Morgunblaðið - 19.11.2018, Blaðsíða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2018
Fórnarlamba umferðarslysa minnst Minningarathöfn um þá sem hafa látið lífið í umferðarslysum fór fram við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í gær. Slíkar athafnir voru víða
um heim að tilhlutan Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember minningu fórnarlamba umferðarslysa. Dag hvern deyja um 4.000 manns í umferðarslysum í heiminum.
Hari
Vikurnar í aðdrag-
anda jóla eru upp-
skeruhátíð á bóka-
markaði hérlendis og
kennir þar nú eins og
jafnan áður margra
grasa. Í liðinni viku
kom út hjá Vöku-
Helgafelli undir merki
Forlagsins mikið rit
sem ber heitið Flóra
Íslands – Blómplöntur
og byrkningar, alls 742 blaðsíður í
afar stóru broti. Höfundar eru
grasafræðingarnir Hörður Krist-
insson og Þóra Ellen Þórhalls-
dóttir ásamt með myndlistarmann-
inum Jóni Baldri Hlíðberg sem
skreytir ritið með vatnslitateikn-
ingum, þar á meðal eru myndir af
öllum þekktum innlendum æð-
plöntum og fylgja útbreiðslukort
hverri tegund. Samvinna var höfð
við Náttúrufræðistofnun Íslands
um verkið og Hið íslenska nátt-
úrufræðifélag, sem stóð að 3. út-
gáfu Flóru Íslands 1948, gaf nú
heimild til notkunar nafnsins. Það
var hátíðleg stemmning á fjöl-
mennri útkomuathöfn þessarar
bókar, sem gleðja mun fjölmarga
framvegis, enda er hún fróð-
leiksbrunnur sem svala mun for-
vitni, vonandi ekki síst æskufólks.
Frá Jóni lærða og
Eggert til nútímans
Hálf fjórða öld er liðin frá því
Jón lærði Guðmundsson tók saman
ritið Um nokkrar
grasanáttúrur sem
mun vera það fyrsta
skrifað á íslensku um
plöntur, einkum til
lækninga, þar á meðal
eru nefndar um 40
villtar tegundir hér-
lendis. Skömmu áður
hafði Gísli Oddsson
biskup birt lista yfir
íslenskar plöntur í riti
sínu á latínu Um und-
ur Íslands. Röskri öld
síðar bætti Eggert
Ólafsson um betur í Ferðabók
sinni og Bjarna Pálssonar, þar sem
við sögu koma um 150 tegundir á
dreif í textanum, en nokkrar fleiri
eru nefndar í dagbókum þeirra.
Mágur Eggerts, Björn Halldórsson
í Sauðlauksdal, tók saman ritið
Grasnytjar, gefið út 1783, og koma
þar fyrir nöfn um 190 tegunda, þar
af eru 140 blómplöntur og byrkn-
ingar. Þáttaskil urðu röskri öld
síðar með 1. útgáfu af Flóru Ís-
lands árið 1901 eftir Stefán Stef-
ánsson skólameistara, en hún
byggðist á um 12 ára rannsóknum
hans á innlendu gróðurríki. Rit
hans var um margt frumraun, m.a.
um nafngiftir. Í formála sagði
Stefán m.a.: „Bæði meðal alþýðu
og eins í íslenskum grasaritum er
hinn mesti ruglingur á plöntunöfn-
unum, sama plantan nefnd mörg-
um nöfnum, og sama nafnið haft á
mörgum, oft fjarskyldum teg-
undum ... Jeg hef reynt að greiða
úr öllu þessu eftir bestu föngum.“
Mörgum ónefndum tegundum gaf
Stefán íslenskt heiti og bókinni
fylgdu ítarlegir greiningarlyklar,
en nú hafa myndir af tegundunum
leyst þá af hólmi. Stefán féll frá
1921 og hafði þá að mestu lokið við
handrit sitt að 2. útgáfu Flóru Ís-
lands, sem kom út 1924. Erfingjar
hans afhentu Hinu íslenska nátt-
úrufræðifélagi árið 1942 það sem
eftir var af upplagi bókarinnar
sem og útgáfurétt. Árið 1945 kom
út ritið Íslenzkar jurtir eftir Áskel
Löwe með greiningarlyklum og
teikningum af flestum tegund-
unum.
Gróðurrannsóknir
eftirstríðsáranna
Þriðja útgáfa Flóru Íslands
„aukin“ kom út árið 1948 undir
höfundarnafni frumkvöðulsins
Stefáns, en Steindór Steindórsson
menntaskólakennari á Akureyri
bjó verkið til prentunar. Steindór
var um áratugi mikilvirkasti grasa-
fræðingur landsins og lýsti m.a.
gróðurfélögum plantna í aðdrag-
anda vistfræðirannsókna. Bæði
sem kennari, en þó einkum með
rannsóknum sínum hafði hann
hvetjandi áhrif. Það er varla til-
viljun að úr hópi nemenda hans við
MA spruttu náttúrufræðingar eins
og Eyþór Einarsson, Guðmundur
Eggertsson, Helgi Hallgrímsson
og Hörður Kristinsson. Sá síðast-
nefndi er löngu kunnur sem höf-
undur handbóka um háplöntur og
fléttur og hefur meira en nokkur
annar dregið saman upplýsingar
um útbreiðslu plantna hérlendis.
Nú birtist hann okkur sem texta-
höfundur nýrrar Flóru Íslands
ásamt með plöntuvistfræðingnum
Þóru Ellen. Hún eins og fleiri öfl-
ugir liðsmenn fræðanna óx upp
sunnan heiða. Þaðan er líka sprott-
inn Ágúst H. Bjarnason sem í
haust sendi frá sér fallega hand-
bók um mosa, en hann hafði þegar
árið 1983 gefið út Íslenska flóru
með litmyndum eftir Eggert G.
Pétusson myndlistarmann. Á Nátt-
úrufræðistofnun hafa jafnframt
margir grasafræðingar unnið
brautryðjendastarf síðustu hálfa
öldina, og þaðan barst okkur í
fyrra vistgerðakort af öllu landinu
sem Sigurður H. Magnússon hafði
yfirumsjón með.
Yngri vísindamenn, konur og
karlar, eru óðum að bætast þar í
framlínuna og á átta náttúru-
stofum úti um land starfa nú nýir
vaxtarsprotar með fjölþættan bak-
grunn.
Verndun íslensku
flórunnar meginatriði
Þótt ætta- og tegundalýsingar
taki yfir meginefni þessa mikla rits
er þar á fyrstu 50 síðunum dregið
saman fróðlegt efni almenns eðlis
um plöntur sem lífverur, þróunar-
sögu þeirra, flokkunarkerfi, lík-
amsbyggingu, æxlun, blómaliti og
búsvæði. Þar er einnig að finna
yfirlit um rannsóknasögu íslensku
flórunnar. Ég hygg að þessi fyrri
hluti verksins eigi eftir að gagnast
mörgum og gæti átt erindi í sér-
stakri útgáfu fyrir skóla, jafnt
kennara sem nemendur. Að því
hlýtur líka að koma að þetta stóra
rit birtist okkur í heild í handhægu
formi.
Áratugir eru síðan farið var að
ræða um nýja útgáfu af Flóru Ís-
lands, en lengi vel vantaði frum-
kvæði. Hörður Kristinsson segir að
leiðir flóruhöfundanna þriggja hafi
líklega fyrst legið saman árið 2005
til að ræða um það verk sem nú er
orðið að veruleika. Það fer vel á
því að bókin birtist á fullveldis-
afmæli og vonandi minnir hún sem
flest okkar á þann mikla fjársjóð
sem við eigum í gróðurríki lands-
ins, þrátt fyrir gífurleg afföll á lið-
inni tíð. Vart var vetrarbeit sauð-
fjár aflögð og skurðgrafan tekin að
hægja á sér þegar kynntar voru til
sögunnar viðamiklar hugmyndir
um skógrækt með innfluttum teg-
undum og nú leggja ágengar teg-
undir undir sig holt og móa.
Verndun og gengi íslensku flór-
unnar ætti að vera sjálfgefið meg-
inmarkmið, en til þess að það verði
að veruleika þarf önnur og skýrari
siglingaljós en fylgt hefur verið
hingað til.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Það fer vel á því að
bókin birtist á full-
veldisafmæli og vonandi
minnir hún sem flest
okkar á þann mikla fjár-
sjóð sem við eigum í
gróðurríki landsins.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Ritið Flóra Íslands birtist okkur nú í glæsilegri útgáfu