Morgunblaðið - 08.11.2018, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 7
Fyrirtækið AkvaFuture, sem
hyggur á tuttugu þúsund tonna
laxeldi í lokuðum sjókvíum í Eyja-
firði, hefur fengið staðfestingu
Skipulagsstofnunar á að tillaga fyr-
irtækisins að matsáætlun sé góð og
gild.
„Við erum því byrjuð á umhverf-
ismati, en það tekur tíma,“ segir
Rögnvaldur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri AkvaFuture, í sam-
tali við 200 mílur.
Algengasta aðferðin
sem viðmið
„Við erum með straum- og hita-
mæla úti í firðinum á þeim stöðum
sem við gerum ráð fyrir að nýta og
bíðum nú eftir burðarþolsmati frá
Hafrannsóknastofnun sem við bú-
umst við að verði klárt í febrúar
eða mars á næsta ári.“
AkvaFuture er dótturfélag
norska fiskeldisfyrirtækisins Akva-
Design AS, sem hannar lokaðar
sjókvíar. Systurfyrirtæki þess rek-
ur laxeldi í slíkum kvíum í Brønn-
øysund í Nordlandfylki. Spurður
hvort í burðarþolsmati Hafrann-
sóknastofnunar sé tekið tillit til
þeirrar staðreyndar að eldið verð-
ur í lokuðum kvíum í stað opinna
svarar Rögnvaldur neitandi.
„Sú er ekki raunin, því miður.
Burðarþolið gerir ráð fyrir þeirri
aðferð sem algengust er í fiskeldi.
Með okkar tækni ættum við nefni-
lega að geta nýtt burðarþolið mun
betur, það er framleitt meira en
sem því nemur án þess að áhrifin á
umhverfið verði í sama mæli,“ seg-
ir Rögnvaldur.
Geti hafið framkvæmdir 2021
„Við tökum upp úrganginn úr
kvíunum og ákoman í lífríki fjarð-
arins ætti því að vera mun minni en
almennt í opnum kerfum. Við eig-
um að losna við botnfallið undan
kvíunum þó að léttara efni geti enn
sloppið út. Samt sem áður erum við
að vinna að því að ná meiri úrgangi
upp, til dæmis með því að rækta
beltisþara eða kræklinga í kringum
kvíarnar.“
Rögnvaldur segist vonast til að
geta fyrst látið seiði út í kvíarnar
árið 2021. „Ég reikna með því að
þá getum við hafið framkvæmdir.
Við verðum væntanlega búin með
umhverfismatið næsta haust, eftir
að hafa þá verið í því ferli í rúmt
ár, og þá eigum við ef til vill að
vera tilbúin með frummatsskýrslu
fyrir jólin á næsta ári. Sú skýrsla á
þá eftir að fara þennan klassíska
hring, í Skipulagsstofnun og þaðan
til umfjöllunar stofnana og hags-
munaaðila, og svo framvegis.“
Fyrst aflað leyfa í Noregi
Á vef Skipulagsstofnunar er
fjallað um ferli leyfisveitinga til
fiskeldis og segir Rögnvaldur að
þar sé gert ráð fyrir um einu og
hálfu ári í ferlið.
„En við erum þegar búin að vera
að þessu í rúmt ár og ekki komin
lengra,“ segir hann og bætir við að
munur sé á Íslandi og Noregi í
þessum efnum, þar sem þar í landi
sé fyrst aflað leyfa og síðan kannað
hvar hentugt svæði finnist fyrir
fiskeldið.
Þá hafi sveitarfélögin skipulags-
rétt á hafsvæðum sínum, en á Ís-
landi fer ríkisvaldið með skipulags-
vald utan svokallaðra netalaga,
sem eru 115 metra frá stór-
straumsfjöruborði.
AkvaFuture hefur einnig beint
sjónum að Ísafjarðardjúpi, þar sem
til skoðunar er að hefja eldi í Álfta-
firði, Seyðisfirði, Skötufirði og
Mjóafirði.
„Við höfum lagt fram tillögu að
matsáætlun fyrir allt að sex þús-
und tonna fiskeldi í Djúpinu og
höfum gefið almenningi tækifæri á
að segja álit sitt á þeim áformum
með auglýsingu. Nú er boltinn hjá
Skipulagsstofnun og næsta skref
er að fá þeirra álit, áður en áætl-
unin getur svo farið í umsagnir hjá
Hafrannsóknastofnun, Fiskistofu,
Umhverfisstofnun og Matvæla-
stofnun, auk viðkomandi sveitar-
félaga.“
Þau áform eru því talsvert
skemmra á veg komin en áætlanir
um laxeldi í Eyjafirði.
„Við erum bara í fyrsta skrefinu
í Djúpinu á meðan segja má að í
Eyjafirðinum séum við búin að
taka um tíu skref af tíu þúsund.“
Hafa stigið tíu skref af tíu þúsund
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Í burðarþolsmati Hafrann-
sóknastofnunar fyrir fisk-
eldi í Eyjafirði verður ekki
gert ráð fyrir að þar verði
eldi í lokuðum sjókvíum,
þrátt fyrir að áform um slíkt
eldi liggi fyrir.
Norska systurfyrirtækið AkvaFuture AS rekur lokaðar sjókvíar í Nordlandfylki og hefur fengist af því góð reynsla.
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
FYRIR SJÁVARÚTVEGINN
R
R
Marás ehf. - Miðhrauni 13 - 210 Garðabæ - Sími 555-6444 - www.maras.is