Morgunblaðið - 10.12.2018, Qupperneq 2
Morgunblaðið/Hari
Úrval Þungi bókaflóðs er mikill.
Um 80% allra þeirra 614 bóka sem
getið er í Bókatíðindum Félags ís-
lenskra bókaútgefenda 2018 eru
prentuð erlendis. Þetta kemur fram
í tilkynningu frá Bókasambandi Ís-
lands. Titlar prentaðir innanlands
eru 124 og fækkar um 78 frá fyrra
ári. Eru það um 20% af heildinni en í
fyrra var hlutfallið um þriðjungur.
Bækur prentaðar í Evrópu í ár eru
412 eða 67% sem er mikil aukning
milli ára. Tæp 13%, eða 78 titlar, eru
Asíuprent.
Misjafnt er milli bókaflokka í
hvaða mæli bækur eru prentaðar er-
lendis. Þannig eru um 40% fræði-
bóka og rita almenns efnis prentuð á
Íslandi. Stærstur hluti skáldverka,
sagnfræðirita, handbóka og slíks er
prentaður í útlöndum, eða ríflega
80%. Þá fara um 93% barnabóka í
prent í útlöndum.
Um 80%
eru prent-
uð erlendis
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2018
595 1000
Tenerife um jólin
20. desember til 2. janúar
* báðar leiðir með tösku og handfarangri
** gist á Suites at the Hollywood Mirageaaaa
Flug & gisting
199.995
**Flugsæti
90.000
*
VERTU ÚTI UM HÁTÍÐIRNAR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fleiri mál fari til siðanefndar
Siðareglur Alþingis fortakslausar um hvers konar hegðun sé ekki ásættanleg
Guðrún Erlingsdótttir
gr@mbl.is
„Ég hef ekkert annað varðandi mál Ágústs Ólafs
Ágústssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, en
bréf þar sem hann óskar leyfis frá þingstörfum í
tvo mánuði af persónulegum aðstæðum,“ segir
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Ágúst Ólafur greindi frá því á föstudagskvöld
að hann hefði verið áminntur af trúnaðarnefnd
Samfylkingarinnar nýlega vegna óviðeigandi
framkomu sinnar gagnvart konu, eins og hann
orðar það í fésbókarfærslu sinni. Hann hefði í
kjölfarið óskað eftir tveggja mánaða launalausu
leyfi og ætli að leita faglegrar ráðgjafar.
Steingrímur segir að gerðar hafi verið tvíþætt-
ar breytingar á siðareglum alþingismanna undir
lok þings í vor í framhaldi af MeToo-atburðunum
í vetur og umræðu í kjölfarið. Það hafi verið
skerpt á orðalagi og tekið fortakslaust af skarið
um það hvers konar hegðun væri ekki ásættan-
leg. Steingrímur segir forsætisnefnd hvorki hafa
frumkvæðisrétt né frumkvæðisskyldu og hún
taki einungis við erindum sem til hennar séu
send.
„Leikmenn, þingmenn og eftir atvikum aðilar
sem telja sig hafa málsástæður til þess, hafa
gögn og uppfylla ákveðin formskilyrði geta sent
erindi til forsætisnefndar eða á skrifstofu Alþing-
is,“ segir Steingrímur og bendir á að auk siða-
reglna séu samþykktar verklags- og málsmeð-
ferðarreglur og forsætisnefndin meti hvort erindi
sem berast séu það alvarleg, stór eða fordæm-
isgefandi að rétt sé að kalla til ráðgefandi siða-
nefnd. Forsætisnefnd geti hins vegar lokið minni
háttar málum.
Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálf-
stæðiflokksins, segir að nú þegar forsætisnefnd
hafi virkjað siðanefnd þingsins sé líklegra að
fleiri málum verði vísað til nefndarinnar. For-
dæmið sé komið og hann óttist að málum sem
vísað verði til siðanefndar fjölgi.
„Í máli Ágústs Ólafs þurfum við að minnsta
kosti að meta hvort tilefni sé til að vísa máli hans
til forsætisnefndar. Skoða vel hver séu rökin með
því að vísa máli hans nefndarinnar og hver rökin
séu á móti því,“ segir Birgir og bætir við að það
geti haft fordæmisgildi hvort sem ákvörðunin
yrði að vísa málinu til forstætisnefndar eða ekki.
Hvorki náðist í Ágúst Ólaf Ágústsson né Loga
Einarsson við vinnslu fréttarinnar.
Götunafnanefnd Reykjavíkur hefur
gert tillögur að nýjum götuheitum
á Landspítalalóð, í Gufunesi og á
Esjumelum.
Tillögur um nöfn á Landspítala-
lóð eru: Hildigunnargata, Þjóð-
hildargata, Freydísargata, Hrafns-
gata, Fífilsgata, Njólagata, Burkna-
gata, Hvannagata og Blóð-
bergsgata.
Nafnanefndin leggur til að götur
á Esjumelum verði ekki kenndar
við mela, þar sem ruglingur gæti
átt sér stað vegna Melanna í
Vesturbæ Reykjavíkur. Tillaga
nefndarinnar er: Gullslétta, Silfur-
slétta, Járnslétta, Málmslétta,
Bronsslétta, Koparslétta, Steins-
létta og Kalkslétta.
Í Gufunesi er gerð tillaga um
heitin Þengilsbás, Hilmisbás og
Jöfursbás. Og götur í framtíðar-
stækkun: Þjóðansbás, Hildisbás og
Mæringsbás.
Í götunafnanefnd sitja Ármann
Jakobsson, Guðrún Kvaran, Ásrún
Kristjánsdóttir og Nikulás Úlfar
Másson. Tillögur þeirra fara til af-
greiðslu í borgarráði . sisi@mbl.is
Götur, sléttur og básar
Tillögur að nýjum götunöfnum á þremur svæðum í Reykjavík
Morgunblaðið/Eggert
Landspítalalóð Þar verða í framtíðinni Freydísargata, Njólagata og Fífils-
gata ef tillögur götunafnanefndar Reykjavíkur ná fram að ganga.
34 þúsund einstaklingar fengu ávís-
uð svefnlyf á Íslandi á síðustu tólf
mánuðum. Notkun svefnlyfja er
hlutfallslega miklu meiri hér en í
flestum öðrum löndum, samkvæmt
upplýsingum á vef landlæknis.
Salan hér er hlutfallslega tvöfalt
meiri en í Noregi, Álandi og Finn-
landi. Hún er nærri fimm sinnum
meiri en í Danmörku og Færeyjum.
Svíþjóð kemur næst Íslandi en sala
lyfja er þó 37% meiri hér en í Sví-
þjóð, hlutfallslega reiknað á hvern
íbúa. Konur nota svefnlyf meira en
karlar.
Í tilkynningu kemur fram að of-
notkun svefnlyfja sé mikið vandamál
hér á landi. Of margir noti þau, of
lengi og í of stórum skömmtum.
Tvöfalt meira
af svefnlyfjum
Jóladagskráin á Þjóðminjasafni Íslands hófst í
gær þegar þau Grýla og Leppalúði komu þar við
og heilsuðu upp á fólk. Fengu þau hinar bestu
móttökur hjá gestum og öðrum þótt ófrýnileg
væru. Grýlu leist sérstaklega vel á einn gesta
eins og sjá má á myndinni og hótaði því að taka
hann með sér aftur til fjalla. Á næstu dögum
koma svo jólasveinarnir, synir þeirra, hver á
fætur öðrum og hitta börn sem eru forvitin um
þessa skrýtnu karla. Þannig kynnast krakkarnir
gömlum íslenskum jólasiðum og menningar-
arfleifðin lifir.
Menningarhefðirnar haldast og lifa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Grýla og Leppalúði heilsuðu upp á fólk á Þjóðminjasafninu í gær