Morgunblaðið - 08.11.2018, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 08.11.2018, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 7 Fyrirtækið AkvaFuture, sem hyggur á tuttugu þúsund tonna laxeldi í lokuðum sjókvíum í Eyja- firði, hefur fengið staðfestingu Skipulagsstofnunar á að tillaga fyr- irtækisins að matsáætlun sé góð og gild. „Við erum því byrjuð á umhverf- ismati, en það tekur tíma,“ segir Rögnvaldur Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri AkvaFuture, í sam- tali við 200 mílur. Algengasta aðferðin sem viðmið „Við erum með straum- og hita- mæla úti í firðinum á þeim stöðum sem við gerum ráð fyrir að nýta og bíðum nú eftir burðarþolsmati frá Hafrannsóknastofnun sem við bú- umst við að verði klárt í febrúar eða mars á næsta ári.“ AkvaFuture er dótturfélag norska fiskeldisfyrirtækisins Akva- Design AS, sem hannar lokaðar sjókvíar. Systurfyrirtæki þess rek- ur laxeldi í slíkum kvíum í Brønn- øysund í Nordlandfylki. Spurður hvort í burðarþolsmati Hafrann- sóknastofnunar sé tekið tillit til þeirrar staðreyndar að eldið verð- ur í lokuðum kvíum í stað opinna svarar Rögnvaldur neitandi. „Sú er ekki raunin, því miður. Burðarþolið gerir ráð fyrir þeirri aðferð sem algengust er í fiskeldi. Með okkar tækni ættum við nefni- lega að geta nýtt burðarþolið mun betur, það er framleitt meira en sem því nemur án þess að áhrifin á umhverfið verði í sama mæli,“ seg- ir Rögnvaldur. Geti hafið framkvæmdir 2021 „Við tökum upp úrganginn úr kvíunum og ákoman í lífríki fjarð- arins ætti því að vera mun minni en almennt í opnum kerfum. Við eig- um að losna við botnfallið undan kvíunum þó að léttara efni geti enn sloppið út. Samt sem áður erum við að vinna að því að ná meiri úrgangi upp, til dæmis með því að rækta beltisþara eða kræklinga í kringum kvíarnar.“ Rögnvaldur segist vonast til að geta fyrst látið seiði út í kvíarnar árið 2021. „Ég reikna með því að þá getum við hafið framkvæmdir. Við verðum væntanlega búin með umhverfismatið næsta haust, eftir að hafa þá verið í því ferli í rúmt ár, og þá eigum við ef til vill að vera tilbúin með frummatsskýrslu fyrir jólin á næsta ári. Sú skýrsla á þá eftir að fara þennan klassíska hring, í Skipulagsstofnun og þaðan til umfjöllunar stofnana og hags- munaaðila, og svo framvegis.“ Fyrst aflað leyfa í Noregi Á vef Skipulagsstofnunar er fjallað um ferli leyfisveitinga til fiskeldis og segir Rögnvaldur að þar sé gert ráð fyrir um einu og hálfu ári í ferlið. „En við erum þegar búin að vera að þessu í rúmt ár og ekki komin lengra,“ segir hann og bætir við að munur sé á Íslandi og Noregi í þessum efnum, þar sem þar í landi sé fyrst aflað leyfa og síðan kannað hvar hentugt svæði finnist fyrir fiskeldið. Þá hafi sveitarfélögin skipulags- rétt á hafsvæðum sínum, en á Ís- landi fer ríkisvaldið með skipulags- vald utan svokallaðra netalaga, sem eru 115 metra frá stór- straumsfjöruborði. AkvaFuture hefur einnig beint sjónum að Ísafjarðardjúpi, þar sem til skoðunar er að hefja eldi í Álfta- firði, Seyðisfirði, Skötufirði og Mjóafirði. „Við höfum lagt fram tillögu að matsáætlun fyrir allt að sex þús- und tonna fiskeldi í Djúpinu og höfum gefið almenningi tækifæri á að segja álit sitt á þeim áformum með auglýsingu. Nú er boltinn hjá Skipulagsstofnun og næsta skref er að fá þeirra álit, áður en áætl- unin getur svo farið í umsagnir hjá Hafrannsóknastofnun, Fiskistofu, Umhverfisstofnun og Matvæla- stofnun, auk viðkomandi sveitar- félaga.“ Þau áform eru því talsvert skemmra á veg komin en áætlanir um laxeldi í Eyjafirði. „Við erum bara í fyrsta skrefinu í Djúpinu á meðan segja má að í Eyjafirðinum séum við búin að taka um tíu skref af tíu þúsund.“ Hafa stigið tíu skref af tíu þúsund Skúli Halldórsson sh@mbl.is Í burðarþolsmati Hafrann- sóknastofnunar fyrir fisk- eldi í Eyjafirði verður ekki gert ráð fyrir að þar verði eldi í lokuðum sjókvíum, þrátt fyrir að áform um slíkt eldi liggi fyrir. Norska systurfyrirtækið AkvaFuture AS rekur lokaðar sjókvíar í Nordlandfylki og hefur fengist af því góð reynsla. Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma FYRIR SJÁVARÚTVEGINN R R Marás ehf. - Miðhrauni 13 - 210 Garðabæ - Sími 555-6444 - www.maras.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.