Morgunblaðið - 08.11.2018, Qupperneq 1
PRÓFAÐI NÝLEGA SUNDHLAUPKÁNTRÍ ÁVERKSTÆÐINU
narpenni sem hægt er að finna með símanum. 4
Jón Axel fann sitt „jóga“ í því að
smíða útiborð og -bekki fyrir vini
sína, og eftirspurnin er mikil.
VIÐSKIPTA
4
Blátan
Unnið í samvinnu við
Júlía Rós segir að konur þurfi að hafa meiri trú á sér,
og stökkva á tækifærin þegar þau gefast.
Næsta verkefni er hjá Coca-Cola.14
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf
Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík
ey.is
Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta
Skuldirnar þyngja róðurinn
Kaup Icelandair Group á öllu hlutafé
WOW air breyta flestöllum for-
sendum í yfirstandandi viðræðum
fyrrnefnda félagsins við eigendur
þeirra skuldabréfa sem fyrirtækið
hefur gefið út á síðustu árum.
Viðræðurnar sem Icelandair hóf
við eigendur bréfanna í byrjun októ-
ber tengjast því að félagið uppfyllir
ekki lengur skilmála sem gefnir voru
út í tengslum við útgáfu bréfanna ár-
ið 2016. Þar er kveðið á um að
EBITDA-hagnaður félagsins megi á
engu reikningstímabili fara undir
ákveðið hlutfall af vaxtaberandi
skuldum þess. Þegar fyrirtækið sendi
frá sér afkomuviðvörun í aðdraganda
þess að það kynnti 9 mánaða uppgjör
sitt var ljóst að semja þyrfti að nýju
við skuldabréfaeigendurna um skil-
málana að baki útgáfunni.
Sú vinna hefur staðið síðan en Ice-
landair náði samkomulagi við eig-
endur bréfanna um að það fengi und-
anþágu frá skilmálunum út
nóvembermánuð.
Gangi kaup Icelandair Group á
WOW air eftir, og síðarnefnda félagið
verði í kjölfarið dótturfélag þess fyrr-
nefnda, munu vaxtaberandi skuldir
samstæðunnar aukast talsvert. Við-
skiptaMogginn hefur ekki fengið
upplýsingar um hverjar skuldir
WOW air eru núna en samkvæmt
fjárfestingakynningu sem fyrirtækið
Pareto Securities tók saman í
tengslum við skuldabréfaútboð
WOW air í september, námu vaxta-
berandi skuldir félagsins um mitt
þetta ár u.þ.b. 150 milljónum dollara,
jafnvirði 18 milljarða króna.
Í samtali við ViðskiptaMoggann
staðfestir Bogi Nils Bogason, starf-
andi forstjóri Icelandair Group, að
vegna stærri efnahagsreiknings muni
breyttar forsendur liggja til grund-
vallar samningum við eigendur
skuldabréfanna, verði af kaupum
WOW air. „Kaupin bar afar brátt að
og á meðan við vorum í miðjum
samningaviðræðum við eigendur
bréfanna. Við höfum hins vegar upp-
lýst þá um þessa breyttu stöðu og
verði af kaupunum þá verða skuldir
nýs dótturfélags teknar inn í reikn-
inginn.“
Segir Bogi Nils að enn sé stefnt að
því að ljúka samningaviðræðum varð-
andi breytta skilmála fyrir komandi
mánaðamót. Hann hefur áður lýst því
yfir að stefnt sé að því að kaupferlinu
á WOW air verði lokið á sama tíma.
„Á grundvelli þessa erum við að
skoða hvaða leiðir eru bestar til að
stilla upp sterkum efnahagsreikningi
til framtíðar,“ segir Bogi Nils. Líkt
og Morgunblaðið greindi frá sam-
kvæmt heimildum á þriðjudag eru
forsvarsmenn Icelandair Group nú
m.a. að skoða hlutafjáraukningu í
tengslum við atburði síðustu vikna.
Bogi Nils segir ekki tímabært að tjá
sig um það þegar ViðskiptaMogginn
leitaði viðbragða hjá honum um það
atriði.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Kaup Icelandair Group á
WOW air hafa mikil áhrif á
viðræður fyrrnefnda fyrirtæk-
isins við skuldabréfaeigend-
ur. Skilmálar varðandi útgáfu
bréfanna eru brostnir.
Víkurfréttir/Hilmar Bragi
Icelandair Group hefur staðið í samningum við kröfuhafa sína á sama tíma
og félagið hefur samið um kaup á öllu hlutafé keppinautarins, WOW air.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
1.400
8.5.‘18
8.5.‘18
7.11.‘18
7.11.‘18
1.747,78
1.674,13
135
130
125
120
115
122,05
137,95
Dreifiveitur, sem starfa í krafti sér-
leyfis og á einokunarmarkaði, stíga á
virkan hátt inn á smásölumarkað
rafmagns þar sem frjáls samkeppni
ætti að ríkja. Þetta segir Magnús
Júlíusson, framkvæmdastjóri Ís-
lenskrar orkumiðlunar, sem fékk
fyrst fyrirtækja leyfi frá Orkustofn-
un til þess að stunda raforku-
viðskipti í byrjun árs 2017.
Fyrirtækið hyggst brjóta upp
markaðinn en ýmsar hindranir eru í
vegi að sögn Magnúsar. Hann segir
það merkilegt að hið opinbera skuli
búa til leikreglur en fari svo ekki eft-
ir þeim og bíði eftir því að einhver
komi og taki til. „Það að dreifiveitur
komist upp með það, í áraraðir, að
vera í þegjandi samkomulagi um það
að innan þeirra svæðis njóti bara
þeirra systur- eða dótturfélög allra
tilfærslna á viðskiptum er auðvitað
bara eins mikil hömlun fyrir nýja að-
ila að koma inn eins og
hugsast getur.“
Vanþróaður orkumarkaður
Morgunblaðið/Hari
Þegjandi samkomulag hefur ríkt á
orkumarkaði að sögn Magnúsar.
Fyrirtækið Íslensk orku-
miðlun hyggst brjóta upp
smásölumarkað rafmagns.
8
Þýsk stjórnvöld munu breyta
reglum um stjórnunarhætti til
að koma skikk á svimandi há
laun forstjóra risa-
fyrirtækja.
Vilja koma bönd-
um á ofurlaun
10
Þó svo að nær allir aðrir hafi
veðjað á rafmagns- og tvinn-
bíla gæti metnaður Toyota á
sviði vetnistækni
gefið þeim forskot.
LEX: Vetnið gæti
reynst Toyota vel
11