Morgunblaðið - 01.11.2018, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018 15FÓLK
Góð þátttaka var á ráðstefnu Jafn-
vægisvogar Félags kvenna í
atvinnulífinu í gær, sem bar yfirskriftina
Rétt upp hönd.
Á ráðstefnunni ræddi Caroline Zegers
frá Deloitte í Hollandi meðal annars um
kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja.
Samstarfsaðilar FKA í Jafnvægisvoginni
eru velferðarráðuneytið, Sjóvá, Deloitte,
Morgunblaðið og Pipar/TBWA.
Kynjakvótar ræddir á
Rétt upp hönd
Ásmundur Einar Daðason, félags- og
jafnréttismálaráðherra, og Hermann Björns-
son, forstjóri Sjóvár, hlýddu á erindin.
Caroline Zegers, meðeigandi
hjá Deloitte í Hollandi, ræddi
um kynjakvóta.
Rakel Sveinsdóttir, formaður
Félags kvenna í atvinnulífinu.
Góð mæting var
á ráðstefnuna.
Anna Lára Steindal var
meðal fundargesta.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
RÁÐSTEFNA
Við erum í hjarta borgarinnar
að Þverholti 13. Komdu við í
kaffisopa eða sendu okkur
línu og óskaðu eftir tilboði í
prentverkið þitt, stórt eða
smátt.
MIÐBORGIN