Morgunblaðið - 19.11.2018, Síða 18

Morgunblaðið - 19.11.2018, Síða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2018 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is alnabaer.is Úrval af gluggatjaldaefnum, þykk, þunn, blúndur, kappar og allt þar á milli. Við erum sérhæfð í gluggatjöldum GLUGGATJÖLD Sjómenn íslenskir erum við og klárir er- um í allt, segir í ljóð- inu. Ég er einn fjög- urra sjómanna sem báru fram tillögu um brottrekstur Heið- veigar Maríu Ein- arsdóttur úr Sjó- mannafélagi Íslands. Það var ill nauðsyn en við vorum klárir í bátana þegar við þurftum að verja heiður félagsins okkar. Heiðveig María hafði logið blygðunarlaust upp á Sjómanna- félagið um að falsa fundargerðir og rífa fundargerðabækur til þess að koma í veg fyrir framboð henn- ar; sakað okkur um klíkuskap og aðra óáran. Högg hennar voru neðan beltis. Hún hafði vegið að heiðri og sæmd sjó- manna. Það var lít- ilmannleg gjörð. Hinn almenni félagsmaður Framganga Heið- veigar Maríu hefur leitt af sér hörmungar og tími til kominn að hin almenni félags- maður láti í sér heyra svo fjölmiðlar hætti að láta glepjast af hennar fráleita málflutningi og tilraunum til að sverta stjórn, trúnaðarmannaráð og starfsfólk félagsins. Ég hef ver- ið til sjós í nokkuð mörg ár og í rúman aldarfjórðung meira og minna greitt mín félagsgjöld til Sjómannafélags Reykjavíkur sem síðar varð Sjómannafélag Íslands. Ég hef starfað á íslenskum flutn- ingaskipum sem og erlendum og er jafn gildur félagsmaður í Sjó- mannafélagi Íslands og þeir sem draga björg í bú úr hafinu í kring- um landið. Frá 2010 hef ég sérstaklega lát- ið mig varða kjör farmanna og ákvað því að færa mig úr andvara- leysi og matsalarröfli og láta til mín taka í þessum efnum. Ég hóf að venja komur mínar á skrifstofu félagsins og kynna mér starfsem- ina. Ég viðraði mínar skoðanir um kjaramál okkar farmanna og hvað við teldum að betur mætti fara ásamt fleiri ábendingum, og viti menn. Það var hlustað! Kjarabætur langt umfram aðra Síðan þá hef ég horft upp á og notið kjarabóta sem hinn almenna verkamann gæti ekki órað fyrir í sínum villtustu draumum. Við höf- um fengið góðan og víðtækan stuðning frá félaginu í öllum mál- um sem hafa brunnið á okkur. Ég þurfti ekki að sækja um vinnu hjá Sjómannafélaginu; ég þurfti ekki að vera í neinum nefndum eða ráð- um; ég þurfti ekki að ata félagið auri og „sjanghæja“ formennsku með lygum og svívirðingum í beinni útsendingu, eins og Heið- veig María hefur reynt svo eft- irminnilega með dyggum stuðningi Gunnars Smára Egilssonar og fé- laga í Sósíalistaflokki Íslands. Lykillinn að þessu er klárlega sá að við tímavinnusjómenn búum að samstöðu sem hefur skilað okkur þeim árangri sem við höfum náð á undanförnum árum. Ég tók með- vitaða ákvörðun um að blanda mér sem minnst í umræðuna á opinber- um vettvangi enda er þar ekkert að finna nema skítkast og persónu- legar árásir sem eiga engan veginn rétt á sér og koma þessu tiltekna máli bara akkúrat ekkert við. En mælirinn er fullur. Meiru áorkað en allir aðrir Staðreyndir málsins eru bara þær að Sjómannafélag Íslands með Jónas Garðarsson í broddi fylk- ingar hefur áorkað meiru en nokk- urt annað verkalýðsfélag hefur gert síðastliðin 30 ár. Ef menn sjá það ekki þá eru þeir staurblindir á rétt og rangt. Það er bara þannig. Rödd félagsmanns í Sjómannafélagi Íslands Eftir Jón Hafstein Ragnarsson Jón Hafsteinn Ragnarsson » Staðreyndir málsins eru bara þær að Sjó- mannafélag Íslands hef- ur áorkað meiru en nokkurt annað verka- lýðsfélag hefur gert síð- astliðin 30 ár. Höfundur er sjómaður jon.midhus@gmail.com Mikið er talað og skrifað um hinn stóra hóp eiturlyfjaneyt- enda á Íslandi og það með réttu. Á milli sex og sjö hundruð eru á biðlista að Vogi. Sjálfsvíg eru einnig mjög algeng á þessari eyju allsnægtanna. Eiga ekki Íslendingar einnig Evrópumet í lyfjaáti? Þetta allt saman liggur fyrir og hefur verið ljóst lengi. Fyrst við Íslendingar eigum Evr- ópumet í lyfjaáti má þá ekki ætla að við eigum einnig Evrópumet í fjölda eiturlyfjaneytenda og jafnvel sjálfsvígum, miðað við höfðatölu auðvitað? Svo má ekki gleyma öðru ofbeldi, t.d. heimilisofbeldi, mis- notkun á börnum og nauðgunum. Það hlýtur að vera eitthvað mikið að, vanlíðan þessarar þjóðar er vel sýnileg og virðist fara versnandi. Allt hefur sínar skýringar, við sjáum afleiðingarnar og það þarf ekki að grafast fyrir um þær, en hver er þá rót vand- ans? Þá spyr maður sig hvort væri ekki skyn- samlegt að gera ná- kvæma samanburð- arkönnun við okkar nánustu grannþjóðir á þessum áðurnefndu flokkum til að hafa það svart á hvítu hvar við Íslendingar stöndum í samanburði við hin Norðurlanda- ríkin og síðan leita að orsökinni. Það er nefnilega ekkert rætt um það á Íslandi hverjar helstu ástæð- urnar fyrir ógæfunni eru. Það er eins og það sé hreinlega á bannlista að grafast obinberlega fyrir um það. Það er nefnilega ekki nóg að hlúa að köldu barninu sem var bjargað úr brunninum ef brunn- urinn verður áfram opinn. Við skul- um reyna að sjá fyrir okkur ís- lenskt þjóðfélag í dag og helstu galla þess. Fyrir það fyrsta er það húsnæð- isvandinn. Sama hvort talað er um eignarhúsnæði eða leiguhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu, en það er svæðið þar sem allt brjálæðið er. Úti á landsbyggðinni er allt annað þjóðfélag. Þar er einfaldleikinn í fyrirrúmi, atvinna nægjanleg, hús- næði á kristilegu verði og eldra húsnæði oft á tíðum mjög ódýrt. Skólar á flestum stigum. Ólíku saman að jafna. En aftur að húsnæðiskreppunni í Reykjavík. Það má segja að hús- næðismál á höfuðborgarsvæðinu séu í og hafi verið haldið í gíslingu braskara sem ráða lögum og lofum, bæði hvað varðar eignarhúsnæði og leiguhúsnæði. Um og eftir hrun fengu ákveðnir aðilar sérstakan af- slátt af húsnæðiskaupum sem Íbúðalánasjóður og bankar voru búnir að leysa til sín frá fólki sem missti sitt húsnæði í kreppunni. Þetta húsnæði hefur verið leigt með okurvöxtum síðan. Í Danmörku eru lög, að mig minnir bæði fyrir íbúðarkaupendur og leigjendur, sem segja að afborg- un af lánum og húsaleiga megi ekki vera hærri en 22% af launum manna fyrir skatt. Okurvextir og verðtrygging á íbúðarlánum eru hryllileg og alveg sérstakt íslensk fyrirbæri, þar sem höfuðstóll hækkar jafnt og þétt þrátt fyrir mánaðarlegar afborganir af lánum. Þekkist hvergi annars staðar á byggðu bóli. Glæpsamlegt fyrir- bæri. Er þetta ekki hinn stóri vandi þessarar þjóðar þar sem stærsta grunnþörf mannsinns, þ.e.a.s. hús- næði, er notuð sem peningaleg mjaltavél braskara með þegjandi samþykki löggjafar- og fram- kvæmdavalds? Það er ekkert til verra fyrir fólk og þá sérstaklega börn en að alast upp við eilífar og daglegar áhyggj- ur og umræður yfir matardisk- unum af peningjaáhyggjum líðandi stundar, hvort það séu til peningur fyrir hinu og þessu eftir að búið er að borga af síhækkandi lánum eða greiða húsaleiguna um næstu mán- aðamót. Eða hvenær þarf að flytja næst ef húsnæði finnst og hvað mun það þá kosta. Eilífir flutn- ingar, nýir skólar og mjög oft vont húsnæði. Svona ástand er mjög alvarlegt, skapar óöryggi og ótta hjá fólki og hjá börnum sem alast upp við svona aðstæður og umræður; þau verða hrædd og óörugg, inn í þau síast taugaveiklað hugarfar og hræðsla sem þau munu þjást af það sem eftir lifir. Það mun mikið lagast í íslensku þjóðfélagi hvað þetta varðar þegar stjórnvöld gera sér grein fyrir því að það þarf að gjörbylta íslensku efnahagslífi. Orsök og afleiðing Eftir Jóhann L. Helgason Jóhann L. Helgason » Stjórnvöld þurfa að gera sér grein fyrir því að það þarf að gjörbylta íslensku efnahagslífi. Höfundur er húsasmíðameistari. Ég fór um daginn ásamt fjölskyldu með unga krakka í innanhússklifur. Þetta er virkilega skemmtilegt fjöl- skyldusport. Mér skilst að svona klifurveggir séu víða um land, meðal annars á Akureyri og hér í Reykja- vík. Klifrið eykur þol, liðleika og styrk, og það er ekkert aldurs- takmark. Byrjendur jafnt sem lengra komnir geta fundið klifur- leiðir við hæfi. Aðalheiður. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Klifur Klifur Reynist leiðin of erfið þegar hátt er komið er í lagi að láta sig falla á gólfið því þar tekur þykk og mjúk dýna á móti manni. Morgunblaðið/Kristinn Bílar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.