Morgunblaðið - 10.12.2018, Page 1

Morgunblaðið - 10.12.2018, Page 1
M Á N U D A G U R 1 0. D E S E M B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  290. tölublað  106. árgangur  14 dagartil jóla Jólasveinalitabókin er á jolamjolk.is ÍSLAND NOTI RÖDD SÍNA Á ALÞJÓÐA- VETTVANGI NORRÆN DANS- HÁTÍÐ OFT VORU FURÐUFISKAR Í POTTI ÚLFARS ÍSHEIT REYKJAVÍK 26 UPPSKRIFTIR ÚLFARS 12NÍNA BJÖRK Í GENF 6 Hreinar hendur bjarga  Hærra hlutfall spítalasýkinga hér á landi en í nágrannalöndum  Hægt að auka öryggi sjúklinga með því að heilbrigðisstarfsfólk hreinsi hendurnar á sér rétt og vel „Við vitum að hreinar hendur geta hreinlega bjargað mannslífum,“ seg- ir Þórdís Hulda Tómasdóttir, hjúkr- unarfræðingur á sýkingavarnadeild Landspítalans, en hún vinnur ásamt fleirum að nýju átaki í handhreinsun til að draga úr spítalasýkingum og auka þannig öryggi sjúklinga. Ef heilbrigðisstarfsfólk hreinsar hendurnar á sér ekki nógu vel aukast líkur á spítalasýkingum um 20-40%. Sýkingar geta orðið til þess að sjúk- lingar veikjast meira og sjúkrahús- dvöl þeirra lengist en einnig eru dæmi um að sjúklingar deyi af þess- um ástæðum. Mikilvægt þegar álag er mikið Á þessu ári fá 6,2% innlagðra sjúk- linga spítalasýkingar en sambæri- legt hlutfall á sjúkrahúsum í þeim löndum sem Íslendingar bera sig helst saman við er um 5%. Hlutfallið hér hefur aðeins versnað á milli ára en batnað þegar litið er lengra aftur. Mikið álag er á starfsfólki spítal- ans, meðal annars út af skorti á starfsfólki. Þórdís segir ekki síður mikilvægt að fólk muni eftir að hreinsa hendurnar á sér við þessar aðstæður en þegar álag er minna. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Meira en fjórir sjúklingar sýkjast á Landspítalanum á hverjum einasta degi ársins. Þótt markvisst hafi verið unnið að úrbótum, meðal annars með því að minna heilbrigðisstarfsfólk á að hreinsa hendurnar á sér rétt og vel, eru spítalasýkingar hlutfallslega algengari en nágrannalöndum. MFá sjúklinga í lið með sér »10 Margir gerðu sér glaðan dag og mættu í Hamra- hlíð í Úlfarsfelli við Vesturlandsveg í gær, þegar jólaskógurinn þar var opnaður. Sumir komu til þess að sækja sér jólatré í skóginn, þar sem nikkuspil ómaði, kór Varmárskóla í Mosfellsbæ söng og jólasveinar sprelluðu. Einnig mættu þau Þorri og Þura, álfar sem ekki eru af þessum heimi. Opið verður í hinum sígræna skógi í Hamrahlíð allar helgar fram til jóla. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jólagleði í sígrænum skógi í Hamrahlíð  Gera þarf ítarlegri kröfur um áhrif bygginga á vind hér á landi, einnig vantar frekari eftirfylgni með núverandi kröfum, að mati Harðar Páls Steinarssonar verkfræðings. „Það er tiltölulega auðvelt og hag- kvæmt að skoða áhrif bygginga og skipulag hverfa á staðbundið veður- far með tölvulíkönum. Það þarf helst skýrari stefnu og ítarlegri kröfur um hvaða gögnum þurfi að skila til yfirvalda, hvaða markmið þurfi að uppfylla og hafa þarf eftirlit með að markmiðunum sé náð,“ sagði Hörð- ur. Hann hefur starfað í Bretlandi undanfarin tvö og hálft ár við vind- greiningar á byggingum. Þá eru skoðuð áhrif sem samspil vinds og bygginga getur haft fyrir gangandi vegfarendur. Til að greina áhrifin er aðallega notuð CFD (Computational Fluid Dynamics) tölvuhermun eða prófanir í vindgöngum. »16 Gera þarf ítarlegri kröfur um áhrif bygginga á vind „Drullan, tjaran og saltið slettist upp á stikurnar og þær verða mjög skítugar á þessum árstíma,“ segir Jóhann Bjarni Skúlason, yfirverk- stjóri hjá Vegagerðinni. Vegfarendur hafa lýst yfir áhyggjum af litlu endurskini af vegstikum á fjölförnum vegum á borð við Hellisheiði, Sandskeið og Svínahraun. Ástandið mun vera viðlíka á þjóðvegi 1 milli Reykjavík- ur og Akureyrar. Þetta getur haft í för með sér hættu fyrir vegfar- endur í myrkri. Jóhann segir að á sínu svæði hafi þrisvar sinnum í haust verið farið með stikuþvottavél á vegi en ekki sé nægur mannskapur til að hafa undan. „Þetta verður bara skítugt eins og skot eftir umferðina og veðráttuna.“ Hann telur ástandið verra nú en oft áður en segir að það lagist jafn- an þegar snjórinn komi. »9 Lýsa áhyggjum af endur- skinslausum vegstikum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hellisheiði Lítið endurskin er af vegstikum í myrkri vegna óhreininda.  Útlit er fyrir að næsta ár verði gott í ferðaþjónustunni. Fram- kvæmdastjóri ferðaskrifstofu segir að bókunartímabilið fyrir árið 2019 fari betur af stað en það gerði fyrir árið 2018. „Það er engin ástæða til að mála skrattann á veginn,“ segir Sævar Skaptason, framkvæmda- stjóri Hey Iceland. Sævar tekur fram að næsta ár verði ekki jafn gott og árin 2015 og 2016 sem voru einstaklega góð í ferðaþjónustunni. Hann segir að vís- bendingar séu um að eftirspurnin frá Evrópu sem dróst saman á þessu ári sé farin að glæðast í kjölfarið á veikingu íslensku krónunnar. »4 Veiking krónu örvar ferðaþjónustuna Ferðamenn Reynt að rata um Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.