Morgunblaðið - 19.11.2018, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 19.11.2018, Qupperneq 24
✝ SigurpállÁrnason fædd- ist í Ketu í Hegra- nesi 25. maí 1917. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Boðaþingi 12. nóv- ember 2018. Foreldrar hans voru Árni Sigurðs- son og Sigurlaug Guðmundsdóttir. Systkini Sigurpáls voru Hólmfríður, Ingimundur og uppeldissystir Gyða Pálsdóttir. Hinn 1. ágúst 1942 giftist Sigurpáll Hildi Kristjánsdóttur frá Skaftárdal, f. 20.2. 1920, d. 2.3. 2004. Sigurpáll og Hildur hófu búskap í Varmahlíð árið 1942. Börn þeirra eru: 1) Krist- ján Páll, maki Sigríður Hall- dórsdóttir. 2) Sigurbjörg, sam- býlismaður Sig- valdi Þorgilsson. 3) Kolbrún, maki Freysteinn Sig- urðsson. 4) Sigur- laug, maki Sigurjón P. Stefánsson. 5) Árni Baldvin, maki Harpa Jóhanns- dóttir. Afabörnin eru 14 og langafa- börnin 23. Sigurpáll starfaði við garð- yrkju, búskap og verslun í Varmahlíð en auk þess sinnti hann ýmsum félagsmálastörfum í Skagafirði. Útför Sigurpáls fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag, 19. nóvember 2018, klukkan 13. Í dag er borinn til grafar mikill „Höbbðingi“, Sigurpáll Árnason frá Lundi. Ég kynntist honum fyrir um þrjátíu og fimm árum þegar ég hóf sambúð með Sigurlaugu yngstu dóttur þeirra hjóna. Þá virkaði hann á mig stútungskall og í raun breyttist hann ekkert síðan þá, varð bara eldri í árum en alltaf fullur áhuga á fram- kvæmdum og athöfnum fjöl- skyldumeðlima. Hann spurði mig alltaf þegar við hittumst „hvurnig“ gengi að selja vélar og allskonar tæki og hvort við hjón værum ekki að fara að smíða, laga eða kaupa eitthvað, við yrðum að hafa eitthvað að gera svo okkur leiddist ekki. Þessi eldmóður fylgdi honum al- veg fram á það síðasta og alltaf var hugsunin skýr og hann fylgdist með því sem fjölskyldan var að gera. Hann var skemmti- lega beinskeyttur í tali og at- hugasemdum, oftar en ekki fékk maður gusuna, ef honum líkaði ekki eitthvað eins og tímabundið vaxtarlag þá hrökk upp úr hon- um „ég held að þú sért víst nógu feitur“. Þessum athugasemdum fylgdi alltaf glott, enda Sigurpáll mikill húmoristi og grallari sem mér líkaði vel við frá fyrsta degi. Eitt sinn þegar þau hjón Sig- urpáll og Hildur voru vel á átt- ræðisaldri ákváðum við hjónin að fara Sprengisand á manna- legum jeppa sem við vorum nýbúin að fá. Þetta þótti Sig- urpáli spennandi frétt og „saggði“ okkur að hann „hebbði“ alltaf ætlað að bjóða Hildi sinni í bíltúr yfir Sprengi- sand og það væri best að fylgja okkur. Eftir nokkrar rökræður var ekkert annað að gera en samþykkja þetta og hafa þau í samfloti. Þetta gekk allt að ósk- um þar til komið var að vatns- mikilli á, þá var stoppað og farið fyrst á jeppanum en vatnið gekk upp fyrir miðjar hurðir. Okkur fannst það fullmikið fyrir Volvo- inn en eftir samningafund ákvað hann að ég myndi draga Vollann yfir og þau sætu í sínum bíl, það kom ekki til greina að snúa við. Þetta blessaðist allt og Sprengi- sandsleið kláruð með stæl. Eftir að Hildur lést hélt Sig- urpáll áfram heimili í Gullsmára í Kópavogi og eldaði og bakaði lummur o.fl. fyrir sig og gesti og „habbði“ gaman af. Fyrir nokkr- um árum tókum við hjónin upp þann sið og allt þar til hann flutti í Boðaþing að mæta á hverjum mánudegi með kinnar, siginn fisk eða saltfisk og borða með honum. Þetta þótti honum algert sælgæti og oft komu langafabörn hans Frosti og Snædís með okkur í fiskiveisl- una og allir „höbbðu“ gaman af, þó aldursmunur væri langleiðina í hundrað ár. Síðustu fiskiveisl- una héldum við honum úti á ver- önd í september sl. Þegar hann hætti að keyra sjálfviljugur um níutíu og átta ára aldurinn vildi hann að ég fengi Volvo-græjuna Sigurpáll Árnason til eignar fyrir allt sem ég „hebbði“ gert fyrir hann og sparað honum við smíðar og allskonar viðgerðir um dagana en sæi jafnframt til þess að bíll- inn yrði í fullkomnu lagi til að fara með sig í sína hinstu för norður í Skagafjörð. Við þetta var staðið og börn og barnabörn hans fengu öll að skiptast á að keyra hann norður á gamla Voll- anum sem hann keypti nýjan 1987. Sigurpáll reyndist mér ákaf- lega traustur og góður tengda- faðir. „Habbðu“ þökk fyrir allt, þinn tengdasonur, Sigurjón P. Stefánsson. Þá er afi búinn að fá ósk sína uppfyllta um að fá að yfirgefa þennan heim. 101 ár er hár aldur og afi var ekki lengur með sama metnað og barnabarnabörnin fyrir hans hönd um að ná enn hærri aldri. Við systkinin eigum margar minningar um afa og ömmu í Lundi enda ólumst við upp svo til í bakgarðinum hjá þeim. Orð sem lýsa afa eru t.d. frum- kvöðull, stórhuga, vinnusamur og kaupmaður fram í fingur- góma. Við eigum minningar úr versluninni Lundi þar sem hægt var að fá Spur og Conga og leika lausum hala á lagernum. Einnig nutum við samvista í heyskap og í öðrum störfum á Íbishóli. Ein minning um afa úr seinni tíð er frá ferðalagi með honum í Finnlandi þar sem hann, þá 89 ára gamall, kom með okkur í vatnsskemmtigarð. Sá gamli gerði sér lítið fyrir og skellti sér bunu í einni rennibrautinni og hafði gaman af. Á heimleið í sömu ferð sá afi Ólaf Stefánsson handboltakappa og fleiri lands- liðsmenn á flugvelli í Svíþjóð. Hann gerði sér lítið fyrir og tók í spaðann á köppunum, en afi hafði mikið dálæti á að horfa á handbolta í sjónvarpinu. Oft þurftu sprengitöflurnar að vera þá við höndina þegar spennan var sem mest. Afi hafði mikið dálæti á að spila bridds og var maður farinn að læra það að koma ekki í heimsókn á miðvikudögum í Gullsmárann þegar spila- mennskan stóð sem hæst. Hann var duglegur að koma í fjölskylduboð og mætti sem dæmi í barnaafmæli síðastliðið sumar, þá orðinn 101 árs gamall. Við kveðjum afa með söknuði en vitum að hann er kominn á góðan stað við hlið ömmu. Hvíl í friði, elsku afi. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Halldór, Hildur og Klara. Elskulegur afi minn, Sigur- páll Árnason, hefur nú kvatt okkur eftir langa og viðburða- ríka ævi. Áður en hann kvaddi gat hann litið stoltur yfir sinn æviveg. Hann fæddist fyrir rúmlega öld í þeim fagra firði Skagafirði og sá staður átti alltaf stóran stað í hjarta hans þó að síðustu árin hafi hann búið í Kópavogi. Hann ólst upp við kröpp kjör eins og algengt var á þessum ár- um og var að mörgu leyti mót- aður af þeim uppvexti. Hann tamdi sér nægjusemi, ráðdeild og reglusemi og var ekkert fyrir það að eyða í óþarfa í sjálfan sig. Þetta átti þó bara við hann sjálfan því hann var örlátur á allan hátt við sína nánustu og var höfðingi heim að sækja. Afi fór í Garðyrkjuskólann sem ungur maður og það átti vel við hann. Í garðyrkjunni komu fram ýmsir góðir eiginleikar hans eins og alúð, þrautseigja og vinnusemi sem skiluðu sér í góðri uppskeru í ræktuninni. Þessir eiginleikar áttu eftir að skila honum ríkulegri uppskeru á fleiri sviðum í lífinu. Hann keypti sér jörð í Skagafirði, Íb- ishól, þar sem hann byggði upp myndarbú með fjölskyldu sinni. Afi fór út í verslunarrekstur í Varmahlíð og það bar einnig ríkulegan ávöxt eins og flestallt sem hann tók sér fyrir hendur. Hann byggði sér reisulegt hús og hann kom að byggingu eins stærsta félagsheimilis á lands- byggðinni, Miðgarði í Varma- hlíð. En stærsta uppskeran í lífi hans voru hans afkomendur sem hann hefur fylgst stoltur með vaxa og dafna. Hann kynntist sínum lífsförunaut, henni Hildi ömmu, sem ungur maður og það reyndist mesta gæfusporið í lífi afa. Þau voru frekar ólíkar per- sónur en bættu hvort annað upp og hjónaband þeirra var gæfu- ríkt. Það var eins og einhver fal- leg ára, blanda af öryggi og væntumþykju, sem umlykti þau heiðurshjón. Afi og amma áttu fimm börn og fjölda barnabarna. Fjölskyldan var dugleg að heim- sækja ömmu og afa og hjálpa til við sveitastörfin og verslunar- reksturinn. Margt borgarbarnið úr fjölskyldunni lærði þar að vinna og taka til hendinni. Minn- isstæðar eru stundir þar sem afi keyrði traktorinn með hey- baggavagninum og voru jafnvel fleiri afkomendur hans á vagn- inum en heybaggar! Oft á tíðum var mikið að gera í bústörfum og versluninni og félagsmálum en ávallt tók afi öllu með miklu jafnaðargeði og virtist ónæmur fyrir álagi. Aldr- ei sá maður hann skipta skapi og aldrei tala illa um aðra. Hann hafði enga sérstaka löngun til að hafa hátt en lét frekar verkin tala. Þegar stund gafst á milli stríða undi hann sér við bóka- lestur og var ágætur brigdespil- ari. Afi var alþýðumaður, í bestu merkingu þess orðs, sem með alúð, þrautseigju og vinnusemi skapaði sér góðan orðstír og naut farsældar í lífinu. Núna er afi farinn á einhvern fallegan stað þar sem amma tekur á móti honum með sitt bjarta bros. Eins og sólin mun skína við Skagafirði, þá munu þau tvö skína bjart í huga fjöl- skyldunnar um ókomna tíð. Guð veri með þér, afi minn. Ólafur Jóhannsson. Elsku afi. Það kom þá að því að þú kveddir okkur. Ég var farinn að halda að þú myndir lifa okkur öll, þú á öðru hundr- aðinu og eldri en sjálft fullveld- ið. Sumrin sem ég var hjá ykkur ömmu þegar ég var á unglings- aldri voru frábær tími og er ég endalaust þakklátur fyrir þau. Fyrir þann tíma voruð þið bara þessi yndislegu afi og amma sem alltaf var gaman að koma til í heimsókn norður. En eftir að hafa verið nokkur sumur með ykkur kynntist maður ykkur betur og áttaði sig einnig á hversu virt og vel liðin þið voruð í samfélaginu. Veit ekki hversu oft maður var stoppaður við bensíndæluna þar sem sveitung- ar dásömuðu ykkur. Eftirminnilegar eru ferðirnar sem þú fékkst okkur barnabörn- in til að fara með til að sækja ull á bæina þar sem við hittum marga kynlega kvisti t.d. í ná- grenni við þar sem þú ólst upp á Hegranesi. Þessar ferðir voru kannski ekki samkvæmt öllum nútíma- umferðaröryggisstöðlum en æv- intýralegar voru þær, sérstak- lega á leiðinni heim. Aðra skemmtilega ferð fórum við á vörubílnum þegar þið amma voruð að byggja húsið í Furulundinum. Þá fórum við á Siglufjörð í einingaverksmiðjuna og á leiðinni sagðir þú okkur sögur af hvernig þú svindlaðir þér fyrstur yfir skarðið nóttina áður en vegurinn var opnaður á sínum tíma. Þegar við komum svo í verk- smiðjuna labbaðir þú inn og sagðir: „Ég er hingað kominn til að sækja húsið mitt.“ Afi var maður lausna. Þegar valið stóð um að byggja skóla eða félagsheimili í Varmahlíð komst þú með lausnina: byggj- um félagsheimili og svo skóla fyrir hagnaðinn af því. Alltaf vissi maður að einhver lausn væri komin þegar þú boð- aðir mann inn á skrifstofu við græna skrifborðið. Hvort sem það var að leiðbeina mér eftir einhverja vitleysu eða leggja til einhver heilræði. Hreinskilinn var hann, eins og við barnabörn- in fengum sennilega öll að kynn- ast, og ekkert að tala í kringum hlutina. Að opna gróðurhús og byrja að selja grænmeti í litlu þorpi snemma á síðustu öld var senni- lega glórulaus hugmynd en þið amma létuð það virka og varst þú farsæll kaupmaður næstu áratugina. Maður spyr sig hvaða snargeggjuðu hugmynd þú hefð- ir fengið ef þú værir ungur mað- ur í dag og að byrja þinn rekst- ur. Alla tíð varstu áhugamaður um viðskipti og þó að þrekið væri búið síðustu dagana og þú óskýr í tali spurðirðu mig hátt og skýrt hvernig gengi með fyr- irtækið. Og auðvitað hvort ég væri ekki örugglega búinn að fá mér Mackintosh-nammi úr skál- inni. Ég mun sakna og minnast afa með hlýhug og er þakklátur fyr- ir þau sterku áhrif sem hann hafði á mitt líf. Í stað þess að vera með frekari langloku um ágæti afa (hægt að halda áfram í heilan bókaflokk) er þessi stutta setning sem ég heyrði á dög- unum sú sem lýsir þér kannski best: „Hann var nú fínn karl hann Palli í Lundi.“ Sigurpáll Jóhannsson. Elsku langafi. Ég á eftir að sakna þín. Þú varst svo ynd- islegur, skemmtilegur karakter og alltaf í stuði. Það var gaman meðan þú lifð- ir en núna ertu loksins kominn til ömmu, ekki af því ég vildi það heldur af því þú vildir það. Varst orðinn svo gamall. Skemmtilegt að borða með þér plokkfiskinn (besti fiskurinn var alltaf hjá þér) sem við Snæ- dís systir fengum hjá þér viku- lega í Gullsmára. Þú spurðir alltaf hvernig gengi í skólanum og vildir vita hvort mér liði ekki vel. Fylgdist með öllu. Gott að fá plokkfiskinn á hvíta diskinn minn í stóra Gullsmára alltaf verður að klára. Þinn dótturdóttursonur, Frosti Freyr. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Þannig hugsa ég til Sigurpáls Árnasonar, bónda og kaup- manns frá Lundi, Varmahlíð, Skagafirði. Á mínu heimili gekk hann undir nafninu afi í Lundi. Haustið 1977 kynntist ég fyrst þeim heiðurshjónum Hildi og Palla í Lundi fyrir alvöru þegar ég flutti rétt tvítug á loft- ið hjá þeim, með barn og mann. Og þarna á loftinu var ég í tæp fjögur ár. Árni sonur þeirra var með herbergi uppi hjá okkur en aldrei man ég eftir neinu veseni eða samskiptaörðugleikum. Allt- af þurftum við samt að fara í gegnum þeirra íbúð til að kom- ast upp til okkar. Það var gest- kvæmt í Lundi enda stunduðu þau hjónin viðskipti, voru með lita nauðsynjabúð, og Sigurpáll að auki með fóðurblöndusölu og ullarmóttöku fyrir bændur. Barnabörnin þeirra voru líka mikið hjá þeim og því fóru mín börn fljótt að kalla þau afa og ömmu. Palli var mjög hrein- skiptinn maður og talaði út um hlutina. Þegar ég átti von á Sig- urlaugu gekk ég mikið í smekk- buxum. Einn daginn kom Palli að máli við mig og spurði hvort ég gæti ekki gengið í einhverju víðara svo þessi bumba blasti ekki svona við öllum. Ég sagði honum að svona væri tískan í dag og þá var málið dautt. Við fluttum í okkar eigin húsnæði sumarið 1981 en stutt var að hlaupa í Lund til „afa og ömmu“ ef eitthvað bjátaði á. Þegar Sigurpáll og Hildur fluttu að Furulundi varð enn styttra á milli okkar og þar fékk ég að leigja aðstöðu fyrir heilsu- gæslumóttöku hjá þeim á jarð- hæðinni. Þarna var Jón Oddur, minn yngri sonur, kominn til sögunar og enn voru barnabörn á sama aldri og hann naut ást- úðar og umhyggju alveg eins og þau. Leið mín lá suður eins og Palla og Hildar. Þau settust að í Gullsmára í Kópavogi en þar var ég starfandi á heilsugæslu og gat nú farið að launa þeim fyrir alla góðvildina þeirra hér áður fyrr. Sumrunum vildu þau samt helst eyða í Skagafirði. Þegar Hildur veiktist og fór í Sunnu- hlíð var Palli þar öllum stundum og man ég hann lesandi fyrir Hildi eða dottandi hjá henni í stólnum. Þau voru alltaf eitt að mér fannst. Eftir að Hildur kvaddi bjó Palli áfram í Gull- smáranum, spilaði sinn brids 3-4 sinnum í viku og fór svo á Vol- vonum að versla í Bónus með 2-3 félaga með sér. Eða út að labba með einhverja nágranna. Palli var duglegur að ferðast til útlanda og varð ég þess heiðurs aðnjótandi að fá hann í fimm- tugsafmælið mitt á Krít, en svo vildi til að leiðir okkar lágu þar saman. Takk Sibbí! Undir það síðasta dvaldi Palli í Boðaþingi við gott atlæti en þráði ekkert heitara en að fá vistaskipti sem fyrst, áður en kollurinn færi að bila. Hundrað og eins árs gamall maður er orðinn saddur lífdaga. Ég náði að kveðja Palla tæpri viku áður en hann kvaddi sjálfur og var hann þá með kollinn algjörlega í lagi, spurði út í ótrúlegustu hluti og var í mjög glettnu skapi. Þannig kýs ég að minnast hans. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum) Sigríður A. Pálmadóttir og börn. Kynni okkar Sigurpáls hófust árið 1985 er við Konni vorum að flytja okkur um set frá Frosta- stöðum. Fyrir tilstilli hans hög- uðu atvikin því þannig, að við urðum þeirra næstu nágrannar. Hann var þá að byggja sitt þriðja hús hér og farið að hægj- ast um fyrir athafnamanninn. Gróðurhúsaræktunin, sauð- fjárbúskapurinn og verslunin voru að baki. Á þeim árum hefði dagurinn oft mátt vera lengri. Nú átti Furulundurinn hug hans allan, nýtt svæði, sem hann hafði gefið Seyluhreppi með því skilyrði að þar yrði íbúðabyggð. Tvö fyrstu húsin risin. Hildur mín, blessuð sé minning hennar, gaf götunni og svæðinu þetta fallega nafn, Furulundur. Sig- urpáll vann að því að hér yrði allt snyrtilegt og fallegt. Það voru forréttindi að eiga þau að og samverustundirnar voru margar og góðar. Þeir vöktuðu 24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2018 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GÍSLÍNA INGIBJÖRG INGÓLFSDÓTTIR, lést á dvalarheimilinu Hrafnistu, Reykjavík, 14. nóvember 2018. Útförin mun fara fram í kyrrþey. Ingólfur Sigurðsson María Erla Másdóttir Hrönn Sigurðardóttir Pulak Cenan Pulak Guðfinnur Sigurðsson Birgit Friis Olesen Dóra Kristín Sigurðardóttir Guðmundur Örn Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn Hugheilar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, afa og langafa, ÓLAFS PÁLS LIND EGILSSONAR, bónda á Hundastapa. Sérstakar þakkir til starfsfólks Brákarhlíðar í Borgarnesi fyrir einstaklega góða umönnun og nærgætni Ólöf Guðrún Guðmundsdóttir Sigurbjörg Ólafsdóttir Guðmundur Ólafsson Hrafnhildur Ólafsdóttir Hanna Kristín Lind Ólafsdóttir tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.