
fyrirtækisins Whisky Vault en þeim
hugkvæmdist að smíða peningaskáp
sem er sérhannaður fyrir viskísafn-
arann.
Skápurinn er úr stáli með hurð á
hliðinni og lokast kirfilega með bolt-
um og stafrænum talnalás. Framhlið
skápsins er síðan úr skotheldu gleri
svo að eigandinn getur virt fyrir sér
safnið þó að það sé á öruggum stað.
Undir rammbyggðum skápnum er
hirsla sem rúmar t.d. glös og ódýrari
flöskur sem ekki kalla á jafnmikla
vernd.
Viskí-peningaskápurinn kostar frá
6.000 dölum og má panta á whisky-
vault.tw. ai@mbl.is
Veigarnar geymdar
á öruggum stað
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018FRÉTTIR
Pétur tekur við Íslandsstofu á
áhugaverðum tímum. Ný lög um
starfsemi stofnunarinnar tóku gildi
í sumar og krefjandi verkefni fram-
undan.
Hverjar eru helstu áskoranirnar í
rekstrinum þessi misserin?
Stærsta verkefnið sem við Ís-
landsstofu blasir er að vinna til-
lögur að langtímastefnumótun at-
vinnulífs, hagsmunasamtaka,
stofnana og stjórnvalda varðandi
markaðssetningu og útflutning á
íslenskum vörum, þjónustu og
menningu. Þetta er stórt og spenn-
andi verkefni sem mun verða fyrir-
ferðarmikið á næstunni.
Hver var síðasta ráðstefnan
sem þú sóttir?
Ég fór á frábært Nýsköpunar-
þing sem haldið var þriðjudaginn
30. október. Þar kynntu íslensk ný-
sköpunarfyrirtæki á sviði lífvísinda
starfsemi sína. Erindin voru öll
framúrskarandi og ótrúleg gróska í
þessum geira.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif
á hvernig þú starfar?
Ég varð mjög upptekinn af
kenningum John Stuart Mill um
frelsi á háskólaárunum og lokarit-
gerðin mín í heimspeki fjallaði um
eitt af meginritum hans, Kúgun
kvenna. Á fullorðinsárum hef ég
verið svo heppinn að kynnast
mörgum góðum mönnum og kon-
um sem hafa haft áhrif á hvernig ég
starfa.
Hvernig heldurðu þekkingu
þinni við?
Með lestri bóka og grúski á al-
netinu. Ég er ekki mjög duglegur
að sækja ráðstefnur – það breytist
sennilega núna í nýju starfi.
Hugsarðu vel um líkamann?
Ja, ég hugsa að minnsta kosti oft
vel til hans. En ég reyni að lifa
heilsusamlegu lífi, borða hollan mat
og hreyfa mig, þó að þar megi alltaf
gera betur.
Hvað myndirðu læra ef þú fengir
að bæta við þig nýrri gráðu?
Húsasmíði eins og faðir minn
lærði. Fyrst og fremst til að geta
létt undir með konunni minni þegar
hún er í framkvæmdum á heim-
ilinu.
Hvaða kosti og galla sérðu við
rekstrarumhverfið?
Við hjá Íslandsstofu erum stöð-
ugt að hugsa um samkeppnishæfni
Íslands. Það er ljóst að hún hefur
versnað undanfarið og það eru
krefjandi tímar framundan. Við
stöndum hins vegar frammi fyrir
einstöku tækifæri, sem er að
standa vörð um þann árangur sem
náðst hefur og byggja þannig undir
það að íslensk fyrirtæki geti keppt
á alþjóðamörkuðum.
Hvað gerirðu til að fá orku og
innblástur í starfi?
Fer í göngutúr í Laugardalnum
og svo er fátt betra til innblásturs
en að tala við klárt og gefandi fólk.
SVIPMYND Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu
Stöndum frammi fyrir
einstöku tækifæri
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Pétur hefði gaman af að læra húsasmíði til að verða betur að liði í fram-
kvæmdum á heimilinu. Með því myndi hann feta í fótspor föður síns.
FASTEIGNIR
Hagnaður fasteignafélagsins Eikar
á þriðja ársfjórðungi nam 743 millj-
ónum króna og dróst saman um 7,6%
frá sama fjórðungi í fyrra. Rekstrar-
tekjur jukust og fóru úr 2.016 millj-
ónum króna í 2.112 milljónir. Hins
vegar jókst rekstrarkostnaðurinn
milli tímabila um 38 milljónir króna
og nam 722 milljónum. Matsbreyt-
ingar fjárfestingaeigna hækkuðu úr
362 milljónum á fjórðungnum og
námu 486 milljónum á þriðja fjórð-
ungi 2018. Jafngildir það aukningu
upp á ríflega 34%. Fjármagnsgjöld
jukust hins vegar verulega, eða um
43,7% og fóru úr 670 milljónum
króna í 963 milljónir.
Á fyrstu 9 mánuðum ársins nam
hagnaður Eikar 1,7 milljörðum
króna, samanborið við 2,4 milljarða
hagnað yfir sama tímabil í fyrra.
Munar þar mest um að matsbreyt-
ingar fjárfestingareigna eru mun
minni í sniðum nú en í fyrra. Nema
þær 897 milljónum til hækkunar,
samanborið við 1.550 milljónir í
fyrra.Í lok september námu eignir
félagsins 95,8 milljörðum króna, og
höfðu hækkað um 4,7 milljarða frá
áramótum. Eigið fé stóð í 30 millj-
örðum, samanborið við 29,2 millj-
arða um áramót og var eiginfjárhlut-
fallið 31,4%. Í tilkynningu frá
félaginu kemur fram að gert sé ráð
fyrir að EBITDA ársins verði við
neðri 1% mörk áætlana félagsins
sem hljóðaði upp á 5,3 milljarða
króna. ses@mbl.is
Hagnaður Eikar dregst saman
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Meðal stærstu og verðmætustu fjárfestingareigna Eikar er Borgartún 21.
NÁM: Menntaskólinn við Sund, stúdentspróf 1988; Háskóli Ís-
lands, BA-próf í heimspeki 1998; Fordham University í New
York, MBA 2000.
STÖRF: Viðskiptafulltrúi á aðalræðisskrifstofu Íslands 2000-
2005; forstöðumaður kynningarmála og fjárfestatengsla Ís-
landsbanka 2006-2007; framkvæmdastjóri Samskiptasviðs
Skipta 2007-2011; yfirmaður samskipta Framtakssjóðs Íslands
2011-2012; yfirmaður samskipta Símans 2012-2015; fram-
kvæmdastjóri Samskiptasviðs Icelandair Group 2015-2018;
framkvæmdastjóri Íslandsstofu frá 2018.
ÁHUGAMÁL: Ég hef mikinn áhuga á þjóðmálum og fólki, finnst
fátt skemmtilegra en að verja tíma með áhugaverðu fólki sem
hefur margt fram að færa. Fluguveiði er sameiginlegt áhugamál
okkar hjóna auk þess sem við ferðumst töluvert, bæði innan-
lands og utan. Í tengslum við starf konu minnar sem myndlist-
armanns hef ég fengið mikinn áhuga á samtímalist og svo á ég
enn eftir að finna íþróttagrein sem mér finnst ekki gaman að
pæla í og horfa á.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur Huldu Stefánsdóttur
myndlistarmanni og þriggja barna faðir.
HIN HLIÐIN
www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi
Margverðlaunuð baðvifta
Einstaklega hljóðlát 17-25dB (A)
Innbyggður raka-, hita-
og hreyfiskynjari.
Vinnur sjálfvirkt
3W
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla