Morgunblaðið - 08.11.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.11.2018, Blaðsíða 16
VIÐSKIPTA Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTI Á MBL.IS Icelandair kaupir WOW air Skúli ávarpaði starfsfólk WOW air „Þetta er því augljósasta lend ... Búið að vera of ódýrt að fljúga Söluverðið 2,18 milljarðar Mest lesið í vikunni INNHERJI SKOÐUN Hagnaður LDX19 ehf., sem á og rekur Lindex-tískuvöruversl- anirnar hér á landi, nam rúmum 50 milljónum króna á síðasta ári. Það er þrefalt minni hagnaður en árið á undan þegar félagið hagn- aðist um 165 milljónir króna. Tekjur félagsins stóðu nánast í stað á milli ára, en þær voru 1,4 milljarðar árið 2017 en 1.450 millj- ónir árið á undan. Eignir félagsins nema 760 milljónum króna, og bókfært eigið fé í árslok 2017 var rúmar 170 milljónir króna. Eig- infjárhlutfall félagsins er 22%. Albert Þór Magnússon, sem á og rekur Lindex á Íslandi ásamt eiginkonu sinni, Lóu Dagbjörtu Kristjánsdóttur, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að þetta verði að teljast nokkuð góður árangur miðað við verulega breyttar mark- aðsaðstæður, en eins og kunnugt er opnaði tískuvörurisinn H&M verslanir hér á landi á síðasta ári. „Við erum að aðlagast nýju um- hverfi með nýjum áskorunum og hlökkum mikið til þess sem fram- tíðin ber í skauti sér. Við fjölg- uðum verslunum og höfum nú lækkað verð fjórum sinnum, um samtals 27%, frá ársbyrjun 2016. Því erum við glöð með að geta haldið rekstrartekjum nánast óbreyttum á milli ára,“ segir Al- bert Þór. Móðurfélagið hagnast Albert nefnir einnig að gang- urinn sé góður hjá móðurfélaginu, en Lindex-samsteypan kynnti á dögunum afkomu sína á öðrum ársfjórðungi. Rekstrarhagnaður jókst þá um 56% frá fyrra ári og var jafnvirði 2,6 milljarða íslenskra króna. 100 manns starfa að jafnaði hjá Lindex. Albert segir að áskoranir felist í hækkun launakostnaðar, en hann jókst um 16,5% milli 2016 og 2017. Fjórar verðlækkanir á þremur árum Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Lindex á Íslandi hefur lækkað verð fjórum sinn- um, eða um 27%, frá 2016. Góður gangur er hjá sænska móðurfélaginu. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Rekstur Icelandair og WOW hef-ur valdið verulegum titringi í samfélaginu undanfarnar vikur. Er eins og kaldur sviti spretti fram hjá fólki ef neikvæðar fréttir berast af rekstri flugfélaganna enda hag- kerfið mjög háð því að flug- samgöngur gangi hikstalaust fyrir sig. En það er ekki æskilegt að þjóðineigi svona mikið undir rekstri tveggja flugfélaga, sem núna eru reyndar gengin í eina sæng. Betra væri ef að fjöldi félaga tengdi Ísland við umheiminn, svo að ekki færi allt á annan endann ef eitt þeirra ætti í erfiðleikum. Hjá Samgöngustofu fengust þærupplýsingar að íslenski flug- markaðurinn sé í sjálfu sér galopinn. Ekkert banni t.d. erlendum flug- félögum að nota Keflavík sem stoppistöð á leið yfir hafið, og reka sams konar „hub-and-spoke“ kerfi og Icelandair og WOW hafa gert. Kannski er rétt að spyrja hversvegna erlend flugfélög hafa ekki gert einmitt þetta. Mætti halda að félli vel að rekstramódeli evr- ópskra og bandarískra lágfargjalda- flugfélaga að hafa bækistöð í KEF. Skyldi það vera krónan eða kjara- málin sem fæla þau frá? Er það kannski plássleysi? Eitt er víst að það væri til mikils að vinna að ryðja hindrununum úr vegi og laða að fleiri félög, svo að ókyrrð hjá einu flugfélagi valdi ekki óróleika í öllu hagkerfinu. Að eiga allt undir einumNú rumskar „risinn“ í Svörtu-loftum og það af værum, árslöngum blundi. Meginvextir Seðlabankans hækka um 0,25% og standa því eftir ákvörðunina í 4,5%. Er þetta fyrsta breytingin á stýrivöxtum frá því í október í fyrra en þá lækkuðu þeir úr 4,5% í 4,25%. Með ákvörðuninni í gær er endi bundinn á tímabil vaxta- lækkana. Peningastefnunefnd bankansbendir á að verðbólguhorfur hafi versnað, m.a. vegna hækk- andi olíuverðs og gengisveikingar krónunnar. Og nefndin lítur held- ur ekki fram hjá þeirri staðreynd að stórkarlalegar yfirlýsingar og vopnaglamur á vinnumarkaði hafa haft neikvæð áhrif á hagkerfið og verðbólguvæntingar markaðs- aðila. Og nú þegar nefndin er vökn-uð virðist það vera upp við vondan draum. Hún hnyklar vöðvana framan í þá sem spriklað hafa meðan á blundinum stóð og segist bæði hafa „vilja“ og „tæki“ til að halda verðbólgunni niðri til lengri tíma litið. Ekki er ljóst af yfirlýsingu nefndarinnar hvort hún sé með þessum orðum að sannfæra sjálfa sig eða þá sem hún telur sig tala til. En nefndin virðist þess þó um-komin að viðurkenna, hvort sem það er fyrir sjálfri sér eða öðrum, að hertar aðgerðir í vaxta- ákvörðunum munu koma niður á atvinnulífinu og gera því erfiðara um vik að tryggja fólki atvinnu. Nefndin varpar hins vegar ábyrgðinni á hinum hertu aðgerð- um á tvo aðila; fjárveitingar- valdið, sem ræður útþenslu ríkis- báknsins, og svo viðsemjendur í komandi kjaraviðræðum. Nefndin segir hreint út að það sé í hönd- um þess fólks „hversu mikill fórnarkostnaður verður í lægra atvinnustigi“. Viðbúnir vaxtaverkir Brottfarir erlendra far- þega frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll í október voru um 200 þúsund talsins. Aukning frá Bandaríkjunum 1 2 3 4 5 SETTU STARFSFÓLKIÐ Í BESTA SÆTIÐ RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.