Morgunblaðið - 08.11.2018, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 11FRÉTTIR
Af síðum
Það væri skiljanlegt ef vetnis-efnarafalar þættu feimnismál hjá
Toyota. Japanski bílarisinn hefur fjáfest fyrir háar upphæðir í þess-
ari tækni sem hér um bil öllum öðrum þykir einskis virði. Toyota
Mirai-vetnisbíllinn kostar í kringum 57.000 dali (um 6,9 milljónir
króna), vandasamt er að fylla á honum tankinn og hann hefur ekki
selst nema í 7.000 eintökum. Elon Musk gerir grín að tækninni og
talar um „bjánarafala“. Stjórnendur Toyota hafa svarað fyrir sig í af-
sökunartón.
En Toyota heldur samt áfram að hampa vetnistækninni, þó hún
virðist jafn gagnslítil og Mirai sem er 500 km frá næstu vetnisstöð.
Með hálfsársuppgjöri fyrirtækisins fylgdi listi yfir næstu skref í átt
að minni losun koltvísýrings og voru vetnisknúin ökutæki í fyrsta,
öðru og þriðja sæti listans.
Ekki að furða að markaðurinn virðist ekki hafa veitt þessu mikla
athygli, heldur einblíndu fjárfestar á hagnaðinn af sölu bensín- og
tvinnbílanna sem neytendur hafa greinilega mestan áhuga á. Hagn-
aður fyrir skatta hækkaði um fjórðung, upp í 1.500 milljarða jena (14
milljarða dala). Samsteypan hækkaði hagnaðarspá sína fyrir árið um
8,5% upp í 2.300 milljarða jena í takt við lægra gengi jensins. Hluta-
bréfaverð Toyota hækkaði við tíðindin.
Til skemmri tíma litið mun fyrirtækið leggja áherslu á að reyna að
auka þann agnarsmáa hagnað sem er af sölu Toyota-bifreiða í
Bandaríkjunum, þar sem sportjeppar frá öðrum framleiðendum hafa
verið að sölsa undir sig markaðinn. Að framleiða bíla með efnaraföl-
um, sem neytendur hafa sáralítinn áhuga á, er ekki efst á blaði.
En til lengri tíma litið gætu vetnisbifreiðarnar gefið Toyota for-
skot í baráttunni við að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Er eink-
um þrennt sem veldur því að vetnistæknin hefur verið afskrifuð sem
agalega sniðug erindisleysa: í flesta vetnis-efnarafala þarf að nota
platínu, sem er dýr málmur. Þá þarf að nota orku til að framleiða
vetnisgas, með aðferðum sem eru ekki skilvirkar. Þá eru vetnis-
dælustöðvar jafnvel enn sjaldgæfari en hleðslustöðvar fyrir rafbíla.
En mótrökin eru þau að efnarafalar gætu hentað til að knýja aflrás
stærri bifreiða sem þurfa að aka lengri vegalengdir, og það án þess
að nokkur mengun verði til við sjálfan aksturinn. Tesla 3 er með á
bilinu 355 til 500 km drægi. Stór bíll frá Tesla með fimm manna fjöl-
skyldu og kynstrin öll af farangri myndi ekki geta ekið svo langt á
einni hleðslu. Þeir sem breiða út boðskap rafbílatækninnar trúa því
staðfastlega að hlutfall orkugetu og þyngdar rafhlaðna muni batna
með veldisvexti. En það er öllu sennilegra að framfarir í rafhlöðu-
tækni muni fylgja línulegri kúrfu eða vera rykkjóttar.
Allir bílaframleiðendur vinna að þróun tvinn- og rafmagns-
ökutækja, en aðeins Toyota og Honda sinna vetninu af fullri alvöru.
Hlutfallslega er hlutabréfaverð Toyota ögn yfir meðaltali rótgrónu
bílaframleiðendanna. Það er til marks um hversu stórt og skilvirkt
fyrirtækið er. Að eiga efnarafal uppi í erminni gæti komið sér
vel.
LEX
Toyota: veðjað á vetnið
Spánski bankinn BBVA hefur, í sam-
vinnu við tvo aðra banka, lokið við af-
greiðslu fyrsta sambankalánsins sem
veitt er með bálkakeðjutækni (e.
blockchain). Ætti þetta að vera vísir
að því hvernig markaðurinn með
sambankalán, sem veltir 4.600 millj-
örðum dala árlega, gæti orðið ein-
faldari og hraðvirkari með því að
nýta sömu tækni og rafmyntir.
Kom snemma í ljós að sambanka-
lán væru ein af þeim vörum fjár-
málageirans sem gætu nýtt bálka-
keðjuna en þau vinnubrögð sem í dag
eru notuð til að úbúa þessi lán eru
bæði óskilvirk og úrelt, t.d. eru skjöl
send með faxi til að koma upplýs-
ingum á milli lánveitenda og lántak-
anda á meðan þeir ganga frá flóknum
lánasamningnum.
Allir með aðgang samtímis
Bálkakeðjan blandar saman
dreifðum gagnasöfnum og dulkóðun
og er sú tækni sem rafmyntir eins og
bitcoin byggjast á. Bankar hafa tekið
bálkakeðjuna í sína þjónustu en með
henni geta margir aðilar haft aðgang
samtímis að stafrænni höfuðbók sem
ekki er hægt að eiga við eftir á. Á
tæknin bæði að hjálpa til að draga úr
kostnaði og flýta fyrir afgreiðslu
mála.
Á þriðjudag notaði BBVA lokað
bálkakeðjukerfi til að útbúa 150
milljóna dala sambankalán fyrir
spænska raforkufyrirtækið Red
Electrica, í samvinnu við japanska
bankann MUFG og bankann BNP
Paribas í Frakklandi. Lögfræðingar
frá Linklaters og Herbert Smith
Freehills, sem veittu ráðgjöf við gerð
samningsins, höfðu líka aðgang að
kerfinu og gátu allir skipst á upplýs-
ingum í rauntíma.
Voru öll gögn tímamerkt til að
sýna nákvæmlega hvenær hver að-
gerð í samningsferlinu átti sér stað,
og þurfti sérsakan notendaaðgang til
að komast í kerfið. Eftir að búið var
að undirrita samninginn fékk hann
þar til gert auðkenni sem skráð var í
Ethereum-bálkakeðjunni.
Spara tíma og umstang
BBVA segir að bálkakeðjutækni
bankans, sem er enn á tilraunastigi,
flýti mikið fyrir frágangi sambanka-
lána svo að í stað um það bil tveggja
vikna tekur ferlið einn eða tvo daga.
Undirritun lána og frágangur skjala,
sem alla jafna taka nokkrar klukku-
stundir, tóku ekki nema nokkrar
mínútur.
Auk þess að spara tíma mun þetta
hafa í för með sér „verulegan sparn-
að í innri kostnaði“ fyrir viðskipta-
vini, að því er Ricardo Laseica, yfir-
maður alþjóðafjármálaþjónustu
BBVA, tjáði FT. „Allt er skráð í kerf-
ið með sjálfvirkum hætti sem er gott
fyrir utanumhald og rekstrarkostnað
bankans.“
Laseica segir að BBVA hyggi á
frekari tilraunir á næstu mánuðum
og bálkakeðjan verði notuð til að út-
búa „fimm eða sex“ sambankalán til
viðbótar.
„Við bjóðum upp á þessa þjónustu
í samstarfi við aðra banka … Tæknin
er ekki bara fyrir BBVA og við lítum
svo á að á næstu stigum séum við í
reynd að smíða nýja innviði fyrir
markaðinn sem muni verða öllum til
hagsbóta.“
Fjártæknifélagið Finastra er einn-
ig að smíða sambankalánahugbúnað í
samvinnu við breska bankann Nat-
West, og nýtir til þess Corda-
bálkakeðjuna. Stendur til að það
kerfi verði tekið í notkun 17. nóv-
ember. Fyrr á þessu ári var BBVA
fyrsti bankinn til að gefa út fyr-
irtækjalán með bálkakeðjutækni.
Stærsta bálkakeðjuverkefni
bankageirans er aftur á móti Inter-
bank Information Network, þar sem
75 bankar – með JPMorgan, Royal
Bank of Canada og ANZ í broddi
fylkingar – nota bálkakeðju til að
halda utan um greiðslur á milli
banka.
Eftir Lauru Noonan í Charlotte
Stórir bankar hafa tekið
bálkakeðjuna í sína þjón-
ustu og virðist hún geta
stytt afgreiðslufrest og
einfaldað verklag til muna
við stórar lánveitingar.
Lánasamningar sem áður
gat tekið tvær vikur að
ljúka við, og voru sendir á
milli staða með faxtækj-
um, eru núna klárir á ein-
um eða tveimur dögum.
AFP
BBVA mun útbúa nokkur sambanka-bálkakeðjulán til viðbótar á meðan tilraunir með þessa nýju tækni standa yfir.
Fyrsta sambankalánið
gert með bálkakeðju
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell keramik hitarar
Kalt? Hitaðu uppmeðHoneywell