Morgunblaðið - 01.11.2018, Qupperneq 6
AF 200 MÍLUM Á MBL.IS
Framleiðendur sojabauna eru sagðir stunda þrælkun og ólöglega eyð-
ingu skóglendis, auk þess að notast við ólöglegt skordýraeitur.
Frá þessu hefur verið greint í Dagbladet en málið hefur vakið tölu-
verða athygli í Noregi, þar sem sojabaunir framleiðendanna eru sagð-
ar notaðar til fóðurs hjá norskum fiskeldisfyrirtækjum.
Í svari Landssambands fiskeldisstöðva við fyrirspurn 200 mílna
kemur fram að ekki sé vitað til þess að íslensk fiskeldisfyrirtæki noti
sojabaunir frá umræddum framleiðendum, en sambandið hafði sam-
band við eldisfyrirtæki til að kanna málið.
AFP
Norsku fiskeldisfyrirtækin segjast taka ásakanirnar alvarlega.
Sojabaunaframleiðendur
sagðir stunda þrælkun
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018
Með því að nota þrívíð líkön má
leysa strax á hönnunarstigi mann-
virkja ýmis vandamál sem oft komu
ekki fram fyrr en á framkvæmda-
stigi. Sjávarútvegurinn er farinn að
nýta sér þessa nýju tækni og er út-
koman betri og skilvirkari fisk-
vinnsluhús sem ódýrara er að
byggja og reka.
Þetta segir
Davíð Frið-
geirsson,
bygginga-
fræðingur og
BIM-ráðgjafi hjá
Verkís. BIM er
skammstöfun á
ensku orðunum
„bulding inform-
ation modelling“, sem mætti þýða
sem upplýsingalíkön mannvirkja og
er um að ræða aðferðafræði sem er
að ryðja sér hratt til rúms í mann-
virkjagerð af öllum toga.
„Hönnuðir sem tileinka sér þessa
aðferðafræði vilja ekki fara aftur í
gömlu vinnubrögðin og hefðbundnu
teikningarnar. Þrívíða upplýsingalík-
anið myndar grunninn í hönnuninni
og eru allar teikningar dregnar út
úr líkönunum, en ekki öfugt,“ út-
skýrir Davíð og bætir við að BIM
snúist um mikið meira en það eitt að
teikna hús í þrívídd áður en þau eru
byggð: „Í hverju verkefni er hægt
að gera allt að 25 BIM-aðgerðir og
t.d. herma eftir því hvernig bygg-
ingin mun reynast á rekstrartím-
anum eða á framkvæmdatíma, sjá
áhrif hljóðeinangrandi, varmaein-
angrandi eða brunaþolinna efna, og
þar fram eftir götunum. Einnig býð-
ur þrívíddin upp á að gera svk.
árekstragreiningu þar sem kerfið
sýnir t.d. hvar lagna- og loftræsti-
kerfi gætu skarast. Á tvívíðum
teikningum getur verið erfitt að
koma auga á árekstrana, t.d. ef
vatnslögn liggur í gegnum loftræsti-
stokk, eða rafkerfið rekst á burðar-
virkið, og veldur töfum á verkstað
þegar árekstrarnir koma í ljós.“
Skoða sig um í óbyggðu húsi
Í sjávarútvegi hafa BIM-líkön
verið notuð á hönnunarstigi fisk-
vinnsluhúsa og geta stjórnendur og
starfsmenn jafnvel fengið að svipa
sig um í vinnslusalnum á meðan
hann er ennþá bara til sem þrívíð
teikning í tölvu: „Fiskvinnsluhús eru
tæknivæddir vinnustaðir og fáum við
nákvæm þrívíddarlíkön frá framleið-
endum tækjabúnaðarins. Þessum
líkönum er komið fyrir í þrívíðu lík-
ani af fiskvinnsluhúsinu, auk allra
lagna, rafkerfa og burðarvirkja og
hægt að „labba“ um rýmið í sýndar-
veruleika. Verksmiðjustjórinn, gæða-
stjórinn og fiskvinnslufólkið geta því
komið með ábendingar um það sem
mætti betur fara t.d. ef einhvers
staðar er of lítið pláss, eða ef létta
myndi þrifin að hliðra niðurfalli
lítilsháttar.“
Meðal þeirra sem hafa notað
BIM-tæknina með þessum hætti er
G.RUN á Grundarfirði sem fékk
Verkís til að hanna nýja viðbyggingu
við eldra fiskvinnsluhús. „Þar kom
t.d. í ljós að í nokkrum tilfellum voru
fætur fiskvinnsluvéla að lenda á
niðurfallsrennum, sem hefði leitt til
breytinga á þeim verkstað, töfum á
Hanna fiskvinnsluhúsin í þrívídd
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Ný nálgun við hönnun á
fiskvinnsluhúsum og öðr-
um mannvirkjum getur skil-
að umtalsverðum sparnaði
bæði á framkvæmdastigi
og í rekstri. Skoða má
húsakynnin í sýndarveru-
leika og koma auga á hvað
má betur fara.
Teikning/Verkís
Svona lítur vinnslusalur út í þrívíðu upplýsingalíkani. T.d. er hægt að koma auga á ef lagnir liggja á óheppilegum stað.
Davíð
Friðgeirsson
uppsetningu og verri niðurstöðu, en
með BIM var hægt að bregðast við
þessu vandamáli á hönnunartíma.“
Davíð segir óhætt að kalla BIM-
byltingu í mannvirkjagerð og hefur
t.d. Evrópusambandið reiknað það
út að með tækninni megi ná fram
um 13-21% sparnaði í framkvæmda-
og hönnunarfasa, og til viðbótar 10-
17% sparnaði í rekstri. „Við val á
BIM-aðgerðum er lagt upp úr því að
ávinningur þeirra sé meiri en til-
kostnaðurinn. Að jafnaði nemur
hönnunarkostnaður um 10% af
framkvæmdarkostnaði og betri
undirbúningur er því fljótur að skila
sér í aukinni hagræðingu.“
Að sögn Davíðs er ávinningur-
inn af BIM-aðferðafræðinni slík-
ur að nokkur lönd, þar á meðal
Noregur, Danmörk og Bretland,
hafa hafa lögfest kröfu um að
beita BIM í opinberum verk-
efnum. Með því má bæði ná
fram töluverðu hagræði en líka
bæta upplýsingamiðlun til al-
mennings. „Verkís hefur t.d.
komið að vegagerðarverkefnum
í Noregi þar sem unnið er með
líkön og mikið lagt upp úr því
að nota þau til að gera kynning-
armyndbönd fyrir íbúa viðkom-
andi svæðis. Þeir sem láta sig
framkvæmdina varða eru því
betur upplýstir þegar þeir
mynda sér skoðun á kostum og
göllum verkefnisins.“
BIM víða
orðið skylda
í opinberum
verkefnum